Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar 17. október 2026 08:31 Í kjölfar kjördæmaviku á alþingi, þar sem þingmenn kjördæma heimsækja sveitarstjórnir, stofnanir og fyrirtæki og í framhaldi af ný framlögðum fjárlögum fyrir árið 2027, vakna ýmsar spurningar. Mörg verkefni eru þess eðlis að að þingmenn kjördæma geta staðið saman að finna lausnir, óháð því hverjir sitja í meiri- eða minnihluta. Eitt stærsta álitaefnið sem fram kom eru fyrirhugaðar hækkanir á ferðaþjónustuna, hækkun virðisauka á baðlón, hækkun gistináttagjalds en ekki síst upptaka svokallaðs náttúru- og innviðagjalds. En það gjald á einvörðungu að leggja á þrjá staði í sveitarfélaginu Bláskógabyggð eða Þingvelli, Geysi og Gullfoss. Svo sérkennilega sem það nú hljómar. Sveitarfélögin í Uppsveitum Árnessýslu og Flóa mótmæltu því harðlega og gagnrýndu með málefnalegum hætti og rökum á fundi okkar þingmanna í kjördæmavikunni. Önnur sveitarfélög í kjördæminu tóku undir þessa gagnrýni á skatta og gjaldahækkanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Þá hefur ferðaþjónustan á svæðinu og SVÞ staðið fyrir fundum sem þessi áform eru harðlega gagnrýnd. Skiptir ferðaþjónustan máli Í nýlegri skýrslu Byggðastofnunar um tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008-2025, kemur fram að heildar atvinnutekjur árið 2025 voru 238 milljarðar af einkennandi greinum ferðaþjónustunnar og hafa aldrei verið hærri. Atvinnutekjur í ferðaþjónustu samsvöruðu um 11% allra atvinnutekna landsmanna. En vægið er ólíkt eftir svæðum og sveitarfélögum. Þannig var hlutdeild ferðaþjónustunnar um 57% í Mýrdalshreppi, um 52% í Skaftárhreppi og um 40% í Bláskógabyggð!! (þar sem hið nýja gjald- Bláskógaskatturinn- á að leggjast á). Þá var hlutdeild ferðaþjónustunnar í atvinnutekjum yfir 20% í Sv. Hornafirði, Rangárþingi eystra og Suðurnesjabæ. Hin nýju gjöld eiga að skila 3-4 milljörðum vegna hækkunar vsk á baðlón og um 5 milljörðum vegna hins nýja Bláskógarskatts auk þess hækkar gistináttagjald ofl. Ef við tökum dæmi um skipulagðan ferðahóp upp á 20 manns, sem hefur (hingað til) varið þremur dögum í uppsveitum. Heimsótt ferðamannastaði, borðað á veitingahúsum, gist á hótelum eða gistiheimilum og farið í eitt af þremur baðlónum uppsveitanna. Þá þýða þessar hækkanir fyrir þennan hóp, yfir 140 þúsund! auknar álögur vegna næsta árs. En ferðin var bókuð í fyrra. Verð fyrir 2027 og jafnvel 2028 liggja fyrir hjá ferðaheildsölum. Afleiðingin af ófyrirséðum skatta og gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar verða augljóslega þær að þessir hópar hætta við heimsókn í uppsveitir og dvelja bara fleiri daga með suðurströndinni eða í Reykjavík. Spara sér 140 þúsund plús. Það er því mjög skiljanlegt uppnámið sem er í ferðaþjónustunni í uppsveitum Árnessýslu. Er þetta rétta leiðin? Verðbólgan er enn nær 6%, atvinnuleysi fer vaxandi, hagvöxtur minnkar og vextir fara með himinskautum. Er þá skynsamlegt að hækka skatta og gjöld á atvinnugreinar sem standa undir 20-40 jafnvel nær 60% af atvinnutekjum einstaklinga í einstökum sveitarfélögum? Svarið er augljóslega nei. Á áðurnefndum fundi með sveitarfélögum Uppsveita Árnessýslu og Flóa kom fram að nú þegar, vegna hárra vaxta, verðbólgu og skatta- og gjaldahækkana ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks Fólksins, væru framkvæmdaaðilar að hætta við uppbyggingu. Skila lóðum og fara fram á endurgreiðslur. Áhyggjurnar leyndu sér ekki í máli þeirra. Við í þingflokki Framsóknar höfum greint áhrif fjárlaga á heimilin í landinu. Reikningurinn sem ríkisstjórnin sendir ungu barnafólki með 2 börn er yfir 340 þúsund ef heildarlaunin eru um 1.5 millj á mánuði. Og það sem er stórundarlegt að fólk með lægri tekjur tekur meiri skell. Hlutfallslega hærri reikning frá jafnaðarstjórninni. Nýjustu vendingar vegna kjarasamninga (að kröfu stéttarfélagana og samhljóða tillögum okkar í Framsókn) laga stöðuna aðeins, en ekki nóg. Hvað er til ráða Ég hef óskað eftir fundi meðal þingmanna Suðurkjördæmis til að fara yfir þessa stöðu og nokkur önnur mál. Mál sem ég tel að við þingmenn kjördæmisins verðum að standa saman um að verja samfélögin í okkar kjördæmi. Varðandi náttúru- og innviðagjaldið eða Bláskógaskattinn tel ég einboðið að við krefjumst ítarlegs áhættu- og áhrifamats á ferðaþjónustuna í uppsveitum Árnessýslu og á sveitarfélögin vegna væntra minni tekna, minni umsvifa. Ef ríkisstjórnin dregur ekki þessi áform til baka, verður þingið með aðstoð samfélagsins alls, umsagna frá sem flestum er málið varða, að finna aðrar skynsamlegri leiðir. Skynsamlegast í ljósi efnahagsástands er að hætta við fyrirhugaðar hækkanir. Ef niðurstaðan verður engu að síður sú að hækka vsk á baðlón er nauðsynlegt að seinka gildistöku til 2028 til að tryggja fyrirsjánleika. Varðandi hið nýja gjald finnst mér við fyrstu hugsun að skynsamlegast væri að kalla það “þjóðgarðagjald” og leggja á alla þjóðgarða og friðlýst svæði í eigu opinberra aðila og innleiða það samhliða öflugri markaðssetningu á hinu hreina Íslandi. Landinu okkar allra. Höfundur er þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Sundlaugar og baðlón Verðlag Ferðaþjónusta Sigurður Ingi Jóhannsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar