Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar 7. október 2026 16:01 Það vekur athygli að seðlabankastjóri sem alla jafna hefur verið mjög varkár í að tjá sig um einstök stjórnarmál og jafnvel þingmannamál, skuli nú grípa til stóryrða vegna áforma í frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um að skapa fyrirsjáanleika, meira öryggi og sanngirni á leigumarkaði. Áform sem eru hluti af því að draga úr vægi verðtryggingar. Allt fyrra skipunartímabil sitt í embætti seðlabankastjóra fór seðlabankastjóri með veggjum þegar ýmis frumvörp fyrri ríkisstjórna voru borin undir hann. Sagði í besta falli að fyrirliggjandi fjárlagafrumvörp væru skref í rétta átt. En nú þegar seðlabankastjóri er kominn á síðara skipunartímabil sitt grípur hann til fallbyssunnar þegar setja á bönd á ótakmarkaða möguleika eigenda húsnæðisfélaga og íbúða til að hækka leigu óstjórnlega. Algengt er að húsaleiga sé hækkuð mánaðarlega samkvæmt neysluvísitölu, þannig að uppsöfnuð árleg hækkun húsaleigu verður langt umfram þróun verðlags. Eins og staðan er í dag ríkir algert frumskógarlögmál á leigumarkaði þar sem fjársterkir aðilar sem eiga tugi, hundruð og jafnvel um eða yfir þúsund íbúðir geta hækkað leiguna nánast að vild. Genginn í grátkórinn Nú þegar lagt er fram stjórnarfrumvarp um að leiga geti einungis hækkað einu sinni á ári og þá ýmist samkvæmt 1) árlegri hækkun neysluvísitölu, 2) um fyrir fram umsamið fast hlutfall af leigufjárhæð eða 3) um fyrir fram umsamda fasta fjárhæð; rís seðlabankastjóri upp á afturlappirnar og segir „leigubremsu náttúrulega mjög heimskulega.“ Hann stillir sér þar með upp í grátkór varnarliðs fjármagnseigenda innan þings og utan; með Samtökum atvinnulífsins, hagnaðardrifnum fasteignafélögum og fleirum sem alltaf sjá ofsjónum yfir öllu sem getur komið almenningi til góða en gæti hugsanleg dregið úr óstjórnlegri auðsöfnun þeirra sem maka krókinn. Hvort sem það er af verðbólgunni eða verðtryggingunni eða einokun á hinum ýmsu sviðum samfélagsins.Það mætti halda að seðlabankastjóri hafi hrokkið í bakkgírinn frá því hann var efnahagsráðgjafi Gamma og forstöðumaður hjá Kaupþingi. Félaga sem léku lykilhlutverk í græðgisvæðingunni og í að koma Íslandi á vonarvöl í hruninu, með stærsta gjaldþroti Íslandssögunnar og þótt víðar væri leitað. Ætti að fagna Ef Seðlabankastjóri væri í raun með allan hugann við að ná niður verðbólgu, í stað þess að verja stöðugt hagsmuni fjármagnseigenda og kalla á sama tíma eftir hófsemi hjá vinnandi fólki, myndi hann að sjálfsögðu fagna tillögum sem draga úr sjálfvirkum kostnaðarhækkunum. Hann ætti að fagna því að settar verði reglur sem færa regluverk okkar í átt að því sem þekkist hjá löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við.Íslenski fasteignamarkaðurinn er á vissan hátt rekinn á lögmálum „villta vestursins“ þegar kemur að samþjöppun eigna og samspili verðbólgu og leigu. Hin sér íslenska verðtrygging tíðkast ekki í flestum ríkjum Evrópu þar sem samningar eru ekki bundnir með jafn afgerandi hætti við neysluverðsvísitölu og hér þekkist. • Í flestum ríkjum Evrópu, og þá sérstaklega á Norðurlöndunum, er algengt að samið sé um fast leiguverð til nokkurra ára, eða leigu sem hækkar um fasta prósentutölu, eins og t.d. 2 prósent á ári, eða markaðsendurskoðun á nokkurra ára fresti. • Á Íslandi fá fasteignafélögin hins vegar „sjálfvirka“ hækkun vegna verðbólgu og stunda það sum að gera í kjölfarið matsbreytingu á eignum til hækkunar, burt séð frá því hvort markaðsverð hafi í raun hækkað. Seðlabankastjóra væri nær að setja spurningamerki við endurmat á virði félaga á þessum forsendum sem getur leitt til bólumyndunar.Það gilda lög um Seðlabanka Íslands og þau tæki sem hann hefur til að ná markmiðum um 2,5 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli. Seðlabankastjóri hafði forystu um allt of mikla og skarpa lækkun vaxta fyrir nokkrum árum sem leiddi til fjárfestingabólu. Á seinni árum hefur hann síðan haft forystu um stöðuga hækkun vaxta í hæstu hæðir án sýnilegs árangurs í baráttunni við verðbólgu. Lofar alltaf að vextir lækki kannski á næsta ári. Seðlabankastjóri ætti að fagna öllum leiðum til að draga úr vægi verðtryggingar. Því eins og hann hefur sjálfur sagt er verðtryggingin skaðvaldur sem dregur úr áhrifum á vaxtastefnu bankans og kemur í veg fyrir að hér geti byggst upp nafnvaxtaumhverfi í húsnæðismálum. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Seðlabankinn Verðlag Fasteignamarkaður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar