Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar 7. október 2026 15:01 Íslenski leigumarkaðurinn hefur haft þá sérstöðu að búa við minni hömlur á hækkunum leigu en almennt tíðkast í grannríkjunum. Í Bandaríkjunum, landi hinna óheftu markaðshátta, hefur víða verið meira um hömlur á hækkunum leiguverðs en á Íslandi (sjá HMS – Vegvísir leigumarkaðarins 2025). Íslenskir leigusalar hafa nýtt sér frelsið á markaðinum til hins ýtrasta. Afleiðingin hefur verið sú, að hér hefur leiga hækkað langt umfram almennt verðlag og þar með verið einn af drifkröftum verðbólgunnar. Hækkanir leigu hér á landi hafa verið um þrisvar sinnum meiri en hjá frændþjóðum okkar á hinum Norðurlöndunum, sbr. meðfylgjandi mynd frá HMS (2025) og fleiri gögn hér. Hagnaður leigufélaga (sem hlutfall af veltu) hefur jafnvel verið meiri en hagnaður bankanna. Nú hafa stjórnvöld lagt fram frumvarp um hömlur á hækkun leigu (leigubremsu) fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði (sjá hér). Það er líklegt til að hægja umtalsvert á hækkunum leiguverðs, þannig að þær verði að minnsta kosti ekki umfram aðrar verðhækkanir. Það er mjög mikilvægt, ekki bara fyrir leigjendur heldur líka til að draga úr þrýstingi á verðbólgu. Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson segir af þessu tilefni að „leigubremsa sé heimskuleg“ og líkleg til að draga úr framboði leiguhúsnæðis og hækka verðið enn meira! Hann virðist raunar ganga út frá því að banna eigi allar hækkanir á leigu, sem er rangt. Einungis er stefnt að því að halda þeim innan við almennra verðhækkanir í landinu. Seðlabankastjóri sér hins vegar ekkert óskynsamlegt í því að hækkanir leigu hafi verið óhóflegar, langt umfram almennt verðlag og þar með sjálfstæður drifkraftur verðbólgunnar hér á landi. Samt á hann að heita sérfræðingur í verðbólgu. Það sem ræður för hjá seðlabankastjóra og raunar öðrum markaðshyggju-múslimum er það sem þeim var kennt í prestaskólum markaðshyggjunnar (hagfræðideildum háskólanna). Það er að alltaf sé skynsamlegast að láta markaðsöflin óheft ráða för og banna beri öll afskipti af verðmyndun á hinum frjálsu mörkuðum. Eru erlendir hagfræðingar skynsamari en íslenskir hagfræðingar? Langtímareynsla er af því að þar sem óheftir markaðir hafa stýrt þróun húsnæðismála að mestu leyti þar hafa verðhækkanir almennt verið mestar og smám saman rekið tekjulægri hópa út af eigendamörkuðum og fest þá í óheftu leiguokri til frambúðar. Það er nú að gerast hér á landi. Félagsleg úrræði á húsnæðismörkuðum hafa hins vegar styrkt stöðu tekjulægri hópa og haldið aftur af hækkunum í almenna markaðshlutanum. Það er einmitt þess vegna sem flestar vestrænar þjóðir hafa sett meiri hömlur á verðhækkanir leigu en hér á landi hafa tíðkast og byggt upp öflug félagsleg úrræði. Kannski erlendir hagfræðingar séu skynsamari en íslenskir hagfræðingar? Óheftu markaðirnir eru einnig kjörlendur fyrir efnaða braskara sem breyta húsnæðismörkuðum í braskmarkaði, þar sem gróði fjárfesta er aðal markmiðið en ekki það að fullnægja húsnæðisþörf þjóðfélagshópa. Skynsemi hagfræðinga er sem sagt ekki alltaf traust og raunar oft bæði óskynsamleg og óréttlát (sjá t.d. hér). Ekki hlusta á úrtölurnar Fyrir um 15 árum, þegar leiga var miklu lægri og arðsemi leigustarfsemi mun minni en nú er, þá var meira en nóg framboð af leiguhúsnæði í landinu. Það dregur úr trúverðugleika boðskaparins um að hófleg leigubremsa muni nú draga úr framboði og hækka verð. Það er því rík ástæða til að hlusta ekki á úrtölur markaðshyggjumanna og talsmanna leigusala. Vonandi nær frumvarp stjórnvalda um leigubremsu fram að ganga sem fyrst. Það mun draga kraft úr verðbólgunni sem hefur plagað okkur um of og færa leigjendum betri kjör og meira öryggi. Höfundur er prófessor emeritus við HÍ og starfar hjá Eflingu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Ólafsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar