„Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar 7. október 2026 07:48 Ragnar Þór Ingólfsson, húsnæðismálaráðherra leggur nú fram frumvarp á Alþingi um leigubremsu sem er algerlega frábært. Það gengur vissulega ekki jafn langt og ég myndi vilja sjá, en er mikið framfaraskref og hrósvert sem slíkt. Sem þarft framfaraskref í þágu hagsmuna almennings mætir frumvarpið auðvitað ýmsum hindrunum, fyrirsjáanlegri gagnrýni hægrisins til varnar leigusölum og verulegrar hættu á að útvatnast í þinglegri og nefndarmeðferð ef það kemst í gegn á annað borð. Við megum ekki leyfa frumvarpinu að mistakast. Húsnæðismarkaður í klessu Það þarf ekkert að hafa um það of mörg orð, tölurnar og staðreyndirnar liggja allar fyrir og nánast hvert einasta mannsbarn á Íslandi hefur orðið þess vart að húsnæðismarkaðurinn á Íslandi er í kreppuástandi eða hreint út sagt, í algeru rugli. Það er ekki nýtt vandamál en það er þrálátt. Við vitum líka að öfgakennd markaðsvæðing húsnæðis sem fjárfestingavöru hefur ollið okkur öllum miklum skaða. Fyrir Hrun voru það fasteignalánin sem sköpuðu fjárfestingabólu. Eftir Hrun og eftir sprengju í fólksfjölgun og ferðamannaiðnaði (sem hvoru tveggja helst í hendur) þá varð okrandi skammtímaleiga og öfgahagnaðardrifinn langtíma leigumarkaður að gullæði allra þeirra sem höfðu fjármuni á milli handanna. Raunar er ástandið svo sjúkt og hefur lengi verið, að bankarnir beinlínis ráðleggja fólki sem vill ávaxta sparifé sínu að fjárfesta í leiguíbúð. Siðleysið og tómhyggjan alger. Í þessu skringilega efnahagsástandi sem við búum við hefur verðtrygging, vísitölutenging leiguverðs og viðvarandi skorts ástand á húsnæðismarkaði skapað nánast órjúfanlegan vítahring af verðbólgu og stigmagnandi hækkun húsnæðiskostnaðar. Á meðan gerir gjaldþrota stýrivaxtameðferð bara illt verra. Gömul saga og ný. En sú saga lifir enn og við sleppum ekki undan henni. Þannig er það að tæpur helmingur allrar verðbólgu síðustu 10 árin stafar af hækkun húsnæðiskostnaðar. Tæpur helmingur. Allt annað skipar rest. Sláandi tala sem kemur fram í málflutningi formanns Leigjendasamtakanna, Yngva Ómari Sigrúnarsyni, sem rekur nú þrotlausa baráttu samtakanna með öflugri greiningarvinnu sinni að vopni. Fasteignaverð eru samt frosin og byrjuð að lækka lítillega, enda flestu fólki utan hinna fáu ofurríku nær ómögulegt orðið að kaupa sér fasteign í þessu efnahagslega árferði. Fjöldi nýbygginga skreppur saman og skorturinn mun aukast þökk sé stýrivaxtameðalinu. Áfram hækkar þó leiguverð og verðbólgan með. Sá liður vísitölunnar, húsnæðisliðurinn, nánar tiltekið „reiknuð“ og „greidd“ húsaleiga er einn langstærsti hluti mánaðarlegrar aukningar verðbólgunnar um langt skeið. Hænan og eggið hringsnúast. Hvers vegna leigubremsa? Kannski þarf ekkert að svara þeirri spurningu? Allavega finnst mér það algerlega borðleggjandi að þessi sjálfvirka stýring mánaðarlegra vísitöluhækkana leiguverðs og okurverðlagningar „frelsi“ leigusala til flatra hækkana eru skaðlegt efnahagslegt mein sem þarf að binda endi á tafarlaust. Frelsi leigjenda til að lifa án íþyngjandi húsnæðiskostnaðar, græðgi og okri leigusala, með engum fyrirsjáanleika þarf að vernda. Frelsi okkar allra frá lífskjarakrísu verðbólgu og vaxta þarf að tryggja. Kannski þarf frekar að útlista hvað þessi leigubremsa gerir? Lukkulega er það einfalt svar og lymskulega snjallt, enda gott samstarf Leigjendasamtakanna og Ragnars Þórs þar að baki. Ef frumvarpið er samþykkt þá munu leigusalar og leigjendur hafa þrjá valkosti til að velja um við samningagerð um leiguverð og hækkun þess á samningstíma. Frumvarpið er líka afturvirkt sem er mjög þarft vegna ótímabundinna samninga. Nr. 1 Vísitöluhækkun Nr. 2 Hlutfallsleg hækkun af leiguverði (t.d. 5%, 10%, o.s.frv.) Nr 3 Flöt krónutöluhækkun Snilldin liggur í að hvorki leið 2 né 3 megi fara umfram vísitöluhækkunina og að slíkar hækkanir megi aðeins gerast að lágmarki á 12 mánaða fresti. Grunnverð á íbúðinni, svokallað „markaðsverð“, eigi að miðast við skrásetta markaðsleigu úr leiguskrá HMS. M.ö.o. bundið er fyrir sótthitaóðar handahófskenndar ákvarðanir gróðabraskara um grunnverð og flatar hækkanir sem hækkar í ofanálag mánaðarlega með vísitölutengingu og nærir verðbólguna statt og stöðugt. Eins og staðan er í dag. „Samningsfrelsið“ Gagnrýnin hefur ekki staðið á sér og nóg er af henni framundan í meðferð þessa frumvarps. Stjórnarandstaðan slær um sig með fyrirsjáanlegum frösum hægrisins, vernda skuli hið dýrmæta „samningsfrelsi“. „Frelsi“ okrarans og braskarans til að hagnýta sér skorts ástand og markaðsbrest til að græða sem allra mest á neyð leigjenda. Dýrmætt og fagurt það „frelsi“. Áskoranir munu steðja að innan ríkisstjórnarinnar líka. Efnahagsleg sýn Viðreisnar er oft mjög öfgakennd, nýfrjálshyggja á sterum og mörgum innan þeirra raða er meinilla við hvers kyns „inngrip“ á markaði eins og Viðreisnarfólk vísar stundum til þess. Í nefndarvinnu er því mikil hætta á að leigubremsan verði allverulega útvötnuð, eins og mörg mál enda. Ef það deyr ekki bara í nefnd, sem er líka áhætta. Áhrif leiguverðs á verðbólguna er þó slíkt að almenningur allur hefur mikinn hag af því að frumvarpið verði að lögum. Manneskja með húsnæðislán fær yfir sig verðbólguhækkanir í gegnum verðtrygginguna og arðránshækkanir vaxtakjara bankanna og grimmilegar stýrivaxtahækkanir Seðlabankans og allt er það undir miklum áhrifum af víxlverkandi hækkunum leiguverðs. Hagsmunir lántakenda og leigjenda eru nefnilega þeir sömu. Leigubremsan er þörf en það þarf mikið meira til. Hún ætti að taka gildi fyrr. Í janúar t.d., ekki júlí. Innifela þyrfti heimild fyrir ráðherra hverju sinni til að setja líka þak á vísitöluhækkanir. Á milli samninga þarf leiguverð viðkomandi íbúðar að viðhaldast til að sporna við skammtímasamningum til eins árs í senn með flötum hækkunum þar á milli. Leiðrétta þarf svo auðvitað leiguverð í grunninn, enda verðlag úr öllu samhengi við raunkostnað. Umbreyta þarf Landsbankanum í samfélagsbanka sem býður viðráðanleg óhagnaðardrifin lánakjör og taka þarf skref til að fasa út verðtryggingunni jafnt og þétt. Byggja þarf beint; af hálfu hins opinbera á öllum stigum, á risastórum skala. Við höfum gert það áður, við getum gert það aftur. Efnahagsleg velferð okkar allra hvílir þó á því þori sem þarf til að setja græðgi braskara á húsnæðismarkaði mörk. Þetta er skref í þá átt og fagnaðarefni. Höfundur er formaður Sósíalistaflokks Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Leigumarkaður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar