Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Agnar Már Másson skrifar 18. október 2026 13:04 Þorgerður ræddi um Ólaf Ragnar og „Rússagælur“ á Sprengisandi. Samsett Mynd Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kveðst hafa áhyggjur af því að áhrifamenn í íslensku samfélagi séu orðnir „Rússagælur“ og bendir í því samhengi á Miðflokksmenn og Hannes Hólmstein Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor og Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta. „
Það eru komnar Rússagælur víða í samfélaginu. Mér finnst það bara ferlegt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í viðtali á Sprengisandi í dag. „Mér finnst ferlegt að sjá að [Ólafur Ragnar Grímsson] fyrrum forseti Íslands skuli taka undir með [rússneska utanríkisráðherranum Sergei] Lavrov sem er að gagnrýna NATO fyrir að vera með eftirlitsaðgerðir, Arctic Sentry, sem er gríðarlega mikilvægt mál fyrir okkur Íslendinga,“ segir hún og vísar til þess að Ólafur Ragnar, sem er stofnandi Hringborðs norðurslóða, hafi deilt grein Lavrovs um öryggismál á Norður-Atlantshafi. Ólafur sagði á X að grein Lavrovs væri lykilskjal fyrir alla þá sem hefðu áhuga á norðurslóðum og alþjóðamálum. „Að einn helsti talsmaður nei-hreyfingarinnar fari strax og tali í rússnesku sjónvarpi, gapi eitthvað þar,“ segir hún og vísar þá væntanlega til Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar stjórnmálafræðiprófessors sem fór í viðtal á rússneska ríkismiðlinum Russia Today til að greina niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Evrópusambandið. „Og að við séum gagnrýnd fyrir það, ég sérstaklega og utanríkisráðuneytið, að kalla til okkar rússneska sendistarfsmenn hér til þess að standa með Þjóðverjum,“ heldur hún áfram. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fór í september að fordæmi margra annarra Evrópuríkja og kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á fund til að gera athugasemdir við framferði Rússlands og fjölþáttaaðgerðir landsins í kjölfar drónaatviks í Þýskalandi í lok ágúst. Sífellt „hoss“ gagnvart Rússum „Það er bara verið að draga þetta fram svolítið blygðunarlaust og þetta veldur mér áhyggjum út af því að við áttum okkur alveg á því hvaðan ógnirnar stafa. Og við þurfum að standa vörð um okkar lýðræði og okkar frelsi, okkar upplýsingaflæði, mannréttindi og það er ekki beint að koma frá þessari átt,“ segir hún. Kveðst hún engu að síður bera mikla virðingu fyrir Ólafi þó að erfitt sé að horfa sífellt upp á „þetta hoss gagnvart Rússum“. Þorgerður Katrín og tók á móti Selenskí ásamt föruneyti á Keflavíkurflugvelli í dag.Forsetaskrifstofa Úkraínu „Mér fannst erfitt að upplifa á sínum tíma að árið 2014 – þá var ráðist á Úkraínu inni í Krím – að þáverandi forseti, Ólafur Ragnar, gagnrýndi Norðmenn fyrir það að gagnrýna Rússa harkalega fyrir innrásina í Krím. Mér fannst líka erfitt að upplifa það að árið 2023 að hann hafi ýjað að því að Austur-Evrópuþjóðirnar hefðu ekki átt að svona ýja að því að þær hefðu ekki átt að fá aðgang að NATO. Þetta voru fullvalda þjóðir,“ bætir Þorgerður við. „Og hvað var það fyrsta sem þeir gerðu? Að sækja um aðild að Evrópusambandinu og NATO til þess að tryggja öryggi sitt. Og bara af því að það myndi hugsanlega trufla Pútín þá mættu þeir ekki vera hluti af NATO.“ Hún segir ríkisstjórnina standa með Úkraínu. Miður að heyra Miðflokksmann gera lítið úr ógn Rússa Þorgerður ræddi einnig um ákvörðun forvera síns, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, um að loka skrifstofu íslenska sendiráðsins í Rússlandi. „Það voru ákveðnar ógnir gagnvart starfsmönnum,“ segir Þorgerður. „Og mér fannst miður að heyra það hvert til að mynda Miðflokkurinn er kominn þar sem ég heyri þingmann í pontu þingsins eiginlega gera grín að öryggismálum íslenskra starfsmanna, að gera gys að því að rússneskir njósnarar eða starfsmenn rússnesku ríkisstjórnarinnar séu að fara inn á heimili íslenskra starfsmanna. Mér finnst það ekkert gamanmál,“ segir hún. Þorgerður nefnir engan Miðflokksmann á nafn en nýlega vakti varaþingmaðurinn Hilmar Garðars Þorsteinsson athygli í ræðustól Alþingis þar sem hann gagnrýndi utanríkisstefnu Íslands og sérstaklega viðhorf stjórnvalda til Rússlands. Hilmar sagði utanríkisstefnuna „virðast vera þannig að ef komið er auga á eitthvert óréttlæti í heiminum er farið af stað og gripið til hörðustu aðgerða sem völ er á, jafnvel umfram aðrar vestrænar þjóðir.“ Þorgerður heldur áfram: „Ég held að þetta hafi verið snúin staða sem Þórdís Kolbrún stóð frammi fyrir. Hún ákvað að kalla [sendiráðsstarfsmenn] heim. Ég styð þá ákvörðun,“ segir hún og svarar aðspurð að hún hefði sennilega gert slíkt hið sama hefði hún verið í sporum Þórdísar.
Sprengisandur Rússland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira