Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar 8. október 2026 06:31 Frumvarp um gjaldtöku fyrir túlkun er kynnt sem vörn fyrir íslenska tungu. Í raun sendir það innflytjendum reikninginn fyrir íslenskukennsluna sem ríkið veitti þeim ekki. Og sömu vinnubrögðin eru þegar komin í borgarstjórn Reykjavíkur. Tíu þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja til að stjórnvöld og heilbrigðisstofnanir rukki fyrir túlkaþjónustu hvern þann sem búið hefur hér í þrjú ár eða lengur. Greinargerðin talar um „gríðarlegan kostnað“ skattgreiðenda og um að íslenskan eigi undir högg að sækja. Þessu tvennu er stillt upp eins og það hangi saman. Ég hef aldrei verið meira ósammála þar sem það gerir það ekki. Tölurnar sem greinargerðin talar um Helsta talan í greinargerðinni sem hendi er niður er að heilbrigðiskerfið hafi varið um 1,6 milljörðum króna í túlkun á árunum 2020–2024. Flutningsmenn nefna ekki hvað gerðist á þessum árum. Rússland réðst inn í Úkraínu. Á sama tíma var Ísland eina ríkið í Evrópu sem veitti ríkisborgurum Venesúela viðbótarvernd nær skilyrðislaust. Umsóknir um alþjóðlega vernd náðu hámarki árið 2022, 4.518 talsins, flestar frá Úkraínu og Venesúela. Síðan hefur dæmið snúist við. Útlendingastofnun breytti mati sínu á Venesúela í apríl 2023 og umsóknum þaðan fækkaði um nærri 90% milli 2023 og 2024. Árið 2025 voru umsóknir um vernd alls 1.749, um 60% færri en metárið 2022. Kostnaðaraukinn var því að stórum hluta tímabundinn og varð til vegna stríðs og stjórnvaldsframkvæmdar sem þegar hefur verið afnumin. Við tókum á móti fólki á flótta úr stríði og efnahagshruni, eins og siðað samfélag gerir. Og hér kemur það sem greinargerðin nefnir ekki… nánast allt þetta fólk hafði búið hér skemur en þrjú ár á þeim tíma sem kostnaðurinn féll til. Frumvarpið hefði því ekki snert kostnaðinn sem það vísar til. Frumvarpið kæmi til með að bitna á öðrum, fólkinu sem hefur unnið hér og greitt skatta árum saman, án þess að ríkið hafi nokkurn tíma gert því raunhæft að læra íslensku. Og talan sjálf? Flutningsmenn hafa hana úr svari heilbrigðisráðherra frá því í fyrra og þar er hún aðeins sundurliðuð eftir stofnunum. Við vitum ekki til dæmis hversu mikið var varið í læknisskoðun vegna metfjölda flóttafólks og innan þess hóps var hátt hlutfall heyrnarlausra flóttafólks. Hvað var kostnaður við táknmálstúlka? Hvergi kemur fram hve mikið varðar fólk sem búið hefur hér lengur en þrjú ár, eina hópinn sem frumvarpið nær til. Ríkið sem kennir ekki en vill rukka samt Hér fer ég einu sinni enn að lýsa tölum sem ég hef oft áður rætt. Í úttekt OECD frá september 2024 segist innan við fimmtungur innflytjenda á Íslandi hafa gott vald á íslensku. Það er lægsta hlutfall allra OECD-ríkja. Meðaltalið er 60%, og á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið á bilinu 45–60%. Hér skulum við tala af hreinskilni, þetta er ekki leti. Þetta er fjárlagaákvörðun. Útgjöld til íslenskukennslu á hvern nemanda hafa lækkað árlega frá 2020 og voru árið 2022 þau lægstu síðan 2006. Í Svíþjóð og Finnlandi er annað mál innflytjenda gjaldfrjálst. Hér greiðir fólk um 52.000 krónur fyrir 40–60 stunda námskeið, oftast á vinnutíma sem það hefur ekki. Í fjárlagafrumvarpi 2026 lækkaði liðurinn „Íslenskukennsla fyrir útlendinga“ úr 564,4 milljónum króna í 360,7 milljónir. Kaldhæðnin er ólýsanleg. Frumvarpið kveður á um breytingar á lögum nr. 61/2011, sömu lögunum sem kveða á um að allir sem búa hér skuli „eiga þess kost að læra og nota íslensku“. Ríkið hefur ekki staðið við það loforð. Nú ætlar það að sekta fólk fyrir að hafa ekki fengið það sem því var lofað. Mér finnst viðeigandi að útskýra hér fyrir þingheimi og reyndar almenningi hversu mikla íslenskukennslu það þarf til að ræða við lækni um eigin heilsu eða líðan barnsins síns. Til að skilja greiningu, lyfjaskammta og áhættu af aðgerð þarf að minnsta kosti stig B1 og í reynd B2 á evrópska tungumálarammanum. Námskrár í íslensku sem öðru máli gera ráð fyrir 240 kennslustundum upp á A2 og 300 til viðbótar upp á B2. Það eru 540 kennslustundir, samkvæmt viðmiðum stjórnvalda sjálfra. Námskeið er að meðaltali um 50 stundir. Það þýðir um 11 námskeið. Á 52.000 kr. námskeiðið eru það um 570.000 krónur úr eigin vasa (eða nóta símenntunarsjóðs sem við eigum öll rétt á að nýta vegna endurmenntunar gegn greiðslu til stéttarfélags, sem sagt greiða úr hinum vasa). Fólk í fullu starfi kemst varla í meira en tvö námskeið á ári. Þá tekur B2 um fimm og hálft ár. Jafnvel við þrjú námskeið á ári tekur það um þrjú og hálft ár, lengur en fresturinn. OECD segir að 80% innflytjenda hafi setið færri en 180–200 kennslustundir. Frumvarpið setur sem sagt þriggja ára frest sem kerfið okkar gerir nær ómögulegt að standast. Hver túlkar fyrir konuna á bráðamóttökunni? Hugsum okkur aðeins um við hvaða aðstæður fólk gæti þurft á túlki að halda. Ég man eftir erlendri vinkonu sem ég fór með á bráðamóttöku vegna heimilisofbeldis. Hún hefur búið hér lengur en þessi þrjú ár og starfaði á láglaunuðum vöktum allan tímann. Samkvæmt frumvarpinu fær hún reikning fyrir túlkinn. Segjum svo að þetta frumvarp verði að lögum og hún hafi ekki efni á honum, þarf hún að lýsa áverkunum á máli sem hún ræður ekki við? Eða, sem er líklegra, gerandinn túlkar fyrir hana eða barnið hennar. Hvernig kæmi hún til að skilja það að Kvennaathvarfið og Bjarkarhlíð eru til, hvað nálgunarbann er, eða að hún eigi rétt á að fara frá geranda? Ísland fullgilti Istanbúlsamninginn árið 2018. Í 19. gr. hans skuldbatt ríkið sig til að veita þolendum upplýsingar um aðstoð á tungumáli sem þeir skilja og í 4. gr. að gera það án mismununar vegna stöðu sem innflytjandi. Frumvarpið nefnir samninginn ekki einu orði. Sömu vinnubrögðin í Ráðhúsinu Það er engin tilviljun að sömu hugmyndir skjóti upp kollinum á sama tíma í borgarstjórn sem er leidd af Sjálfstæðisflokki Reykjavíkur. Í lok september lögðu fulltrúar Miðflokksins til að túlkaþjónustu borgarinnar yrðu sett tímamörk og að fólk greiddi sjálft eftir hæfilegan aðlögunartíma. Rökin voru þau að kostnaður borgarinnar hefði þrefaldast, úr 55 milljónum króna árið 2020 í um 170 milljónir árið 2025. Á sömu árum tók borgin á móti stórum hluta þess fólks sem flúði stríðið í Úkraínu og ástandið í Venesúela. Umræðan í borgarstjórn sýndi hvert þetta stefnir. Hugmyndin var kynnt sem hagræðing en umræðan breyttist fljótt í almenna úttekt á því hvernig innflytjendur væru að sökkva samfélaginu. Meiri hluti samþykkti að tillagan lifi áfram og sé til umræðu innan stjórnsýslu. Sama orðalag, sama þriggja ára regla og sama danska fyrirmynd. Þetta er ekki fjármálastjórnun. Þetta er pólitísk aðferð til að kveikja enn meira á ótta við útlendinga og snúa því yfir í reikningsdæmi svo hægt sé að tala um útgjöld í stað fólks. Útlendingaandúð í málverndarbúningi Við skulum kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Þetta frumvarp og tillaga vernda ekki íslenskuna. Þau koma til með að fæla fólk frá heilbrigðisþjónustu, skólum og stjórnsýslu, einmitt þeim stöðum þar sem það heyrir íslensku og lærir hana. Ef markmiðið er að nota opinbert fé til að vernda íslenskuna er aðeins eitt svar: að fjárfesta í íslenskukennslu. Ef hið óyfirlýsta markmið er hins vegar að halda innflytjendum frá þjónustu, og þar með frá tungumálinu, er þetta ekki málstefna heldur útilokun. Að taka fagnandi við vinnuafli fólks og skattfé en halda því markvisst utan samfélagsins og skerða réttindi þess er ein versta tegund af aðskilnaðarstefnu og jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd. Vilji Alþingi og borgarstjórn í alvöru vernda íslenskuna er leiðin þekkt: Gera íslenskukennslu fullorðinna gjaldfrjálsa, eins og í Svíþjóð og Finnlandi. Veita launað námsleyfi til íslenskunáms, eins og Lúxemborg gerir með 200 stundum. Hrinda loks í framkvæmd tillögum skýrslunnar frá 2011 um menntaða og vottaða túlka. Íslenskan er nógu sterk til að taka á móti nýjum röddum. Hún er ekki nógu sterk til að lifa af stjórnmál sem kenna nýju röddunum að þegja. Höfundur er fyrrverandi þingkona og formaður fjölmenningarseturs sem hefur unnið að inngildingarstefnu og stefnu um eflingu íslenskunnar fyrir sveitarfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innflytjendamál Nichole Leigh Mosty Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar