Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar 16. október 2026 11:48 Í grunninn er vandinn sá að hluti sveitarstjórnarfólks á sveitarstjórnarfundi Múlaþings nr. 72 er ekki með málefni sjókvíaeldisins í Seyðisfirði á hreinu og hver skylda þeirra er í sameinuðu sveitarfélagi og heimastjórnum. Ofanflóðamat Strandsvæðaskipulag átti að vinna skv. landsskipulagsstefnu og skipulagslögum. Sú var ekki raunin í Seyðisfirði. Það vita allflestir, sem búa eða búið hafa á Seyðisfirði að það er bannað að byggja mannvirki þar sem snjóflóð hafa ítrekað fallið. Úr 1. mgr. 4. gr. laga nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum „Sveitarstjórnir í sveitarfélögum þar sem ofanflóð hafa fallið á byggð eða nærri henni eða hætta er talin á slíku skululáta meta hættu á ofanflóðum.“ Lögin voru virt meðan Seyðisfjörður var kaupstaður. Endurmat ofanflóða í Seyðisfirði á vefsíðu Veðurstofu Íslands(hér eftir VÍ) var gert 2019 eftir að garðarnir efst í Bjólfinum voru fullgerðir. Vestdalseyri, sem er óbyggt svæði utan þéttbýlis var einnig metið. Í matinu má sjá að A, B og C hættulínur voru dregnar og ná allar í sjó fram. Fjallið ofan Vestdalseyrar er með minni halla en fjallið ofan við Selstaðavík. Þegar VÍ vann ofanflóðamatið hafði ráðherra skipað hættumatsnefnd skv. lögum. Í henni voru tveir heimamenn. Umhverfisráðherra, Bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar og starfsmaður VÍ skrifuðu upp á matið eins ber að gera til að það öðlist gildi. Staðbundið ofanflóðamat Við vinnslu strandsvæðaskipulags skilaði VÍ inn umsögn 2022 vegna ofanflóðahættu. Í henni kom fram að breyta þyrfti strandsvæðaskipulaginu því það stæðist ekki áhættumat. Ekki var farið að kröfu VÍ og skipulagið var samþykkt án ofanflóðamats. Kaldvík bað VÍ um staðbundið ofanflóðamat í Selstaðavík eingöngu vegna mannslífa við eldiskvíar í janúar 2023. Við það fór matið í Selstaðavík af C svæði niður fyrir B-línu og telst standa hættumatið án þess að mannvirkið allt sé metið. Að sögn VÍ er matið ekki gert skv. ákvæði úr strandsvæðaskipulagi. Sörlastaðavík var á þessum tíma talin líklega utan B-svæðis og stæðist því líklega viðmið. Kaldvík lét gera ofanflóðamat fyrir Sörlastaðavík 2025. Þá kom í ljós að innri hluti svæðisins er á B-svæði og stenst ekki viðmið. Sveitarfélagið Múlaþing(hér eftir MÞ) á þetta land en skv. sveitarstjórnarfundinum hefur sveitarstjórnarfólk meirihlutans engan áhuga á að fara að lögum og kalla sjálf eftir ofanflóðamati fyrir svæðin, sem eldið á að vera í, og tryggja með því nærsamfélagið, umhverfið, náttúruna og villta laxinn. Meirihluti sveitarstjórnar MÞ verður að svara íbúum Seyðisfjarðar því, af hverju er ekki farið að lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum eftir að sameinað sveitarfélag, Múlaþing varð til. VÍ verður líka að svara af hverju svona mikla breyting varð á afstöðu stofnunarinnar til hættumata frá umsögn VÍ í september 2022 til janúar 2023 þegar Kaldvík óskar eftir staðbundnu ofanflóðamati. Engin breyting er á lögum og reglugerðum, sem getur skýrt þá miklu stefnubreytingu VÍ á þessu 4 mánaða tímabili. Byggingarleyfisfarsinn Byggingarleyfi fyrir sjókvíar, hvaðan kemur það spurði sveitarstjórnarmaður Framskóknarflokksins á fundinum og bætti við að hann vissi ekki til þess að neitt sem flýtur á sjónum þurfi byggingarleyfi. Honum til upplýsingar kom ákvörðun um byggingarleyfi frá HMS. Einnig var krafa um mannvirkjaleyfi í umsókn FA frá 2018. HMS gefur út byggingarleyfi á hafi utan netlaga. Í mannvirkjalögum er markmið laganna: „Að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með því að kröfum um öryggi mannvirkja og heilnæmi sé fullnægt.“ Skilgreining á mannvirki í lögunum er: „Hvers konar jarðföst, manngerð smíð …… Mannvirki á eða í hafi, vötnum og ám sem hafa fasta staðsetningu teljast einnig til mannvirkja samkvæmt lögum þessum “. Sjókvíaeldisstöð er því ekki bara einhver kví sem flýtur á sjó. Það væri ekki gott að eiga von á lausum kvíum á hafnarsvæði Seyðisfjarðar að samevrópskri höfn. Kæri sveitarstjórnarmaður. Sjókvíaeldisstöð er mannvirki, sem þarf byggingarleyfi, vegna fastrar staðsetningar við akkerin. Þær eiga ekki að fljóta stjórnlausar og vera þar með farartálmi í öruggum siglingaleiðum. Ég vona að ofangreint svari spurningu þinni en ráðlegg þér samt að opna tengilinn hér að ofan og kynna þér málið. Strandsvæðaskipulag og stórstraumsfjara Strandsvæðaskipulag í Seyðisfirði fer inni í netlög. Þar á það ekki að vera skv. skipulagsstefnu og lögum. Mæling stórstraumsfjöru er grundvallar atriði við vinnu skipulags utan netlaga. Mælingin lá ekki fyrir við gerð strandsvæðaskipulagsins. HMS beindi því til Kaldvíkur að láta mæla stórstraumsfjöruborð vorið 2025. Mælingin sýndi eins og áður hefur komið fram að skipulagið er inni í netlögum sjávarjarða. Í framhaldi af mælingunni sendi lögmaður HMS Kaldvík póst og sagðist ekki geta unnið áfram með byggingarleyfisumsóknina að svo stöddu því hún væri á valdsviði tveggja skipulagsaðila. Með póstinum er HMS að segja að MÞ hefur ekki bara umsagnarrétt heldur lagalegan ákvörðunarrétt innan netlaga. Lögmaður HMS sagði í öðrum pósti að Kaldvík þyrfti að sækja um byggingarleyfi til MÞ. HMS svarði VÁ í pósti í september 2025 að Kaldvík hefði ekki enn sótt um byggingarleyfi hjá MÞ og fyrirtækið hefði ekki ákveðið hvort það yrði gert. Skipulagsvald innan allra netlaga sjávarjarða í Seyðisfirði er hjá MÞ. Ofanflóðamat í Seyðisfirði er einnig á ábyrgð sveitarfélagsins. Á sveitarstjórnarfundinum fór sveitarstjórnarfólk meirihlutans því með rangt mál. Heimastjórn „Markmið heimastjórna er að tryggja áhrif og aðkomu heimamanna á hverjum stað að ákvörðunum sem varða þeirra nærumhverfi.“ Hjarta formanns heimastjórnar Seyðisfjarðar slær ekki beinlínis í takt við meirihluta íbúanna. Hann telur enga þörf á að fá samantekt á gögnum og yfirlitskort með öllum upplýsingum á einum stað. Það er lagaleg skylda MÞ að kalla eftir ofanflóðamati sem sýnir kort þar sem A, B og C hættumatslínur eru dregnar. Það var ekki annað að heyra en að hann teldi þetta allt hið besta mál og búið væri að kæra. Það er ekki gott samfélag þar sem íbúar verða að standa í kærumálum í mörg ár. Heimastjórnir voru stofnaðar til að tryggja að hver staður fengi að halda sinni sérstöðu og þróast og blómstra á sínum forsendum. Það er erfitt að hlusta á sveitarstjórnarmanninn frá Djúpavogi lýsa skoðunum sínum á sjókvíaeldi og vanþekkingu á þeim lögum sem eldið byggir á. Hafrannsóknarstofnun gefur út burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar, MAST rekstrarleyfi , UOS starfsleyfi og HMS byggingarleyfi á hafi utan netlaga. Sveitarstjórnarmanninum vafðist tunga um tönn við þessa upptalningu og segja má að almennt hafi hann talað af nokkrum hroka um þetta stóra deilumál, sem skekur samfélagið í MÞ. Sveitarstjórnarmaður VG er vel inni í málinu og stóð sig af mikilli prýði við að reyna að koma sveitarstjórninni í skilning um að MÞ fer ekki að lögum í nálgun sinni á sjókvíaeldismáinu í Seyðisfirði. Er ekki eðlilegt að sveitarfélagið Múlaþing vandi betur til verka í sameinuðu sveitarfélagi og virði sérstöðu og vilja allra byggða og jafnræðis- og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga? Höfundur er stjórnarmaður í VÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Guðmundsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar