Í fréttum Stöðvar 2 var farið í Leifsstöð og nýja álman skoðuð. Með henni verður heildarflatarmál flugstöðvarinnar orðið 98 þúsund fermetrar.
Komufarþegar voru fyrstir til að upplifa nýju viðbygginguna með stærri töskusal, sem opnaður var í fyrra. Nýtt veitingasvæði hefur smásaman verið að bætast við undanfarna mánuði og á svokölluðu Aðalstræti er núna búið að opna þrjá nýja veitingastaði. Í dag varð svo stóra breytingin með nýjum biðsal og nýjum landgönguhliðum.

„Þetta er þrjátíu prósent stækkun á flugstöðinni, sem er að sjálfsögðu umtalsvert. Við erum bara mjög stolt af því að vera að opna þetta mannvirki hér í dag og fara að bjóða upp á enn betri þjónustu fyrir okkar farþega,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta- og þróunar hjá Isavia. Og segir þetta þýða nýja upplifun fyrir farþega.
„Það eru stærri hlið. Það er meira pláss til að setjast. Það er vítt til veggja og salurinn er allur mjög bjartur.“

Fyrstu farþegarnir fóru í gegn í dag en þeir notuðu tvö ný rútuhlið. Landgöngurönum mun einnig fjölga. Þannig bætast fjórir slíkir ranar við á næstu vikum. Eitt nýtt flugvélarstæði verður tekið í notkun á hverjum miðvikudegi næstu þrjár vikur.
„Og vonandi í lok marsmánaðar þá verður þessi bygging komin í fulla virkni,“ segir Guðmundur Daði.
Viðbyggingin bætir úr brýnni þörf.
„Farþegavöxtur á síðasta áratug var nánast ótrúlegur hér á flugvellinum og við náðum einfaldlega ekki að halda í við þann farþegafjölda fram til 2020. Þannig að við erum í raun ennþá hér að vinna upp þá miklu farþegaaukningu sem var á síðasta áratug og þurfum að halda því áfram.“

Stórir hlutar byggingarinnar verða þó ekki aðgengilegir farþegum, eins og farangurssalir í kjallara, þar sem töskurnar munu rúlla inn og út á færiböndum.
Framkvæmdin er með þeim stærstu í landinu.
„Heildarkostnaður á mannvirkinu, flughlaðinu og öllu sem fylgir, er 29,5 milljarðar króna,“ segir framkvæmdastjóri viðskipta- og þróunar hjá Isavia.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: