Værum við jafn andvaralaus ef þorskurinn væri í húfi? Halla Hrund Logadóttir skrifar 11. október 2026 11:47 Myndum við sætta okkur við að stjórnvöld drægju nauðsynlegar úrbætur laga á langinn ef heilbrigði og framtíð íslenska þorskstofnsins, sem er grunnur að efnahag okkar, væru í húfi? Að þekktir gallar væru á eftirliti og stjórnsýslu, en málið biði vegna þess að erfitt væri að ná samstöðu? Ég held ekki. Við myndum krefjast skýrra svara, ábyrgðar og aðgerða. Sömu kröfur eigum við að gera þegar villtir laxastofnar og náttúra íslenskra fjarða eiga í hlut. Þekktir ágallar kalla á umbætur Í febrúar 2023 setti Ríkisendurskoðun fram 23 ábendingar um úrbætur á stjórnsýslu sjókvíaeldis. Niðurstaðan var alvarleg; stjórnsýsla og eftirlit höfðu ekki haldið í við vöxt greinarinnar. Jafnframt höfðu fleiri opinberar stofnanir sem koma að leyfisveitingaferlinu bent á ágalla í umgjörðinni. Nú, rúmum þremur árum síðar, þarf að liggja skýrt fyrir hvernig þessum ábendingum hefur verið fylgt eftir. Hvað hefur verið lagað? Hvað stendur enn út af? Hver ber ábyrgð á næstu skrefum og hvenær verður þeim lokið? Almenningur á rétt á heildstæðum svörum. Fyrirtækin, starfsfólk þeirra og samfélögin sem um ræðir eiga það líka skilið. Traust umgjörð verndar náttúruverðmæti og skapar jafnframt fyrirsjáanleika fyrir atvinnulífið. Skýrar reglur, öflugt eftirlit og markviss viðbrögð við frávikum eru forsenda þess að traust ríki til stjórnsýslu og eftirlits með greininni. Þess vegna er eftirfylgni ábendinganna sameiginlegt hagsmunamál, þótt menn greini á um æskilegt umfang sjókvíaeldis og framtíð þess. Ágreiningur leysir engan undan ábyrgð Lagareldisfrumvarpið varð ekki að lögum á síðasta þingi. Í svari atvinnuvegaráðuneytisins í lok september kom fram að það væri ekki á dagskrá yfirstandandi þings vegna forgangsröðunar annarra þingmála og að ákvörðun um endurflutning hefði ekki verið tekin. Ráðherra hafði jafnframt vísað til þess að samstaða hefði ekki náðst innan fiskeldisgreinarinnar um stuðning við frumvarpið. Ágreiningur um frumvarp getur verið réttmætur og sýnt að vanda þurfi betur til verka. Hann getur kallað á breytingar eða nýja útfærslu fyrir atvinnulíf, skýrari ábyrgð eða sterkari vernd náttúrunnar. En þótt eitt frumvarp nái ekki fram að ganga hverfur ekki skyldan til að bregðast við þekktum göllum. Hér eru langtímahagsmunir náttúru, samfélaga og atvinnulífs undir. Að bregðast ekki við er að bregðast öllum þessum aðilum og taka um leið óþarfa áhættu. Það er ábyrgðarleysi. Við erum vön að bregðast við athugasemdum Stundum er best að setja málið í annað samhengi til að sjá skýrar hvað þurfi að gera. Ef skipaskoðun gerði 23 athugasemdir við skip fengi það ekki haffærisskírteini fyrr en búið væri að gera úrbætur. Yfirvöld myndu ekki sætta sig við að eigandinn sendi það út á sjó og vonaði það besta, af því að það væri of mikið vesen að bregðast við. Ef eftirlit með þýðingarmikilli samgönguleið, líkt og brú yfir Þjórsá, leiddi í ljós margs konar galla myndum við ekki líta undan og vona það besta í umferðinni. Við myndum staldra við og bæta úr göllunum með öryggi vegfarenda í huga. Sama hlýtur að gilda um sjókvíaeldi; við bætum úr göllunum sem viðurkenndur eftirlitsaðili setur fram áður en að lengra er haldið. Það er skylda stjórnmálanna því valdið til laga- og reglugerðabreytinga liggur hvergi annars staðar. Ábyrgðin að gæta almannaheilla liggur hjá stjórnvöldum Hagsmunaaðilar eiga að hafa rödd og þekking þeirra skiptir máli. Ábyrgðin á að vega saman ólíka hagsmuni og gæta almannaheilla liggur hins vegar hjá stjórnvöldum. Nauðsynlegar umbætur geta ekki beðið þess að allir verði sammála um hvert einasta atriði. Þá væri ágreiningur orðinn að afsökun fyrir að bregðast ekki við. Við þurfum að horfa til allra þeirra verðmæta sem eru í húfi; atvinnu og byggðaþróunar, áherslu nærsamfélaga, villtra fiskistofna, heilbrigðra vistkerfa og annarrar nýtingar sem byggist á þeim. Ávinningur og áhætta falla ekki endilega sömu aðilum í skaut. Vönduð auðlindastjórnun krefst þess að þessir hagsmunir séu metnir saman og að langtímasjónarmið ráði för. Lögum girðingarnar áður en fénu er sleppt Í sveitinni lærði ég einfalt verkvit: Við lögum girðingarnar áður en fénu er sleppt á túnin. Sú vinna getur verið seinleg og kostað fyrirhöfn, en við vitum hvers vegna hún er nauðsynleg. Sömu hugsun þurfum við við nýtingu náttúruauðlinda. Umgjörðin verður að halda og eftirlitið að geta sinnt hlutverki sínu. Ég kalla eftir því að ríkisstjórnin geri á þessu þingi skýra grein fyrir því hvernig ábendingum Ríkisendurskoðunar hefur verið fylgt eftir og leggi fram tímasetta áætlun um þær úrbætur sem eftir standa. Þar sem lagabreytinga er þörf verður að leggja þær fyrir Alþingi. Ráðast þarf án tafar í þær úrbætur stjórnsýslu og eftirlit sem ekki krefjast lagabreytinga. Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til þess að ljúka þessu verki af ábyrgð og vona að þingheimur sameinist um verkefnið. Erfið mál kalla á þrautseigju, vandaða vinnu og skýrar ákvarðanir. Við gerum kröfur til fyrirtækjanna og starfsfólksins í greininni. Við verðum að gera sömu kröfur til okkar sjálfra. Vöknum og hefjumst handa. Verkið þolir ekki bið. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Hrund Logadóttir Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar