Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Smári Jökull Jónsson skrifar 17. október 2026 20:01 Inga Sæland segir að fjármagnið verði hærra en fyrst var tilkynnt um. Vísir/Anton Brink Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið.
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur hundruð fimmtíu og fimm milljónum í námsgagnagerð. Námsgagnaskortur hefur síðustu mánuði verið mikið gagnrýndur og sagði formaður þróunarsjóðs námsgagna í kjölfar tilkynningar ráðherra að hún óttaðist að fjármagnið myndi ekki rata rétta leið. Að loknum ríkisstjórnarfundi í gær sagði Inga Sæland að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvernig fénu yrði varið. „Nei, nei, það er ekki gert og það er algjörlega bara í samráði við okkur inni í menntamálaráðuneytinu og ég hef það sem ráðherra mitt að segja, það náttúrulega liggur alveg ljóst fyrir og ég vil líta til landa þar sem eru afburðanámsgögn og við höfum samanburð frá öðrum löndum og við bara tileinkum okkur þar sem okkur gengur best og er talið að það séu bestu námsgögnin.“ Sjá einnig: Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Reyna að fá sem mest fyrir peninginn Hún segir að reynt verði að fá sem mest fyrir peninginn. „Það kemur mjög svo til greina að þýða erlendar bækur og það kemur líka mjög svo til greina að taka inn tækni sem við þekkjum sem heitir gervigreind og láta hana grunnvinna kannski eitthvað og annað slíkt. Og ég sé fyrir mér að við fáum jafnvel mun meira fyrir peninginn eftir en áður.“ Upphæðin hærri Inga segir að áhersla verði lögð á svokallaðar stem-greinar, fræðigreinar á sviði verkfræði, raunvísinda, tækni, tölvunarfræði og náttúruvísinda. Upphæðin verði hærri en áður var tilkynnt, gildi fyrir næsta ár og sé inni í fjárlögum. „Við leggjum líka áherslu á að koma með námsgögn inn í STEAM-greinarnar okkar sem er í rauninni algjörlega í samfellu við atvinnustefnu ríkisstjórnar. Við erum að leggja ríkari áherslu á STEAM-greinar þannig að þetta verða um 700 milljónir, hátt í 700 milljónir þegar upp er staðið. Þetta verða 455 milljónir í annað eins STEAM,“ sagði Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Gervigreind Tengdar fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni. 11. október 2026 19:21 Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Af sjö fjölmennustu sveitarfélögum landsins komu nemendur í Kópavogi og Reykjavík hvað best út úr PISA-könnuninni. Öll sveitarfélögin voru samt sem áður undir meðaltali OECD. 8. október 2026 11:55 Spreyttu þig á PISA-spurningunum Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára. 17. september 2026 08:00 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira
„Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni. 11. október 2026 19:21
Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Af sjö fjölmennustu sveitarfélögum landsins komu nemendur í Kópavogi og Reykjavík hvað best út úr PISA-könnuninni. Öll sveitarfélögin voru samt sem áður undir meðaltali OECD. 8. október 2026 11:55
Spreyttu þig á PISA-spurningunum Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára. 17. september 2026 08:00