Össur stendur með sundmönnunum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. október 2026 17:50 Össur Skarphéðinsson lagði orð í belg á samfélagsmiðlum. Vísir/Vilhelm Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra tekur upp hanskann fyrir sundkappana á Vopnafirði. Hann segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson mega við daglegum sundspretti og styður hann í málinu, svo lengi sem hráa hakkið verði eftir á bakkanum.
Þetta segir Össur í færslu á Faceboo þar sem hann dregur dár að viðbrögðum við sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku. Málið hefur verið til umfjöllunar frá því fyrir helgi og leitt til orðaskipta milli þingmanna og Björns Þorlákssonar, fjölmiðlamanns á Samstöðinni. Össur tekur afstöðu með sundfólkinu. „Ég er hins vegar á þeirri skoðun að Sigmundur Davíð þurfi verulega á því að halda – eins og fleiri bústnir kallar – að taka hressilegan sundsprett daglega. Þess vegna stend ég með honum gegn Samstöðinni í þessu máli,“ segir hann. Húsbrot og fyllerí Vísir fjallaði um sundferðina á föstudag, en RÚV hafði þá rætt við Þórarin Inga Pétursson, þingmann Framsóknar. Hann sagði hóp þingmanna og heimamanna hafa farið í laugina með leyfi sveitarstjórnarfulltrúa sem hefði leiðbeint þeim. Ferðin var farin eftir kynningu hjá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði. Stefán Guðnason, oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps, sagði hins vegar við RÚV að hann hefði brýnt fyrir sveitarstjórnarfólki að taka ekki þátt þegar hugmyndin kom upp. Jafnframt kom fram að heimamenn færu stundum í laugina utan opnunartíma og ekkert væri aðhafst ef umgengni væri góð. Umræðan hélt áfram um helgina. Björn spurði á Facebook hvort mannamót í kjördæmavikum væru fyrst og fremst svallveislur. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, mótmælti því að þingmenn væru settir undir sama hatt. Hún lýsti um leið sundferðinni sem húsbroti sem fimm þingmenn hefðu framið ölvaðir í vinnuferð. Það var mat hennar á atvikinu. Ekkert „skinny dip“ í gangi Ingibjörg Isaksen sagði við Vísi í dag að þingmennirnir hafi farið í laugina í fylgd heimamanna. Hún hafnaði því að stórglæpur hefði verið framinn og taldi verið að gera of mikið úr málinu. Hún vísaði jafnframt á bug að hópurinn hefði farið nakinn í laugina. Össur virðist ekki heldur sjá ástæðu til að amast við sundferðinni. „Mér er nokk sama þó hann geri það á óhefðbundnum tímum – svo fremi hann taki ekki hráa hakkið sitt með í laugina,“ segir hann.
Alþingi Vopnafjörður Norðausturkjördæmi Sundlaugar og baðlón Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira