Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Lovísa Arnardóttir skrifar 17. október 2026 07:40 Það verður rigning og hvasst víða í dag. Vísir/Anton Brink Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag þegar næsta lægð gengur yfir landið. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að við Suður-Grænland sé alldjúp og víðáttumikil lægð sem stjórni veðrinu hjá okkur í dag. Það verði vaxandi sunnan- og suðaustanátt, hvassviðri eða stormur síðdegis með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands.
Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð sunnan roki og mjög snörpum vindhviðum, en slíkir vindar geta valdið foktjóni. Því hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun fyrir Breiðafjörð og gildir hún fram á kvöld. Í viðvörun segir að spáð sé suðaustan og sunnan 18-28 m/s og að hvassast verði á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geti farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki er á staðbundnu foktjóni. Búast má við talsverðri rigningu. Annars staðar er gul viðvörun í gildi á sama tíma. Samkvæmt hugleiðingum fara skil lægðarinnar austur yfir land í nótt og þá snýst í allhvassa eða hvassa suðvestanátt með skúrum. Svo kemur ný lægð í kjölfarið á morgun og þá gengur í sunnan- og suðvestan storm eða rok með rigningu, einkum sunnan- og vestantil á landinu. Á mánudag á að lægja smám saman, en áfram er búist við vætusömu veðri. Verst á veðrið að vera við Breiðafjörðinn. Vísir/Vilhelm Geti komið til vegalokanna Á vef Vegagerðar segir að varað sé við miklum sviptivindum á norðanverðu Snæfellsnesi frá hádegi og fram á kvöld. Allt að 40–45 m/s þegar verst láti. Þá eigi einnig að vera byljóttur vindur á Vestfjörðum og undir kvöld megi nefna í Skagafirði, milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, í Fljótum, Eyjafirði vestanverðum og í Ljósavatnsskarði. Varað er við því að vegna appelsínugulrar viðvörunar geti frá hádegi í dag komið til einhverra lokana á vegum með stuttum fyrirvara vegna mikils vinds. Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Gengur í sunnan- og síðar suðvestan 18-25 m/s með rigningu, talsverð úrkoma sunnan- og vestantil á landinu. Hiti 6 til 11 stig. Á mánudag: Suðvestan 10-18 í fyrstu, en lægir síðan. Rigning eða skúrir, hiti 4 til 10 stig. Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda. Smáskúrir eða slydduél vestantil seinnipartinn og styttir upp austanlands um kvöldið. Kólnandi veður. Á miðvikudag: Suðlæg átt og bjart með köflum, en skúrir eða slydduél við suðvestur- og vesturströndina. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en um eða undir frostmarki inn til landsins. Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt, úrkomulítið og svalt en dálítil slydda eða snjókoma um tíma norðaustanlands. Á föstudag: Útlit fyrir norðaustanátt með éljum.
Veður Færð á vegum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira