Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar 17. október 2026 13:02 Árið 2021 samþykkti Alþingi farsældarlögin undir forystu Ásmundar Einars Daðasonar fv. mennta- og barnamálaráðherra með stuðningi úr öllum flokkum. Loforðið var skýrt. Barn sem þarf stuðning á að halda, ber að fá hann snemma, á réttum stað og án þess að fjölskyldan þurfi að berjast við kerfið. Ríkisstjórnin ætlar nú að svíkja það loforð. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 fellur niður 1.100 milljóna króna árlegt framlag ríkisins til sveitarfélaga vegna laganna. Afleiðingarnar eru þegar komnar í ljós. Kópavogsbær segist þurfa að leggja niður stöðu ráðgjafa farsældar í leikskólum og þrjú stöðugildi í barna- og fjölskylduteymi. Bærinn varar við rofi í þjónustu og auknu álagi á barnavernd. Þetta gerist um allt land og þetta er pólitísk ákvörðun.Ábyrgð felur í sér forgangsröðunFramsókn vill ábyrgð í ríkisfjármálum. En ábyrgð felst ekki í því að senda reikninginn til barna. Hún felst í forgangsröðun og ríkisstjórnin hefur forgangsraðað rangt.Það sparar ekkert að skera niður snemmtækan stuðning. Kostnaðinum er bara frestað og hann vex. Barn sem þar nauðsynlega hjálp í leikskóla getur því miður orðið að barni sem þarf barnavernd síðar. Að skera niður snemmtækan stuðning er eins og að slökkva á brunavarnarkerfinu til að spara rafmagn. Rannsóknir sýna að því fyrr sem barn fær aðstoð, því líklegra er að hægt sé að koma með raunverulegan stuðning. Eitt af því sem einkennir finnska menntakerfið er nákvæmlega þetta, þ.e. markviss snemmtækur stuðningur. Þetta hefur skilað miklu fyrir finnska menntakerfið og er grunnurinn að þeirra árangri. Ég hef fylgst vel með þróunarverkefnum sem ganga út á snemmtækan stuðning og það er magnað að sjá árangurinn.Peningarnir eru til1,1 milljarður er innan við þúsundasti hluti útgjalda ríkisins. Það vantar ekki peninga, það vantar vilja. Hér má nefna að hægt er að setja þak á aðkeypta ráðgjöf og sérfræðiþjónustu ráðuneyta og stofnana. Ríkið eyðir háum fjárhæðum á hverju ári í skýrslur og ráðgjafa. Þann kostnað má lækka án þess að nokkur missi þjónustu.Það á að tryggja lögbundið framlag til barna áður en fé er tekið frá fyrir óljós verkefni síðar. Viðvörun innan úr stjórnarliðinu. Í vikunni sagði Jón Gnarr sig úr þingflokki Viðreisnar og nefndi sérstaklega ágreining um málefni barna. Þegar stjórnarþingmaður getur ekki lengur setið í eigin þingflokki vegna þessa málaflokks segir það allt sem segja þarf. Ríkisstjórnin hefur misst sjónar á málaflokki barna.Við verðum að standa með börnumVið leggjum til að framlagið verði tryggt í fjárlögum 2027 og fjármagnað með forgangsröðun, ekki nýjum lántökum. Framsókn byggði þetta kerfi í þverpólitískri sátt. Við munum ekki horfa þegjandi á að Farsæld barna verði rifið niður. Börn geta ekki beðið eftir betri tíð í ríkisfjármálum. Æska þeirra er núna. Höfundur er formaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Barnavernd Lilja Dögg Alfreðsdóttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framsóknarflokkurinn Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar