„Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. október 2026 19:20 Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. vísir/Anton Brink „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi. Ég held að allir sem að halda að hér sé hægt að sameina fólk með einhverjum hætti undir þessum aðstæðum, ég er ekki alveg viss um það.“
Þetta sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í samtali við fréttastofu skömmu eftir að tillaga miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um að fækka varaforsetum sambandsins úr þremur í einn var felld. Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni, sem gerir um 60 prósent gegn 40. Tvo þriðju atkvæða þurfti til að lagabreytingin myndi ganga í gegn. „Von í hjarta og baráttugleði“ Átakalínur hafa myndast milli VR og Eflingar undanfarið vegna tillögunnar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sakað Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um að reyna að sölsa undir sig völd með tillögunni. Halla hafnar því alfarið. Sólveig sagði það koma til greina í gær að Efling segði sig hreinlega úr ASÍ og vísaði til ágreinings og deilna sem hafi staðið yfir til lengri tíma. Halla segir það að einhverju leyti jákvætt að málinu sé nú lokið og því mögulegt að einbeita sér að efnisatriðum og málefnunum. „Núna þurfum við náttúrulega bara að einbeita okkur að þessum málefnum en auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi. Ég held að allir sem að halda að hér sé hægt að sameina fólk með einhverjum hætti undir þessum aðstæðum, ég er ekki alveg viss um það. En við erum hins vegar hérna með næstum því 300 manns og það er gríðarlega mikil og öflug málefnavinna sem hefur átt sér stað í dag,“ segir hún og heldur áfram: Klippa: Atburðarásin ekki verið sameinandi „Mínir VR-fulltrúar sem hafa verið inni í málefnanefndunum koma þaðan með von í hjarta og baráttugleði. Ég held að það skipti bara mestu máli að einblína á það. Því það er þetta þing sem veitir miðstjórn og forystu Alþýðusambandsins og þessum þremur varaforsetum, eftir atvikum, umboðið og leiðsögn um hverju við eigum að vinna næstu tvö ár.“ Vongóð fyrir morgundeginum Á morgun fer fram atkvæðagreiðsla þar sem næsti forseti ASÍ verður valinn. Þar eru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, í framboði. Einnig verða greidd atkvæði um varaforseta ASÍ. Sólveig Anna og Halla Gunnarsdóttir eru þar báðar í framboði til fyrsta varaforseta. Halla hefur þó tekið fram að hún muni draga framboð sitt til baka fari svo að Arnaldur beri sigur úr býtum. Spurð hvort hún sé vongóð fyrir morgundeginum segir hún: „Við auðvitað byrjum á því að kjósa forseta og það fer aðeins eftir niðurstöðunni þar hvernig hitt raðast. En ég er bara vongóð um að við förum út af þessu þingi með fína forystu. Mér finnst mikilvægast að valdið liggi í miðstjórn og þar mun vera góður hópur sem ég hlakka til að vinna með.“ Ljóst að það þurfi að skoða skipulag ASÍ Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, kvaddi sér til máls á þinginu í umræðunum um tillöguna og hvatti þá 300 fulltrúa sem voru þar saman komnir til að greiða atkvæði gegn tillögunni. Spurður um það segir hann: „Ég var að rökstyðja það að við verðum að skoða skipulagið heildstætt. Hluti af því er að ákveða hversu marga varaforseta við ætlum að vera með. Ef við ætlum að vera með þrjá þá skilgreinum við hvert hlutverk þeirra er. Mér finnst alveg kominn tími til þess að við skoðum það hvort við formgerum einn, tvo eða þrjá varaforseta og þá í leiðinni hvort að þessir formenn stærstu félaga verði einhver valdahópur innan hreyfingarinnar. “ Finnbjörn Hermannsson er fráfarandi forseti ASÍ.vísir/anton brink Finnbjörn segir að þrátt fyrir stíft andrúmsloft á fundinum og átök um þetta tiltekna mál hafi fundur dagsins verið góður heilt yfir. „Við erum búin að vera með málefnavinnu í dag og það hefur verið mikill samhljómur meðal okkar fulltrúa um þau málefni sem við erum að fjalla um. Við erum að fjalla um framtíðina og hvernig við ætlum að taka á móti þessum breytingum á vinnumarkaðnum. Við höfum líka tekist á um lög Alþýðusambandsins. Við lögðum tillögur fyrir þingið sem hafa tekið góðum breytingum. Við erum mjög vel nestuð til næstu tveggja ára.“ Hann segir það nú í höndum miðstjórnar ASÍ að skoða skipulag sambandsins heilt yfir. Hann bendir á að meirihlutinn hafi verið hlynntur því að fækka varaforsetum. Spurður hvort hann sé vongóður um að Sólveig Anna dragi það til baka að draga Eflingu úr ASÍ segir Finnbjörn: „Efling mun að sjálfsögðu skoða sína stöðu og hvernig þau hafa mest áhrif á kjör fólks sem er í Eflingu. Ég efast ekkert um það að þau komist að því að það er miklu sterkara að vera innan ASÍ. Ég á von á því að það verði niðurstaða þeirra.“
ASÍ Vinnumarkaður Stéttarfélög Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira