Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2026 19:04 iPhone Duo fyrsti langlokusími Apple. AP/Jeff Chiu Forsvarsmenn Apple hafa opinberað fyrsta samanbrjótanlega síma fyrirtækisins. Hann heitir iPhone Duo og verður stærsti iPhone fyrirtækisins hingað til. Auk þess var nýr forstjóri sýndur til leiks á nýrri kynningu tæknirisans. Þar voru verðhækkanir einnig boðaðar.
Duo er með 7,6 tommu skjá þegar hann er opinn en á framhlið hans er svo minni 5,4 tommu skjár. Hlutföll símans eru ekki í takt við aðra samanbrjótanlega síma eins og Fold-síma Samsung en hönnuðir símans segjast innblásnir af spjaldtölvum fyrirtækisins. „Þetta er iPhone ólíkur öðrum iPhoneum,“ segir um símann á vef Apple. Þá býr Duo yfir tveimur 48 megapixla aðalmyndavélum, auk einnar 12 megapixla myndavél og annarrar smærri myndavélar undir skjánum, fyrir myndbandssímtöl. Notendur eiga að geta horft á myndbönd á stærri skjá hans í 31 klukkustund, áður en hann verður rafmagnslaus. Í Bandaríkjunum á ódýrasta týpa símans (256 GB) að kosta 1.999 dali , sem samsvarar 241 þúsund krónum. Síminn mun væntanlega kosta mun meira en það hér á landi. Samanbrjótanlegir símar hafa hingað til ekki orðið móðins en Samsung opinberaði þann fyrsta árið 2019. Greiningarfyrirtækið Counterpoint gaf nýverið út skýrslu þar sem fram kemur að líklega muni sá áfangi nást á þessu ári að hundrað milljón samanbrjótanlegir símar hafi verið seldir frá því sá fyrsti leit dagsins ljós. Í skýrslunni kemur einnig fram að þessir símar eru einungis tvö prósent af heildarmarkaði snjallsíma en búist er við því að sala þeirra muni aukast um 37 prósent á næsta ári. Á það að miklu leyti að vera vegna iPhone Duo. Cook fylgdist með nýja forstjóranum Þetta var fyrsta vörukynning Johns Ternus, síðan hann tók við sem forstjóri Apple af Tim Cook. Ráðning hans var opinberuð fyrr í mánuðinum en hann hafði áður unnið lengi hjá Apple. Sjá einnig: Apple fær nýjan forstjóra Ternus gekk skælbrosandi á svið á meðan Tim Cook, fyrrverandi forstjóri og núverandi stjórnarformaður, sat fremst í salnum. Ternus byrjaði á því að segja að starfsmenn Apple hefðu unnið hörðum höndum að undanförnu og sagðist hann sannfærður um að fólki myndi lítast vel á hvað hefði komið úr þeirri vinnu. Þegar kemur að verðhækkunum var opinberað í kvöld að Pro og Pro Max-útgáfur iPhone síma munu hækka um hundrað dali í verði, borið saman við síðustu kynslóð. Samkvæmt Wall Street Journal er það minni hækkun en greinendur höfðu búist við. Íhlutir í allskonar tækni- og tölvubúnað hafa hækkað mikið í verði að undanförnu. Það má að miklu leyti rekja til gífurlegrar eftirspurnar gervigreindarfyrirtækja eftir tölvuflögum, minni og slíku. Auk þess að kynna Duo var iPhone 18 einnig kynntur til leiks, ný heyrnartól og ný snjallúr. Myndbönd frá kynningunni má sjá hér að neðan.
Apple Tækni Mest lesið Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Viðskipti innlent Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Atvinnulíf Verulegur samdráttur hjá Isavia Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Mikill munur á afkomu almannatengla Viðskipti innlent Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Hægst á verðhækkun á matvöru Neytendur Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Viðskipti innlent Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira