Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 8. október 2026 08:47 Nýlega lagði Miðflokkurinn fram tillögu í borgarstjórn Reykjavíkur um að endurskoða reglur um túlkaþjónustu og skoða hvort setja eigi tímamörk á gjaldfrjálsa þjónustu. Tillögunni var vísað áfram til borgarráðs til meðferðar. Engin ný takmörkun hefur því tekið gildi. En umræðan vekur mikilvægar spurningar. Í greininni sem liggur til grundvallar málinu er rætt um vaxandi kostnað vegna túlkaþjónustu og hvort eðlilegt sé að fólk geti fengið slíka þjónustu árum eða áratugum saman án þess að læra íslensku. Það má ræða þá spurningu. En þá verður að vera alveg skýrt hvaða túlkaþjónustu er verið að tala um. Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál. Í lögum nr. 61/2011 kemur fram að íslenskt táknmál sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Í 13. grein laganna segir jafnframt að ríki og sveitarfélög skulu tryggja þeim sem þess þurfa þjónustu á íslensku táknmáli og að óheimilt sé að mismuna fólki eftir því hvaða mál það notar. Þess vegna er ekki sjálfgefið að hægt sé að fella táknmálstúlkun undir sömu reglur og túlkun erlendra tungumála. Ef sömu tímamörk yrðu látin gilda um hvort tveggja gæti það rekist á lögbundin réttindi táknmálsnotenda og jafnvel leitt til ólögmætrar mismununar. Táknmálstúlkun er ekki tímabundin brú þar til heyrnarlaus einstaklingur lærir annað tungumál. Hún getur verið nauðsynleg forsenda þess að hann geti átt full samskipti við stjórnvöld og fengið sömu þjónustu og aðrir. Það er því ekki hægt að setja alla túlkaþjónustu undir sama hatt. Raunar kemur fram í þeim kostnaðartölum sem hafa verið notaðar í umræðunni að kostnaður vegna táknmálstúlkunar sé ekki þar inni. Ef markmið borgarinnar er að ræða túlkun fyrir fólk sem hefur annað talað móðurmál en íslensku ætti það einfaldlega að koma skýrt fram. Þess vegna þarf borgarráð að svara einni einfaldri spurningu: Taka möguleg tímamörk á gjaldfrjálsri túlkaþjónustu á nokkurn hátt til íslensks táknmáls og táknmálstúlkunar? Ef svarið er nei ætti það að koma skýrt fram í afgreiðslu málsins. Ef svarið er já snýst málið ekki lengur aðeins um kostnað heldur um lögbundin tungumálaréttindi, jafnræði og aðgengi heyrnarlausra að samfélaginu. Íslenskt táknmál er íslenskt mál. Og aðgengi að því er ekki munaður. Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Handhafi viðurkenningar Málnefnd um íslenskt táknmál 2025. Hefur mikla þekkingu á táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum, leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál og verkefnastjóri með IPMA D-vottun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Nýlega lagði Miðflokkurinn fram tillögu í borgarstjórn Reykjavíkur um að endurskoða reglur um túlkaþjónustu og skoða hvort setja eigi tímamörk á gjaldfrjálsa þjónustu. Tillögunni var vísað áfram til borgarráðs til meðferðar. Engin ný takmörkun hefur því tekið gildi. En umræðan vekur mikilvægar spurningar. Í greininni sem liggur til grundvallar málinu er rætt um vaxandi kostnað vegna túlkaþjónustu og hvort eðlilegt sé að fólk geti fengið slíka þjónustu árum eða áratugum saman án þess að læra íslensku. Það má ræða þá spurningu. En þá verður að vera alveg skýrt hvaða túlkaþjónustu er verið að tala um. Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál. Í lögum nr. 61/2011 kemur fram að íslenskt táknmál sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Í 13. grein laganna segir jafnframt að ríki og sveitarfélög skulu tryggja þeim sem þess þurfa þjónustu á íslensku táknmáli og að óheimilt sé að mismuna fólki eftir því hvaða mál það notar. Þess vegna er ekki sjálfgefið að hægt sé að fella táknmálstúlkun undir sömu reglur og túlkun erlendra tungumála. Ef sömu tímamörk yrðu látin gilda um hvort tveggja gæti það rekist á lögbundin réttindi táknmálsnotenda og jafnvel leitt til ólögmætrar mismununar. Táknmálstúlkun er ekki tímabundin brú þar til heyrnarlaus einstaklingur lærir annað tungumál. Hún getur verið nauðsynleg forsenda þess að hann geti átt full samskipti við stjórnvöld og fengið sömu þjónustu og aðrir. Það er því ekki hægt að setja alla túlkaþjónustu undir sama hatt. Raunar kemur fram í þeim kostnaðartölum sem hafa verið notaðar í umræðunni að kostnaður vegna táknmálstúlkunar sé ekki þar inni. Ef markmið borgarinnar er að ræða túlkun fyrir fólk sem hefur annað talað móðurmál en íslensku ætti það einfaldlega að koma skýrt fram. Þess vegna þarf borgarráð að svara einni einfaldri spurningu: Taka möguleg tímamörk á gjaldfrjálsri túlkaþjónustu á nokkurn hátt til íslensks táknmáls og táknmálstúlkunar? Ef svarið er nei ætti það að koma skýrt fram í afgreiðslu málsins. Ef svarið er já snýst málið ekki lengur aðeins um kostnað heldur um lögbundin tungumálaréttindi, jafnræði og aðgengi heyrnarlausra að samfélaginu. Íslenskt táknmál er íslenskt mál. Og aðgengi að því er ekki munaður. Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Handhafi viðurkenningar Málnefnd um íslenskt táknmál 2025. Hefur mikla þekkingu á táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum, leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál og verkefnastjóri með IPMA D-vottun.
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar