„Þetta situr náttúrulega í manni“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2026 12:27 Miklar skemmdir urðu í óveðrinu á Siglufirði. Jónatan Valby Íbúi á Siglufirði segir bæjarbúa standa saman í áfallinu eftir óveðrið í gær. Fjölskyldan hafi fengið skilaboð á skilaboð ofan um húsaskjól en þakið á húsi hennar fauk af í heilu lagi. Óljóst er hvenær þau geti gist í húsi sínu á ný.
Mikið tjón varð á Siglufirði vegna ofsaveðursins í gær. Öflugar vindhviður riðu yfir bæinn um hádegisbilið og þá fuku þök af þremur húsum samtímis. Björgunarsveitir af öllum Tröllaskaganum komu til bjargar. „Það er ekkert grín þegar svona þök fara af í heilu lagi í kringum íbúðarhúsahverfi. Þökin fara á loft, falla niður og splundrast og dreifast um hverfið. Um tíma þá óskuðum við eftir að fólk væri bara ekki á ferðinni á Siglufirði en það er alveg ljóst að það er gríðarlegt tjón á sumum stöðum í bænum,“ sagði Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð í samtali við fréttastofu í morgun. Björgunarsveitarmenn að störfum á Siglufirði.Landsbjörg Karen Birgisdóttir var heima hjá sér á Siglufirði um hádegisbil í gær, þar sem hún býr ásamt manni og tveimur börnum, þegar hún heyrði gríðarlegan hvell. Hún segist fyrst hafa haldið að gluggar í húsinu hefðu brotnað, þar til hún sá skyndilega til himins í gegnum þakið. „Efri hæðin er svo til bara ónýt, þannig að það þarf að rífa það allt út og byggja þakið upp á nýtt. Það fór í heilu lagi upp í næstu götu,“ sagði Karen í hádegisfréttum Bylgjunnar. Fjölskyldan fékk húsaskjól í nótt hjá foreldrum Karenar. Nú þurfi að bíða eftir mati frá tryggingum en ljóst að fjölskyldan getur ekki dvalið í húsi sínu á næstunni. Mikinn hvell gerði á Siglufirði í gær.Landsbjörg „Það var nú bara afskaplega lítið sofið. Þetta situr náttúrulega í manni og maður var bara að reyna að hugsa um að við myndum hafa þetta svona sem eðlilegast fyrir börnin. Ég er með eina einn þriggja ára og eina sjö ára,“ segir Karen. Hvenær vonist þið til að geta farið að gista aftur heima hjá ykkur? „Það er rosalega erfitt að segja. Eigum við að reyna að vona fyrir jólin? Ég held að það yrði kraftaverk sko,“ bætir hún við. Þak fauk af þremur húsum á Siglufirði í óveðrinu í gær.Jónatan Valby Karen segir íbúa á Siglufirði standa saman í áfallinu. „Það hefur komið algjörlega í ljós hversu yndislega gott við höfum það hérna. Samfélagið hefur svo aldeilis brugðist við. Við erum að fá skilaboð ofan á skilaboð þar sem er verið að bjóða okkur húsnæði og aðstoð og símtöl.“ „Við stöndum saman á svona þegar að svona stendur á. Það er alveg á hreinu.“
Fjallabyggð Veður Björgunarsveitir Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira