Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður (7)
Fékk mark á sig úr fyrsta skoti Kósóvó, skot sem hann sá líklega seint. Varði í tvígang mjög vel í síðari hálfleiknum en gat lítið gert í öðru marki Kósóva. Var heppinn þegar Kósóvó skoraði í þriðja sinn eftir glæfralegt skógarhlaup út í teiginn en markið var réttilega dæmt af.
Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður (5)
Kraftmikill að vanda en stundum á kostnað gæðanna. Gekk of oft illa að koma boltanum vel frá sér en var öflugur í loftinu. Í þau skipti sem hann komst áleiðis sóknarlega hefði hann mátt vera rólegri á boltanum og reyna einfaldari hluti.
Sverrir Ingi Ingason, miðvörður (6)
Var okkar skásti varnarmaður í dag og bjargaði afar vel á lokasekúndunum þegar Kósóvar voru komnir í hættulega stöðu. Öflugur í loftinu en þegar koma þurfti boltanum í spil voru möguleikarnir stundum fáir og óöryggið í uppspilinu mikið. Varnarlínan var í heild sinni óörugg og þarf að stíga upp í seinni leiknum.
Aron Einar Gunnarsson, miðvörður (5)
Ekki frammistaða sem fer í sögubækur Arons Einars hjá landsliðinu. Lenti undir í návígjum og gekk illa að koma boltanum í spil sem skrifast svo sem ekki eingöngu á hann. Virtist missa einbeitinguna á tímabili í seinni hálfleik og einbeitti sér fullmikið af dómaranum sem fór í taugarnar á honum. Þurfum betri frammistöðu frá okkar reynslumesta manni á sunnudag.
Logi Tómasson, vinstri bakvörður (5)
Var oft á tíðum í vandræðum varnarlega, virkaði öruggur og líkt og aðrir í varnarlínunni gekk stundum illa að koma boltanum í spil. Sóknarhæfileikar hans nýttust ekki sem skyldi og honum gekk illa að verjast fyrirgjöfum frá hægri kanti heimamanna. Fór af velli á 65. mínútu leiksins.
Mikael Egill Ellertsson, hægri kantmaður (5)
Var líflegur til að byrja með og reyndi að koma sér inn í leikinn. Býr yfir hraða sem ætti að nýtast íslenska liðinu en Mikael Agli hefur gengið bölvanlega að gera sig gildandi í landsliðstreyjunni. Týndist fljótlega þegar frammistaða liðsins dalaði og sást lítið í síðari hálfleiknum. Var tekinn af velli á 90. mínútu.
Hákon Arnar Haraldsson, miðjumaður (5)
Spilaði á miðri miðjunni og var í strangri gæslu Kósóva. Kom oft á tíðum mjög aftarlega að sækja boltann en náði lítið að skapa. Tapaði boltanum á vondum stað þegar Kósóvó komst í 2-1 og náði ekki að vera sá prímusmótor sem honum er ætlað að vera. Var tekinn af velli á 65. mínútu.
Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður (7)
Spilaði með æskuvini sínum Hákoni Arnari á miðri miðjunni. Gerði frábærlega þegar hann lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Orra Stein með frábærri sendingu og var mikið í boltanum í fyrri hálfleiknum. Var í stóru varnarhlutverki á miðjunni og þreyttist fljótt í síðari hálfleiknum. Var tekinn af velli á 65. mínútu.
Andri Lucas Guðjohnsen, vinstri kantmaður (6)
Náði ágætlega saman við Orra Stein í framlínunni, hljóp mikið og reyndi hvað hann gat. Komst í gott færi seint í leiknum en Muric í marki heimamanna gerði þá vel í að loka markinu. Fékk boltann lítið í uppspilinu og komst þar af leiðandi á löngum köflum lítið inn í spilið.
Orri Steinn Óskarsson, framherji (7)
Fyrsti leikurinn með fyrirliðabandið og gerði afar vel þegar hann jafnaði metin á mikilvægum tímapunkti í fyrri hálfleiknum. Var duglegur og barðist vel í við líkamlega sterka varnarmenn Kósóva. Átti tvö hörkuskot sem Muric varði vel og fékk einnig dauðafæri í fyrri hálfleiknum en þá var dæmd rangstaða sem VAR hefði líklega snúið við. Er okkar hættulegasti sóknarmaður og lykilmaður.
Albert Guðmundsson, framherji (5)
Komst lítið í takt við leikinn og virkaði á köflum hálf týndur. Þegar hann fékk boltann gerðist lítið og ljóst að íslenska landsliðið þarf meira frá Alberti í síðari leik liðanna á sunnudaginn. Var tekinn af velli á 65. mínútu leiksins.
Varamenn:
Stefán Teitur Þórðarson kom inn á fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson á 65. mínútu (5)
Kom inn á miðja miðjuna en komst lítið inn í spilið. Tapaði boltanum einu sinni úti við hornfána sem skapaði hættu við mark Íslands.
Arnór Ingvi Traustaon kom inn á fyrir Albert Guðmundsson á 65. mínútu (5)
Komst ekki í takt við leikinn, barðist líkt og hann er vanur en lítið markvert við hans frammistöðu.
Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á fyrir Loga Tómasson á 65. mínútu (6)
Gerði vel í að koma sér í algjör dauðafæri á 80. Mínútu leiksins en skotið fór beint á Muric í markinu. Kraftur í Jóni Degi eins og vanalega og spurning hvort hann fái tækifæri í byrjunarliðinu í seinni leiknum.