Skoðun

Flug er al­menningss­sam­göngur

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Það má heita mikill misskilningur á 21. öld tækni og hraða að telja flugvélar til hverfandi samgöngutækja innanlands. Telja jafnvel að snjallt sé að tilvonandi farþegi á leið í flug milli landshluta aki allt að 100 km til og frá flugvelli til að fljúga sínar leiðir, væri innanlandsflug flutt á Miðnesheiði. Flest bendir til að með tækniframförum og orkuskiptum í samgöngum nái flug ekki bara að standast tímans tönn innanlands heldur vaxa að umfangi næstu áratugi og öld.

Þar ræður margt: Umhverfisvænni stórar vélar, stuttbrautarvélar, stýrðir drónar og ýmis konar þyrlur. Líka kröfur um betri almenningssamgöngur, næg tækifæri til að skjótast „bæjarleiðir“, ná millilandaflugi og t.d. almennri heilbrigðisþjónustu. Einnig skipulagt hjálpar- og sjúkraflug og sértæk heilbrigðisþjónusta í hátæknisjúkrahúsum (Ak. og Rek.) Enn fremur að séð verði til þess að höfuðborgin geti sómasamlega sinnt aðsókn af landsbyggðinni í stofnanir og sérþjónustu. Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa svo sínar væntingar og samgöngukröfur vegna vinnu og við leik. Fleira má minna á: Íbúum í þétt- og dreifbýli fjölgar hratt og því þarf að mæta. Framleiðsla vistvænnar vöru á dagmarkað eykst.

Útgerð meðalbíls kostar ekki undir 100 kr. pr. km á ársgrunni. 600 km ökuferð fram og tilbaka til Reyjavíkur uttan af landi kostar vart undir 60.000 kr. Tímaeyðslan telur líka. Misjöfn færð, margbreytt náttúruvá, oft langur aksturstími og dýrt og viðhaldsfrekt vegkerfi landsins (12.000 km – bara þjóðvegirnir!) eru ekki aðstæður sem vísa til þess að fækka eigi heilsársflugvöllum. Þvert á móti ætti að fjölga þeim skynsamlega. Einnig að blasir við að loka ekki Vatnsmýrarvellinum heldur sníða hann að nútíma og framtíð. Tryggja að þar verði samþætt og grænorkuvætt almenningsamgöngukerfi landsmanna skipulagt sem aðalstöð, samhliða orkuskiptum bílaflotans. Meðal annars er unnt að endurskipuleggja og ýmist lengja eða stytta flugbrautir eftir ráðleggingum sérfræðinga með langtíma innanlands- og sjúkraflug að markmiði. Rútukerfi skal rekið samhliða. Vöruflutningar í lofti og sjúkraflutningar aukast vafalítið á næstu áratugum.

Stjórnendur og stór hluti almennings í borgum heims með miðlæg og plássfrek samgöngumannvirki (t.d. eina eða fleiri járnbrautarstöðvar og fjölda teina) horfa ekki bara til landsins undir þeim sem byggingarland. Lífsgæði greiðra og hnitmiðaðra samgangna og öryggi þeim tengt eru jafn mikilvæg eða mikilvægari. Allir íbúar hvers nútíma ríkis eru jafn réttháir þegar kemur að samgöngum og opinberri þjónustu. Sjálfbærar almenningssamgöngur hafa þrjár stoðir til heildræns mats: Hagræna stoð, umhverfisvernd og mannvænt samfélag í öllum byggðum. Reykjavík er ekki sjálfstætt eyland utan Íslands, heldur burðarbyggðin í landinu.

Höfundur er jarðvísindamaður og rithöfundur.




Skoðun

Sjá meira


×