Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar 14. október 2026 13:46 Rafrettur og nikótínpúðar hafa breytt landslaginu á undanförnum árum og stöndum við frammi fyrir nýrri og annarskonar lýðheilsuáskorun þegar kemur að þeim efnum. Fyrirliggjandi upplýsingar sýna að notkun hefur aukist meðal þeirra sem yngstir eru og þessi þróun ógnar bæði líkamlegum og andlegum þroska ungs fólks á mikilvægu mótunarskeiði. Á sama tíma blasir við okkur nýr og hættulegur veruleiki á samfélagsmiðlum þar sem áhrifavaldar og vinsælir tónlistarmenn eru í auknum mæli farnir að sýna reykingar og nikótínneyslu í sínu efni, það hefur bein áhrif á unga fólkið okkar. Þarna liggur kjarni vandans sem við þurfum að mæta af festu. Stefna Viðreisnar er skýr, við viljum skynsamlegt og fyrirsjáanlegt regluverk en hugnast ekki að beita íþyngjandi boðum og bönnum. Reynsla og rannsóknir sýna okkur skýrt að bann eitt og sér dregur sjaldnast úr líkum á neyslu – þvert á móti getur það gert vöruna enn meira spennandi og aðlaðandi fyrir ungmenni og er því bæði ómarkviss og óhófleg leið til þess að stýra neyslu. Viðreisn vill sjá heilbrigt umhverfi þar sem fyrirtæki starfa samkvæmt sanngjörnu regluverki. Áhersla okkar í þessu málum á að vera þar sem áhrifin eru mest, að sporna gegn duldum auglýsingum og þrýstingi frá samfélagsmiðlum ásamt öflugri fræðslu og forvörum. Þannig styrkjum við raunverulegar varnir ungmenna. Bann við litríkum umbúðum eða nikótíni með ávaxtabragði er ekki að fara að leysa vandann. Lausnin felst ekki í því að banna allt og loka augunum, heldur í því að treysta fólki fyrir eigin lífi og heilsu. Við þurfum að beina athyglinni að unga fólkinu okkar og valdefla þau. Með því að veita þeim réttu verkfærin erum við að styðja við sjálfstæði þeirra, þannig að ungir einstaklingar geti tekið upplýsta ákvörðun um að hafna nikótínneyslu, í stað þess að láta stjórnast af tískustraumum eða markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Þess vegna eiga fræðsla og öflugar forvarnir að vera í algjörum forgrunni. Eflum upplýsingalæsi og gagnrýna hugsun, einkum gagnvart samfélagsmiðlum, og fræðum ungmenni um áhrif nikótíns. Eigum við ekki að beina sjónum að hinum raunverulega vanda? Höfndur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra Sigurðardóttir Tóbak Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Rafrettur og nikótínpúðar hafa breytt landslaginu á undanförnum árum og stöndum við frammi fyrir nýrri og annarskonar lýðheilsuáskorun þegar kemur að þeim efnum. Fyrirliggjandi upplýsingar sýna að notkun hefur aukist meðal þeirra sem yngstir eru og þessi þróun ógnar bæði líkamlegum og andlegum þroska ungs fólks á mikilvægu mótunarskeiði. Á sama tíma blasir við okkur nýr og hættulegur veruleiki á samfélagsmiðlum þar sem áhrifavaldar og vinsælir tónlistarmenn eru í auknum mæli farnir að sýna reykingar og nikótínneyslu í sínu efni, það hefur bein áhrif á unga fólkið okkar. Þarna liggur kjarni vandans sem við þurfum að mæta af festu. Stefna Viðreisnar er skýr, við viljum skynsamlegt og fyrirsjáanlegt regluverk en hugnast ekki að beita íþyngjandi boðum og bönnum. Reynsla og rannsóknir sýna okkur skýrt að bann eitt og sér dregur sjaldnast úr líkum á neyslu – þvert á móti getur það gert vöruna enn meira spennandi og aðlaðandi fyrir ungmenni og er því bæði ómarkviss og óhófleg leið til þess að stýra neyslu. Viðreisn vill sjá heilbrigt umhverfi þar sem fyrirtæki starfa samkvæmt sanngjörnu regluverki. Áhersla okkar í þessu málum á að vera þar sem áhrifin eru mest, að sporna gegn duldum auglýsingum og þrýstingi frá samfélagsmiðlum ásamt öflugri fræðslu og forvörum. Þannig styrkjum við raunverulegar varnir ungmenna. Bann við litríkum umbúðum eða nikótíni með ávaxtabragði er ekki að fara að leysa vandann. Lausnin felst ekki í því að banna allt og loka augunum, heldur í því að treysta fólki fyrir eigin lífi og heilsu. Við þurfum að beina athyglinni að unga fólkinu okkar og valdefla þau. Með því að veita þeim réttu verkfærin erum við að styðja við sjálfstæði þeirra, þannig að ungir einstaklingar geti tekið upplýsta ákvörðun um að hafna nikótínneyslu, í stað þess að láta stjórnast af tískustraumum eða markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Þess vegna eiga fræðsla og öflugar forvarnir að vera í algjörum forgrunni. Eflum upplýsingalæsi og gagnrýna hugsun, einkum gagnvart samfélagsmiðlum, og fræðum ungmenni um áhrif nikótíns. Eigum við ekki að beina sjónum að hinum raunverulega vanda? Höfndur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi.
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar