Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar 16. október 2026 08:03 Vopnaútköll sérsveitar ríkislögreglustjóra rúmlega sjöfölduðust á ellefu árum. Á sama tíma breyttist mönnun sveitarinnar lítið. Þetta kemur fram í nýrri greiningu sem Varða, hugveita um þjóðaröryggi, birti nýverið. Útköllin fóru úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025. Vorið 2025 voru 46 sérsveitarmenn starfandi, jafnmargir og árið 2018. Tillögur Vörðu til umbóta eru einfaldar: að tryggja fjármögnun til að manna þau tíu stöðugildi sem þegar hafa verið heimiluð og vinna samhliða heildarmat og langtímaáætlun um mönnun og uppbyggingu sveitarinnar. Birta þarf niðurstöður matsins eftir fremsta megni svo almenningur og þingheimur geti tekið upplýstan þátt í umræðu um öryggismál. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Fjölmiðlar tóku niðurstöðurnar til umfjöllunar og Karl Steinar Valsson, yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra, staðfesti að mikið álag væri á sérsveitinni. Hann kallaði eftir fjármagni til að fullmanna þau stöðugildi sem þegar hafa verið heimiluð og orðaði stöðuna skýrt í viðtali við RÚV: „Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt. Það kostar að búa í öruggu samfélagi.“ Í viðtali við mbl.is síðar sama dag sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra stöðuna vera miður og taldi að sérsveitin gæti hæglega verið 70-80 manns. Hún kynnti einnig áform um að fækka lögregluumdæmum úr níu í þrjú og byggja upp stærri og burðugri embætti. Að hennar mati fara stærri lögregluembætti og öflugri sérsveit vel saman. Samstaða virðist ríkja um að álagið hafi aukist og að sérsveitin þurfi að stækka. Nú þarf þessi samstaða að skila fjármagni og fjölgun sérsveitarmanna. Dómsmálaráðherra sagði sjálf á Alþingi að fjárlagafrumvarpið rúmaði ekki fjölgunina í núverandi mynd. Fjárveitingar til ríkislögreglustjóra hækka að mestu í takt við almennt verðlag og þar sést ekkert svigrúm til að fjölga sérsveitarmönnum. Verði frumvarpið samþykkt óbreytt verða tíu heimiluð stöðugildi áfram án tryggðrar fjármögnunar. Alþingi þarf því að bæta fjármögnun þeirra inn í fjárlög næsta árs. Annars lýkur umræðunni með viðtölum, fyrirsögnum og almennri samstöðu um að gera þurfi betur, án þess að nokkuð breytist. Stöðugildin tíu eru fyrsta skrefið. Stjórnvöld þurfa jafnframt að vinna langtímaáætlun um uppbyggingu sérsveitarinnar og annarra vopnaðra viðbragða lögreglunnar. Þar þarf að meta mannafla, þjálfun, búnað og verkaskiptingu sérsveitarinnar og aðgerðasveita lögregluumdæmanna með hliðsjón af breyttu skipulagi lögreglunnar og öryggisumhverfi. Áætlunin þarf að ná yfir fleiri en eitt fjárlagaár, tryggja fyrirsjáanlega fjármögnun og tengjast heildstæðri varnar- og öryggisstefnu Íslands. Þar þarf einnig að meta hvaða fjárfestingar falla undir 1,5 prósenta ramma Atlantshafsbandalagsins. Viðbrögðin við greiningu Vörðu sýna að stjórnvöld og lögreglan sjá vandann. Nú þurfa orðin að skila sér í ákvörðunum. Fjármagna þarf heimiluðu stöðurnar og hefja vinnu við langtímaáætlunina. Höfundur er rannsakandi og greinandi hjá Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar