Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar 6. október 2026 12:01 Farsældarlögin voru sett með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum snemmtækan stuðning, bæta samvinnu milli kerfa og koma í veg fyrir að börn og fjölskyldur lentu á milli þjónustukerfa. Til að ná þessum markmiðum hafa sveitarfélög um allt land ráðist í umfangsmikla uppbyggingu, fjölgað starfsfólki og þróað nýja verkferla til að standa undir þeim skyldum sem lögin fela þeim. Í Hafnarfirði nema framlög vegna innleiðingar farsældarlaganna rúmum 92 miljónum króna á árinu 2026. Fjármagnið stendur meðal annars undir þremur stöðugildum á Fjölskyldu- og barnamálasviði auk starfsemi tengiliða innan Mennta- og lýðheilsusviðs. Hér er ekki um tímabundið verkefni að ræða heldur varanlega og lögbundna þjónustu sem sveitarfélagið hefur byggt upp í samræmi við stefnu og ákvarðanir ríkisins. Það er því grafalvarlegt ef áform standa til þess að fella þessi framlög niður. Slík ákvörðun myndi annað hvort leiða til skerðingar á þjónustu við börn og fjölskyldur eða þess að sveitarfélög neyðist til að bera kostnaðinn ein og sér. Hvorugur kosturinn er ásættanlegur. Farsældarkerfið verður ekki rekið á fyrirheitum Framsókn tekur heilshugar undir þær áhyggjur sem fjölskylduráð Hafnarfjarðar, Samtök stjórnenda í velferðarþjónustu og Félag fræðslustjóra hafa lýst yfir vegna fyrirhugaðrar niðurfellingar framlaga til sveitarfélaga vegna farsældarlaganna. Um er að ræða fjármagn sem ætlað er að standa straum af þeim lögbundnu verkefnum sem ríkið hefur falið sveitarfélögum að sinna. Sérstaka athygli vekur að þessi niðurfelling fjármagns skuli koma fram á sama tíma og Alþingi hefur markað stefnu um áframhaldandi þróun farsældarkerfisins til ársins 2030. Það stenst hvorki fagleg rök né sjónarmið um ábyrga stjórnsýslu að viðhalda lagaskyldum og kröfum um áframhaldandi uppbyggingu en draga um leið úr fjárhagslegum stuðningi ríkisins við framkvæmdina. Slík stjórnsýsla er hvorki ábyrg né trúverðug. Grundvallarreglan hlýtur að vera sú að fjármögnun fylgi verkefnum. Sveitarfélög geta ekki endalaust tekið við nýjum lögbundnum skyldum án þess að tryggt sé að nauðsynlegt fjármagn fylgi með. Sagan má ekki endurtaka sig Þegar farsældarlögin voru til umfjöllunar var sérstaklega bent á mikilvægi þess að kostnaður við innleiðingu þeirra yrði endurmetinn reglulega svo ekki færi á sama veg og þegar málefni fatlaðs fólks voru flutt frá ríki til sveitarfélaga. Þau loforð voru gefin að fjármögnun yrði endurskoðuð og aðlöguð að raunverulegum kostnaði. Sú reynsla sýnir hins vegar að fjármunir hafa ekki fylgt verkefnum með fullnægjandi hætti. Afleiðingarnar blasa vel við í dag. Sveitarfélög glíma við verulegan fjárhagslegan halla vegna m.a. lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk og bera kostnað sem upphaflega stóð til að þau myndu ekki bera ein. Það væru því alvarleg mistök að endurtaka sömu mistök við innleiðingu farsældarlaganna. Farsæld barna krefst ábyrgðar Sveitarfélögin, þar á meðal Hafnarfjörður, hafa ráðist í umfangsmikla uppbyggingu á grundvelli þeirra fyrirheita sem ríkið gaf við innleiðingu laganna. Það er því hvorki sanngjarnt né ábyrgt að skerða fjárhagslegar forsendur starfseminnar fyrr en heildstætt mat hefur farið fram á raunverulegum kostnaði sveitarfélaganna og áhrifum laganna. Börn og fjölskyldur eiga rétt á þeirri þjónustu sem farsældarlögin kveða á um. Sá réttur verður ekki tryggður með yfirlýsingum eða stefnumörkun einni saman. Hann krefst þess að ríkið standi við skuldbindingar sínar og tryggi sveitarfélögum það fjármagn sem nauðsynlegt er til að sinna verkefnunum. Það vekur því furðu að flokkar sem kenna sig við jafnaðarmennsku og velferð skuli nú leggja til að fella niður fjármögnun sem er ætlað að tryggja framkvæmd farsældarlaga. Erfitt er að sjá hvernig slík ákvörðun samræmist þeirri sýn sem þessir flokkar hafa haldið á lofti um sterka opinnbera þjónustu og aukinn stuðning við börn og fjölskyldur. Þegar kemur að því að fjármagna lögbundna þjónustu virðast verkin því miður ekki fylgja orðum. Farsæld barna verður ekki byggð á góðum ásetningi einum saman. Hún byggist á ábyrgð, trúverðugleika og því að fjármagnið fylgi þeim verkefnum sem sveitarfélögum eru falin. Farsæld barna verður ekki byggð á loforðum einum saman. Hún krefst raunverulegrar ábyrgðar og þess að fjármagnið fylgi verkefnum. Höfundur er fulltrúi Framsóknar í fjölskylduráði Hafnarfjarðarbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar