Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar 15. október 2026 07:45 Skólarnir okkar eru stór hluti af daglegu lífi barna okkar, þar sem þau stunda nám, mynda vinatengsl og takast á við nýjar áskoranir. Það er okkar markmið að þeim líði vel og að þau geti gengið að því vísu að umhverfi þeirra sé öruggt. Hið sama á við um starfsfólkið sem sinnir mikilvægu starfi í þágu barnanna okkar á hverjum degi. Öryggi í skólum er því mál sem við þurfum að sinna af alúð og festu. Samfélagið breytist og með því geta komið nýjar áskoranir sem við þurfum að vera vakandi fyrir. Það kallar á reglulega endurskoðun á aðstæðum og vilja til að bregðast við þegar í ljós kemur að betur má fara. Úttektin þarf að leiða til úrbóta Gerð hefur verið vönduð og ítarleg úttekt á aðgengi og öryggi í grunnskólum Hafnarfjarðar. Hún gefur okkur mikilvæga mynd af stöðunni og sýnir að á mörgum stöðum getum við gert betur til að tryggja öryggi barna og starfsfólks. Þetta var mikilvæg vinna og niðurstöðurnar gefa okkur góðan grunn til að taka upplýstar ákvarðanir og beina fjármunum og verkefnum þangað sem þörfin er mest. Það er mikilvægt að við fylgjum þessum niðurstöðum eftir með markvissum hætti, metum hvaða úrbætur eru brýnastar og forgangsröðum verkefnum í samræmi við það. Jafnframt þarf að leggja fram skýra tíma- og aðgerðaáætlun, skilgreina ábyrgð á framkvæmd einstakra verkefna og tryggja að þeim sé fylgt eftir með þeim hætti að þau skili raunverulegum árangri. Það er einmitt í eftirfylgninni sem raunverulegt gildi úttektarinnar liggur. Niðurstöðurnar þurfa að verða grundvöllur markvissra aðgerða sem skila áþreifanlegum umbótum í skólaumhverfinu. Það er ekki nóg að greina stöðuna og ræða það sem betur má fara. Við þurfum að fylgja niðurstöðunum eftir af festu, sýna ábyrgð í verki og tryggja að sú vinna sem lögð hefur verið í úttektina skili sér í betri aðstæðum fyrir nemendur og starfsfólk skólanna okkar. Að bregðast við áður en eitthvað gerist Forvarnir snúast um að greina veikleika og bregðast við þeim áður en þeir leiða til alvarlegra atvika. Þegar við höfum upplýsingar um það sem betur má fara ber okkur að nýta þær til að draga úr áhættu og tryggja enn frekar öryggi. Við eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki til að ráðast í úrbætur sem þegar hefur verið bent á að séu nauðsynlegar. Það er einmitt tilgangur slíkrar úttektar að gefa okkur færi á að bregðast við í tíma. Ég tel að hér reyni á ábyrgð okkar sem kjörinna fulltrúa. Við þurfum að sjá til þess að fagleg vinna leiði til ákvarðana og að þeim ákvörðunum fylgi fjármagn og framkvæmd. Öryggi barna og starfsfólks þarf að hafa skýran sess þegar verkefnum bæjarins er forgangsraðað. Skýr ábyrgð og raunhæf áætlun Við í Framsókn leggjum áherslu á að niðurstöður úttektarinnar verði nýttar við gerð tímasettrar framkvæmda- og fjármögnunaráætlunar. Kostnaðarmeta þarf úrbæturnar og forgangsraða þeim eftir mikilvægi og áhættu. Jafnframt þarf að liggja fyrir hver ber ábyrgð á hverju verkefni og hvernig framkvæmdinni verður fylgt eftir. Það er eðlilegt að úrbætur séu misumfangsmiklar og að ekki sé hægt að ráðast í þær allar í einu. Þess vegna skiptir áætlunin máli. Hún þarf að sýna hvað verður gert fyrst, hvað tekur lengri tíma og hvenær áætlað er að hverjum verkþætti ljúki. Eftirfylgnin þarf síðan að vera regluleg. Við þurfum að geta séð hvað hefur verið gert, hvort verkefnin séu á áætlun og hvort bregðast þurfi við töfum eða breyttum forsendum. Þannig tryggjum við að málið haldi áfram að þokast í rétta átt. Börn og starfsfólk eiga að geta treyst því að öryggi þeirra sé tekið alvarlega. Það traust byggjum við upp með því að fylgja ábendingum eftir og bæta aðstæður þar sem þörf er á. Nú liggur úttektin fyrir. Næsta verkefni er að tryggja að hún skili sýnilegum úrbótum í skólum Hafnarfjarðar. Höfundur er bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar