KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar 12. október 2026 09:47 Þegar alvarleg ásökun kemur fram um stofnanda samtaka sem starfa með börnum og ungmennum er eðlilegt að stjórn þeirra bregðist við. Það gerði KFUM og KFUK eftir útkomu bókar Guðmundar Magnússonar um séra Friðrik Friðriksson haustið 2023. En spurningin er hvernig brugðist var við, hvaða könnun fór fram og hvort opinber niðurstaða stjórnarinnar gekk lengra en gögnin báru með sér. Hvert var verkefnið? Í upphafi skýrslu sinnar segja Bjarni Karlsson og Sigrún Júlíusdóttir að þau hafi verið beðin um að ræða við þolendur eða vitni sem tengst gætu hugsanlegum brotum séra Friðriks og á þeim grundvelli, ásamt öðrum upplýsingum, setja fram ráðgefandi ályktun með tillögum um heppileg viðbrögð KFUM og KFUK. Þetta var því ekki lögreglurannsókn, rannsókn ákæruvalds eða málsmeðferð fyrir dómstólum. Hlutlægni rannsóknarinnar Björn Jón Bragason lögfræðingur og sagnfræðingur hefur bent á að Bjarni Karlsson hafi, áður en hann var formlega fenginn til verksins, komið fram opinberlega og lýst málinu með gildishlöðnu orðalagi. Það eitt sannar ekki að hann hafi ekki getað unnið faglega að verkefninu. En það gerir spurningu um hlutlægni og fyrirfram mótaða afstöðu eðlilega. Í máli þar sem niðurstaðan getur haft alvarleg áhrif á mannorð einstaklings – ekki síst manns sem hefur verið látinn í áratugi og getur því ekki borið hönd fyrir höfuð sér – hlýtur að mega spyrja hvort þeir sem safna og meta gögn hafi áður tekið opinbera afstöðu til málsins. Hvað var verið að verja? KFUM og KFUK hafði augljósa og eðlilega hagsmuni af því að sýna að félagið tæki öryggi barna og frásagnir um kynferðislegt ofbeldi alvarlega. Félagið er jafnframt háð trausti foreldra, félagsmanna og almennings. Því er réttmætt að spyrja hvort verkefnið hafi að einhverju leyti einnig verið krísustjórnun: Hvernig gat félagið brugðist við þannig að núverandi starf með börnum og ungmennum biði ekki tjón? Ég hef ekki séð gögn sem sýna að fjárhagslegir eða rekstrarlegir hagsmunir hafi ráðið niðurstöðunni og væri því rangt að fullyrða það. En eðlilegt er að spyrja hvaða áhættumat fór fram og hvernig það tengdist þeirri vinnu sem unnin var. Hafði framkvæmdastjórinn Tómas Torfason aðrar upplýsingar sem hann vldi ekki að kæmu fram? Var maðkur í mysunni? Frá „rýru“ til „hafið yfir skynsamlegan vafa“ Hér komum við að því sem mér finnst ein mikilvægasta spurning málsins. Skýrsluhöfundarnir lýsa rannsóknarefninu sem „rýru“. Af fimm heimildum felur aðeins ein í sér beina lýsingu á meintu broti frá fyrstu hendi. Niðurstaðan er sett fram á þann veg að „meiri líkur en minni“ séu á að séra Friðrik hafi gerst sekur um kynferðislega áreitni gagnvart drengjum. Talað er um “líkur” þannig að ljóst má vera að ekki er litið á neitt atvikanna sem sönnun þess að framkoma séra Friðriks hafi verið ámælisverð. Því sætir það furðu, að stjórn KFUM og KFUK gekk mun lengra í opinberri yfirlýsingu 20. desember 2023, segir að fram séu komnir vitnisburðir „hafnir yfir skynsamlegan vafa“ um að séra Friðrik hafi farið yfir mörk í samskiptum við drengi og áreitt þá kynferðislega. Þetta er augljóslega ofsagt – og vekur áleitnar spurningar um hvernig slíkt gat gerst. Hvað í þessum gögnum réttlætti að fara frá „meiri líkum en minni“ yfir í „hafið yfir skynsamlegan vafa“? Það er spurning sem stjórn KFUM og KFUK ætti að geta svarað. Ákvarðanir teknar áður en niðurstaðan lá fyrir Við þetta bætist annað sem vert er að hafa í huga. Strax 27. október 2023 boðaði Kolbrún Baldursdóttir, þá borgarfulltrúi Flokks fólksins, tillögu um að stytta séra Friðriks í Lækjargötu yrði fjarlægð. Styttuna gerði, eins og margir vita, einn af okkar mætustu myndhöggvurum Sigurjón Ólafsson sem þekkti séra Friðrik vel. Og að uppsetningu hennar stóð fjölmennur hópur úr röðum þekktasta fólks landsins, hvaðanæva úr þjóðfélaginu. Tillagan var lögð fram í borgarráði 2. nóvember og síðar í sama mánuði eða 23. nóvember samþykkti borgarráð að styttan yrði tekin niður. Hraði afgreiðslunnar ber sannast sagna mikinn keim óðagots. Þetta gerist sem sagt áður en niðurstaða þeirrar vinnu sem Bjarni Karlsson og Sigrún Júlíusdóttir unnu fyrir KFUM og KFUK lá fyrir og áður en stjórn félagsins birti yfirlýsingu sína 20. desember. Kolbrún er nú alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður og 6. varaforseti Alþingis. Í ræðu á Alþingi 16. september 2026 sagði hún sjálf í öðru máli: „Það er lágmarkskrafa að gagnrýni byggi á staðreyndum.“ Það er góð og mikilvæg meginregla sem hún hefði sannarlega mátt vera búin að uppgötva þegar hún snauð af upplýsingum í ókönnuðu máli gekk fram fyrir skjöldu gegn minningu séra Friðriks. Þegar kjörnir fulltrúar leggja fram tillögur eða taka afstöðu í málum sem geta haft veruleg áhrif á mannorð einstaklinga hlýtur sama krafa að gilda: að staðreyndir séu kannaðar og rök liggi fyrir áður en niðurstaða er dregin. Sú krafa á ekki síður við í borgarstjórn en á Alþingi. Hún á allsstaðar við, því í réttarríki eins og Íslendingar vilja góðu heilli að land okkar sé – er það grundvallarregla að menn séu saklausir nema sök hafi veri sönnuð. Má ekki vænta þess að Kolbrún biðjist afsökunar á frumhlaupi sínu? Og hvað um samvisku stjórnar KFUM og KFUK í málinu? Opinberar ákvarðanir um minningu séra Friðriks voru teknar áður en sú athugun sem síðar var vísað til sem grundvallar niðurstöðu KFUM og KFUK lá fyrir. Og þeirri rannsókn lauk með einungis afar hæpinni staðhæfingu um “líkur” en alls ekki að ámælisvert athæfi hefði sannast. Allt var málið líka fjarstæðukennt frá upphafi í augum þeirra sem þekktu til séra Friðriks í áratugi. Ósamræmi í minningunni Í þessari umræðu er sérstaklega áleitin spurningin um hvernig KFUM og KFUK hefur farið með minningu stofnanda síns eftir 2023. Samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað voru myndir og ýmsar minningar um séra Friðrik teknar niður í félagsheimilinu við Holtaveg í Reykjavík. En á sama tíma hefur stytta hans staðið við Friðrikskapellu í Vatnaskógi, þar sem félagið rekur sumarbúðastarf. Ef þetta er rétt vaknar einföld spurning: Hvaða meginregla réð því hvaða minningu um séra Friðrik skyldi fjarlægja og hvaða minning mætti standa? Spurning sem KFUM og KFUK getur svarað Nú eru tæp þrjú ár liðin. Það væri gagnlegt fyrir umræðuna ef stjórn KFUM og KFUK svaraði hvort hún sé ekki nú reiðubúin til að viðurkenna að of langt hafi verið gengið með orðalaginu sem fór lengra en niðurstaða athugenda málsins: „hafið yfir skynsamlegan vafa“. Að taka alvarlega og af skilningi frásögnum fólks um kynferðislegt ofbeldi og að gæta sanngirni gagnvart þeim sem sakaður er eru ekki andstæður. Góð stofnun á að geta gert hvort tveggja. Þetta er þriðja grein mín um málefni Sr Friðriks. Næsta grein er “ Hvar var rannsóknarblaðamennskan” Höfundur er einn af drengjum Sr Friðriks Friðrikssonar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar