Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar 7. október 2026 12:32 Það er einkennileg byggðastefna sem birtist í því að gera fólki sífellt erfiðara fyrir að búa úti á landi. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur mótmælt harðlega fyrirhugaðri fækkun flugferða til og frá Vopnafirði, úr fimm ferðum á viku í þrjár. Það er ekki minniháttar breyting heldur 40% skerðing á þjónustu sem íbúar treysta á. Fyrir samfélag sem býr við miklar vegalengdir frá t.d. opinberri þjónustu og takmarkað úrval samgöngukosta skiptir slíkt verulegu máli. Það vekur jafnframt athygli að fækkunin skuli meðal annars rökstudd með nýtingu flugsins, þó auðvitað þurfi að fara vel með opinbert fé en þegar um er að ræða ríkisstuddar almenningssamgöngur hlýtur spurningin að vera stærri en einfaldlega hversu mörg sæti eru seld í hverri ferð. Tilgangurinn með slíkum stuðningi er einmitt að tryggja samgöngur þar sem markaðurinn einn og sér stendur ekki undir þeirri þjónustu sem samfélagið þarf á að halda. Ef opinberar ákvarðanir eru teknar eingöngu út frá kostnaði á hvern farþega er hætt við að niðurstaðan verði alltaf sú sama: Þjónustan minnkar þar sem fæst er fólkið. Síðan er svo hægt að benda á fækkun farþega í kjölfarið sem rök fyrir enn frekari niðurskurði. Þannig verður til vítahringur sem gerir landsbyggðinni smám saman erfiðara fyrir. Það er ekki hlutverk almenningssamgangna að þjóna aðeins þeim stöðum þar sem þær skila mestum fjárhagslegum arði. Þær eiga líka að tryggja fólki raunhæfan möguleika á að sækja vinnu, nám, heilbrigðisþjónustu og aðra nauðsynlega þjónustu, óháð því hvort það býr í Reykjavík eða á Vopnafirði. Til samanburðar má benda á að nýting Strætó á höfuðborgarsvæðinu er einungis um 5% og mætti því með sömu rökum leggja til fækkun ferða, eða hvað? Nei, það myndi væntanlega ekki mælast vel fyrir. En gilda einhver önnur lögmál ef áhrifasvæðið er bara nógu langt frá Reykjavík líkt og Vopnafjörður eða Húsavík? Slík viðhorf koma í það minnsta reglulega fram í aðgerðum stjórnvalda og hafa gert um árabil. Fækkun flugferða er ekki bara breyting á flugtímaáætlun heldur er hún líka ákvörðun um þjónustustig og þar með um búsetuskilyrði fólks. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur krafist þess að fimm flugferðir á viku verði áfram tryggðar og að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélagið áður en ákvörðun er tekin. Það er eðlileg krafa. Byggðafesta verður ekki tryggð með fallegum orðum í stefnuskjölum. Hún verður að sjást í ákvörðunum og verkum stjórnvalda. Byggðastefnu núverandi ríkisstjórnar mætti allt eins kalla höfuðborgarstefnu. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgrímur Sigmundsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Það er einkennileg byggðastefna sem birtist í því að gera fólki sífellt erfiðara fyrir að búa úti á landi. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur mótmælt harðlega fyrirhugaðri fækkun flugferða til og frá Vopnafirði, úr fimm ferðum á viku í þrjár. Það er ekki minniháttar breyting heldur 40% skerðing á þjónustu sem íbúar treysta á. Fyrir samfélag sem býr við miklar vegalengdir frá t.d. opinberri þjónustu og takmarkað úrval samgöngukosta skiptir slíkt verulegu máli. Það vekur jafnframt athygli að fækkunin skuli meðal annars rökstudd með nýtingu flugsins, þó auðvitað þurfi að fara vel með opinbert fé en þegar um er að ræða ríkisstuddar almenningssamgöngur hlýtur spurningin að vera stærri en einfaldlega hversu mörg sæti eru seld í hverri ferð. Tilgangurinn með slíkum stuðningi er einmitt að tryggja samgöngur þar sem markaðurinn einn og sér stendur ekki undir þeirri þjónustu sem samfélagið þarf á að halda. Ef opinberar ákvarðanir eru teknar eingöngu út frá kostnaði á hvern farþega er hætt við að niðurstaðan verði alltaf sú sama: Þjónustan minnkar þar sem fæst er fólkið. Síðan er svo hægt að benda á fækkun farþega í kjölfarið sem rök fyrir enn frekari niðurskurði. Þannig verður til vítahringur sem gerir landsbyggðinni smám saman erfiðara fyrir. Það er ekki hlutverk almenningssamgangna að þjóna aðeins þeim stöðum þar sem þær skila mestum fjárhagslegum arði. Þær eiga líka að tryggja fólki raunhæfan möguleika á að sækja vinnu, nám, heilbrigðisþjónustu og aðra nauðsynlega þjónustu, óháð því hvort það býr í Reykjavík eða á Vopnafirði. Til samanburðar má benda á að nýting Strætó á höfuðborgarsvæðinu er einungis um 5% og mætti því með sömu rökum leggja til fækkun ferða, eða hvað? Nei, það myndi væntanlega ekki mælast vel fyrir. En gilda einhver önnur lögmál ef áhrifasvæðið er bara nógu langt frá Reykjavík líkt og Vopnafjörður eða Húsavík? Slík viðhorf koma í það minnsta reglulega fram í aðgerðum stjórnvalda og hafa gert um árabil. Fækkun flugferða er ekki bara breyting á flugtímaáætlun heldur er hún líka ákvörðun um þjónustustig og þar með um búsetuskilyrði fólks. Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur krafist þess að fimm flugferðir á viku verði áfram tryggðar og að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélagið áður en ákvörðun er tekin. Það er eðlileg krafa. Byggðafesta verður ekki tryggð með fallegum orðum í stefnuskjölum. Hún verður að sjást í ákvörðunum og verkum stjórnvalda. Byggðastefnu núverandi ríkisstjórnar mætti allt eins kalla höfuðborgarstefnu. Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi.
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar