Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlygsson skrifa 5. október 2026 14:31 Góð verkefni þurfa ekki alltaf að byrja á stórum fjárhæðum. Stundum þarf fyrst og fremst einhvern sem trúir á hugmyndina, gefur henni byr undir báða vængi og skapar þér sem frumkvöðli svigrúm til að taka næsta skref. Þar hafa Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra, auk atvinnuráðgjafa SSNE, gegnt mikilvægu hlutverki um árabil. Þetta höfum við upplifað, bæði sem styrkþegar áður og nú sem starfsfólk SSNE, þar sem við sjáum heildarmynd áhrifanna raungerast.Uppbyggingarsjóður er eitt mikilvægasta tæki Sóknaráætlunar Norðurlands eystra til að styðja við frumkvæði fólks á svæðinu. Þar mætast atvinnuþróun, nýsköpun, menning og uppbygging samfélaganna okkar. Á hverju ári fá fjölbreytt verkefni um allt Norðurland eystra stuðning til að komast af hugmyndastigi og í framkvæmd.Þessir styrkir eru ekki alltaf háir í stóra samhenginu. En fyrir frumkvöðul, félagasamtök, listafólk eða lítið fyrirtæki geta þessir styrkir skipt sköpum. Þeir geta fjármagnað þann tíma sem þarf til að breyta hugmynd í raunverulegt verkefni.368 stór og smá verkefni í okkar samfélagiÁ síðustu fimm árum einum hafa 368 verkefni fengið styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og hefur heildarúthlutun á tímabilinu numið rúmum 370 milljónum króna.Á bak við þessar tölur eru hugmyndir fólks um hvernig hægt sé að skapa störf, efla samfélagið sitt, byggja upp menningarstarf, búa til betra samfélag fyrir börnin okkar, þróa nýjar vörur og þjónustu og gera Norðurland eystra að enn betri stað til að búa og starfa.Sum verkefnin eru lítil í upphafi. Önnur vaxa hratt. Sum leiða til nýrra fyrirtækja, viðburða eða menningarstarfsemi sem verður með tímanum sjálfsagður hluti samfélagsins. Sameiginlegt með mörgum þeirra er að einhvers staðar á leiðinni þurfti fyrsta skrefið og fjármagn til að taka það.„Ef ekki hefði verið fyrir styrkinn væri hugmyndin komin ofan í skúffu“Gott dæmi um þetta eru Snældur, verkefni Kristínar Birnu Kristjánsdóttur, sem hlaut eina milljón króna úr Uppbyggingarsjóði fyrir árið 2026.Snældur hanna og framleiða náttúruvæna og vistvæna gjafa- og nytjavöru fyrir börn úr íslenskum viði sem fellur til við grisjun skóga. Með því er tryggður rekjanleiki hráefnisins og sótspor framleiðslunnar haldið í lágmarki.Fyrir Kristínu Birnu var styrkurinn ekki aðeins mikilvægt fjármagn, heldur miklu frekar staðfesting á því að hugmyndin væri þess virði að þróa áfram.„Það skiptir miklu máli fyrir mig sem frumkvöðul og einyrkja að fá svona innspýtingu inn í þróunarstarfið. Það gefur þér andrými til að vinna frekar að verkefninu og aukið sjálfstraust að vita að það sé trú á það sem maður er að gera.“Hún segir stuðninginn hafa haft afgerandi áhrif á framhald verkefnisins.„Ef ekki hefði verið fyrir styrkinn er ég nokkuð viss um að ég væri ekki komin svona langt og hugmyndin væri nú komin ofan í skúffu ásamt öllum hinum að safna ryki.“Þarna birtist ef til vill best hlutverk Uppbyggingarsjóðs.Menning og nýsköpun eru hluti af innviðum samfélagsinsUppbyggingarsjóðir landshlutanna byggja á þeirri hugsun að öflug samfélög verði ekki eingöngu til með stórum innviðaframkvæmdum. Atvinnutækifæri, frumkvöðlastarf, menning, sköpun og félagsauður eru einnig hluti af þeim innviðum sem gera fólk kleift að velja sér búsetu og byggja upp framtíð í heimabyggð.Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur lagt áherslu á þetta hlutverk Uppbyggingarsjóðanna og bent á þá sem lykiltæki til að styðja við hugmyndir og innviði á landsbyggðinni. Í kraftmikilli ræðu við úthlutun Uppbyggingarsjóðs Austurlands fyrir árið 2026 undirstrikaði hann jafnframt mikilvægi menningar og nýsköpunar fyrir byggðaþróun og lífsgæði og að aðgengi að menningu eigi ekki að ráðast af búsetu.Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra vinnur einmitt á þessum víðtæka grunni.Sjóðurinn styrkir verkefni sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra í þremur flokkum: verkefni á sviði atvinnulífs, verkefni sem stuðla að blómlegum byggðum og stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar.Það þýðir að góð hugmynd þarf ekki að falla í þröngan ramma. Hún getur snúið að nýrri vöru, menningarviðburði, skapandi starfi, samfélagsverkefni eða nýrri lausn sem eflir atvinnulíf og lífsgæði á svæðinu.Ertu þú með hugmynd? Nú er tíminn til að skoða möguleikana. Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur til 21. október kl. 14:00.Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjóri við Uppbyggingarsjóð, fjárfestingar og atvinnuráðgjöf hjá SSNE.Örlygur Hnefill Örlygsson, verkefnastjóri miðlunar hjá SSNE. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar