Réttið upp hönd sem eruð á móti Gunnar Salvarsson skrifar 10. október 2026 14:32 Að ekki fari saman hljóð og mynd er frasi sem hefur verið svo ofnotaður að ég ætla ekki að bæta um betur. Það væri enginn bragur á því. En mig langar að ræða áleitna mótsögn sem hefur verið talsvert í umræðunni og fyrri margþvælda klisjan lýsir ágætlega. Málið snýst í grunninn um barneignir, fæðingarorlof og tímalengd milli fæðinga. Við hjónin eignuðumst tvo yngri syni okkar með 20 mínútna millibili. Við þurftum því aldrei að velta fyrir okkur hvort hæfilegt væri að hafa tvö, þrjú eða fjögur ár milli barna. Í dag, tæpum þremur áratugum síðar, er spurningin um tímann milli barneigna hins vegar orðin að fjárhagslegu reikningsdæmi fyrir ungt fólk sem langar að eignast börn. Hversu lengi þarf að hafa verið á vinnumarkaði? Hver verða réttindin í fæðingarorlofi? Og ef fyrsta barnið er komið og foreldra langar fljótlega í annað, geta reglur um fæðingarorlof þá virkað eins og refsing fyrir að hafa ekki beðið nógu lengi? Þarf að draga reiknivélina upp í rúm? Ef vandamál okkar Íslendinga væri offjölgun mætti líta á þetta sem minniháttar vandamál. En þessu er öfugt farið. Við eignumst alltof fá börn. Samfélagið þarf fleiri börn. Stjórnvöld og sveitarfélög þurfa að gera vel við barnafjölskyldur, hvetja til barneigna og fjarlægja þröskulda. Árið 2025 var frjósemi á Íslandi 1,56 börn á hverja konu, rétt eins og árið áður. Lægsta tala sem sést hefur. Til þess að þjóð viðhaldi sér til lengri tíma án aðflutnings þarf talan að vera um 2,1. Þessari þróun þarf að snúa við. Stjórnvöld segja að á Íslandi eigi að vera gott að eignast og ala upp börn. Ríkisstjórnin hefur jafnframt lýst því yfir að styrkja eigi afkomuöryggi fólks í fæðingarorlofi. Gott og vel. Úreltum og tálmandi reglum hefur hins vegar ekki verið breytt. Börn eftir pöntun Tvær greinar hafa á skömmum tíma birst hér á Vísi um sérkennilega og raunar afleita stöðu foreldra sem vilja eignast börn með stuttu millibili. Karítas Ólafsdóttir skrifaði fyrri greinina, „Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna“. Síðan skrifaði Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður greinina „Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs“. Ég er efnislega hjartanlega sammála báðum greinum. Fyrirsögn þeirrar síðari er hins vegar hæpin. Fæðingarorlofssjóður er ranglega gerður að blóraböggli. Hann starfar eftir lögum sem Alþingi hefur sett. „Börn eftir pöntun stjórnvalda“ væri nær lagi. Kjarni málsins er þessi: Samkvæmt núgildandi reglum geta foreldrar sem eignast börn með stuttu millibili orðið fyrir skerðingu á greiðslum í fæðingarorlofi. Skýringuna er að finna í því hvernig viðmiðunartímabil tekna er ákveðið. Svipaður vandi getur komið upp hjá ungu fólki sem er nýkomið úr námi og hefur ekki náð að byggja upp nægilega langa tekjusögu. Þetta eru ekki náttúrulögmál. Finnar hafa fundið leið Við erum ekki fyrsta þjóðin sem stendur frammi fyrir þessum vanda. Margar Evrópuþjóðir hafa leitað leiða til að auðvelda ungu fólki að eignast börn á tímum lækkandi fæðingartíðni. Finnar hafa fundið svar við einmitt því sem er aðfinnsluvert við íslensku löggjöfina. Í Finnlandi gildir sú regla að ef áætlaður fæðingardagur næsta barns er áður en eldra barnið verður þriggja ára geta greiðslur í fæðingarorlofi byggst á sama tekjugrunni og vegna fyrra barnsins, sé það hagstæðara fyrir foreldrana. Finnska tryggingastofnunin Kela tekur meira að segja dæmi um fjölskyldu sem eignast börn árin 2021, 2023 og 2025. Greiðslur vegna allra þriggja barnanna geta þá byggst á tekjunum sem lágu til grundvallar greiðslum vegna þess fyrsta. Hugsunin er einföld: Fæðingarorlof vegna eins barns á ekki að skerða réttindi foreldra þegar næsta barn kemur í heiminn. Þessa hugsun þarf að taka upp í íslenska kerfinu. Og spyrja má: Hvers vegna höfum við ekki þegar gert það? Hvað tefur Alþingi? Það athyglisverðasta við þessa umræðu er að bæði stjórnarþingmenn og þingmenn stjórnarandstöðunnar virðast sammála um þörfina á að fjarlægja tálmanir laganna og bæta kerfið. Fimm stjórnarþingmenn, með Rögnu Sigurðardóttur í broddi fylkingar, hafa lagt fram þingsályktunartillögu um endurskoðun á viðmiðunartímabili greiðslna í fæðingarorlofi. Þar er sérstaklega fjallað um foreldra sem eignast börn með stuttu millibili og fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Í þingræðu kallaði Ragna eftir því „að viðmiðunartímabili fæðingarorlofsgreiðslna verði breytt svo það endurspegli betur rauntekjur þeirra foreldra sem ráðast í það verkefni að eignast fjölskyldu“. Bryndís Haraldsdóttir og samflokksmenn hennar í Sjálfstæðisflokknum hafa hins vegar lagt fram frumvarp til lagabreytinga um sama viðfangsefni. Í grein sinni segir Bryndís að lagt sé til að foreldrar sem eignast annað barn innan tiltekins tíma haldi fyrri greiðsluviðmiðum, uppfærðum í samræmi við launaþróun, ef það er þeim hagstæðara. Vandinn er því ekki eingöngu á umræðustigi. Tillögur til úrbóta liggja þegar fyrir Alþingi. Málið hefur hins vegar þróast á dálítið sérkennilegan hátt. Þingsályktunartillaga stjórnarþingmannanna var fyrst lögð fram í apríl síðastliðnum. Þá var gert ráð fyrir að félags- og húsnæðismálaráðherra legði fram frumvarp eigi síðar en 1. maí 2027. Tillagan var ekki afgreidd. Hún var endurflutt á nýju þingi í september, en nú er fresturinn lengdur til 1. október 2027. Það er ekki eins og vandinn hafi minnkað á þessum mánuðum. En fresturinn til að leggja fram frumvarp hefur lengst um fimm mánuði. Tímabil óvissunnar lengist. Ragna vakti sjálf athygli á málinu í ræðu á Alþingi 22. september og sagðist vona að tillagan fengi góðar undirtektir í þingsal. Eftir lúsleit í þingskjölum og ræðum um málið hef ég ekki rekist á einn einasta þingmann sem hefur andmælt þeim breytingum sem hér eru til umræðu. Hvað segja Kristrún og Ragnar Þór? Hér vaknar spurning sem stjórnvöld þurfa að svara. Hvers vegna kemur ekki fram stjórnarfrumvarp þegar þingmenn stjórnarflokkanna hafa ítrekað kallað eftir breytingum og stjórnarandstaðan hefur þegar lagt fram frumvarp um sama viðfangsefni? Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var sjálf meðal flutningsmanna frumvarps um aukið afkomuöryggi foreldra árið 2023. Þar voru lagðar til breytingar á fæðingarorlofskerfinu, meðal annars til að bæta kjör tekjulágra foreldra. Það frumvarp tók ekki sérstaklega á þeim vanda sem hér er til umræðu. En afkomuöryggi ungra fjölskyldna hefur lengi verið henni hugleikið. Hver er afstaða hennar til þeirra breytinga sem nú eru til umræðu? Og hvað segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra? Hann kemur úr verkalýðshreyfingunni og hefur um árabil talað fyrir bættum kjörum og afkomuöryggi launafólks. Nú er hann í þeirri stöðu að geta sjálfur haft frumkvæði að lagabreytingum. Þingsályktunartillaga Rögnu felur raunar í sér að honum verði falið að undirbúa frumvarp. Ráðherrann þarf vitaskuld ekki samþykkt þingsályktunar til að hefja slíka vinnu. Ég veit ekki hvort kostnaðarmat hefur verið unnið og hvort kostnaður tefur málið. En eins og Bryndís bendir á getur það líka orðið samfélaginu kostnaðarsamt ef ungt fólk frestar barneignum eða hættir við að eignast fleiri börn vegna reglnanna. Hvað stendur þá í vegi fyrir því að málið verði afgreitt á þessu þingi? Er ágreiningur um útfærsluna? Er kostnaðurinn talinn of mikill? Eða er málið einfaldlega ekki nægilega ofarlega á forgangslista ríkisstjórnarinnar? Það væri fróðlegt að fá svör frá Kristrúnu og Ragnari Þór. Réttið upp hönd Það er auðvitað ekki hlutverk ríkisins að ákveða hversu mörg börn fólk eignast eða hvenær. Og enginn heldur því fram að breyting á einni reiknireglu í fæðingarorlofskerfinu muni ein og sér snúa við þeirri þróun að Íslendingar eignist sífellt færri börn. En ríkið getur breytt eigin reglum og stuðlað að því að ungt fólk þurfi ekki að fresta barneignum af fjárhagsástæðum. Þegar þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu virðast sammála um að breytinga sé þörf, af hverju þá ekki að einhenda sér í verkið? Vandinn er þekktur. Finnar hafa sýnt fram á að hann er leysanlegur. Tillögur til úrbóta liggja fyrir Alþingi. Þess vegna spyr ég: Réttið upp hönd sem eruð á móti. Höfundur er afi og bíður eftir fleiri barnabörnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar