Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Eiður Þór Árnason og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 15. október 2026 17:39 Tillagan skipti þingi ASÍ upp í fylkingar og var farið fram á leynilega atkvæðagreiðslu. Vísir/anton brink Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins nú síðdegis. Alls féllu 60 prósent atkvæða með tillögunni en tvo þriðju þurfti til að ná lagabreytingunni í gegn sem jafngildir 66 prósentum atkvæða.
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og mætti mikilli andstöðu frá Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar. „Núna þurfum við bara að einbeita okkur að þessum málefnum en auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi. Ég held að allir sem halda að hér sé einhvern veginn hægt að sameina fólk með einhverjum hætti undir þessum aðstæðum. Ég er ekki alveg viss um það. En við erum hins vegar hérna með næstum því 300 manns og gríðarlega mikil og öflug málefnavinna sem hefur átt sér stað í dag,“ sagði Halla eftir að niðurstöður voru kunngjörðar. Halla Gunnarsdóttir telur að ferlið hafi ekki beint verið sameinandi.Vísir/Anton Brink Halla og Sólveig bjóða sig báðar fram til fyrsta varaforseta ASÍ á morgun. Sólveig hafði gefið út að Efling myndi endurskoða stöðu sína innan ASÍ ef varaforsetum yrði fækkað. Sólveig sagði tillöguna koma úr ranni VR og vera tilraun Höllu til að sölsa undir sig völd innan ASÍ. Halla hefur alfarið hafnað því. Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þingi ASÍ þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Tillagan var felld í laganefnd með 25 atkvæðum á móti 23 en var í kjölfarið lögð fyrir þingið. Farið var fram á að leynileg atkvæðagreiðsla færi fram um tillöguna í stað hefðbundinna handauppréttinga og var fallist á það. Tafði þetta niðurstöðuna. Sagan blóði drifin Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, talaði um það áður en niðurstöðurnar voru kynntar að hann teldi mikilvægt að þingið kæmi út sem ein heild af þinginu og að ekki yrði ráðist í þessa breytingu að þessu sinni. Vilhjálmur Birgisson á þinginu í dag.Vísir/Anton Brink Finnst þér þessi tillaga um að fækka varaforsetum ekki til þess gerð að lægja öldurnar? „Nei, alls ekki,“ segir Vilhjálmur. Þegar Efling, eitt stærsta verkalýðsfélag landsins með sína 56 fulltrúa á þingi ASÍ, sé ósátt þá sé eðlilegt að „hlusta og reyna frekar að leysa þetta innbyrðis og skoða hvort við getum fundið lausn á málunum.“ „Ef menn lesa sögu Alþýðusambandsins þessi 110 ár þá er hún blóði drifin ef þannig má að orði komast. Það eru átök í verkalýðshreyfingunni, ég ætla ekki að segja á hverju ári en oft á tíðum, og við þurfum að hafa þroska til þess að vinna okkur út úr þeim vandamálum því að hagsmunirnir eru miklu, miklu meiri og með samstöðunni náum við betri árangri.“ Eftirfarandi viðtöl voru tekin áður en niðurstöðurnar voru kynntar: Fréttin hefur verið uppfærð.
ASÍ Vinnumarkaður Stéttarfélög Tengdar fréttir Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Náið var fylgst með þingfundi á öðrum degi 47. þings Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í dag en þar var tekist á um einkar umdeilda tillögu sem varðaði það hvort varaforsetum ASÍ yrði fækkað úr þremur í einn. Tillagan var að endingu felld. 15. október 2026 16:18 Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Það ræðst í dag hvort varaforsetum Alþýðusambands Íslands verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir. Niðurstaða um varaforsetaembættið gæti haft áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ. 15. október 2026 12:00 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira
Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Náið var fylgst með þingfundi á öðrum degi 47. þings Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í dag en þar var tekist á um einkar umdeilda tillögu sem varðaði það hvort varaforsetum ASÍ yrði fækkað úr þremur í einn. Tillagan var að endingu felld. 15. október 2026 16:18
Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Það ræðst í dag hvort varaforsetum Alþýðusambands Íslands verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir. Niðurstaða um varaforsetaembættið gæti haft áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ. 15. október 2026 12:00