Eigendur og stofnendur Kattakaffihússins, Ragnheiður Birgisdóttir og Gígja Sara Björnsson, eru vinkonur sem deila ástríðu fyrir köttum og kaffimenningu. Hugmyndin kviknaði þegar þær heyrðu af kattakaffihúsum erlendis og langaði að skapa slíkan stað á Íslandi.

„Draumurinn varð að veruleika þann 1. mars 2018 og síðan þá hefur Kattakaffihúsið verið einstakur staður þar sem gestir geta notið dásamlegs kaffis í góðum félagsskap kattanna sem eru í leit að nýju heimili. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að nærvera katta hefur jákvæð áhrif á geðheilsu og taugakerfið, dregur úr streitu og stuðlar að slökun,“ segja Ragnheiður og Gígja og bæta við:
„Á þessum sjö árum hefur Kattakaffihúsið fundið ástrík heimili fyrir 130 ketti en allir kettirnir á kaffihúsinu eru í heimilisleit. Hægt er að koma á kaffihúsið og hitta kettina og sækja um að taka þá að sér og við pörum kettina við heimili sem hentar hverjum og einum.“
Hér má sjá nokkrar vel valdar og ansi krúttlegar myndir af afmælinu:










