Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar 18. október 2026 07:32 Fyrir helgi bárust fréttir af því að heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, hafi ákveðið að tryggja fjármagn í áframhaldandi bólusetningar á ungabörnum gegn RS vírusnum. Þetta eru auðvitað frábærar fréttir enda þekkt að RS veiran getur lagst mjög þungt á börn á fyrsta aldursári. Sem móðir drengs sem fæddist núna í apríl var ég ákveðin í því að þiggja bólusetninguna. Það kom þó ekki til þess. Bólusetning gegn RS býðst nefnilega ekki börnum sem fædd eru í apríl. Yfirvöld telja ekki þörf á því. En hvernig má það vera, ætli vírusinn ráðist í manngreiningarálit? Börn sem fæðast á skilgreindu RS tímabili, október til mars, fá boð um bólusetningu ásamt þeim sem ekki hafa náð sex mánaða aldri fyrir 1. nóvember, það eru börn fædd 1. maí og út september. Börn sem fædd eru á þessu 30 daga millibilstímabili, í apríl, eru ekki talin þurfa aukna vörn gegn vírusnum, enda augljóslega reginmunur á því að fæðast 30. apríl eða 1. maí, eða hvað? Þá er það ekki svo að öll lönd hafi sama háttinn á, þvert á móti. Í Bandaríkjunum er t.a.m. miðað við að börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir RS vírusnum fyrstu átta mánuðina, þá telur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) að ávinningur geti verið af bólusetningu barna allt að 12 mánaða. Skýr svör óskast Eins og áður segir skilgreinir embætti landlæknis RS tímabilið frá október til mars. Það þýðir þó ekki að veiran láti ekki á sér kræla aðra mánuði ársins, það sýna raunar tölur embættisins sjálfs um staðfestar greiningar. Smit koma upp allt árið um kring þótt þau séu sannarlega flest yfir vetrarmánuðina. Eðlilega vakna því upp spurningar um hversu vel föst dagsetning bólusetningartímabilsins endurspeglar raunverulega smithættu ungra barna. Ef sonur minn hefði fæðst 11 dögum fyrr eða 12 dögum síðar hefði hann fengið aðgang að þeirri vörn sem bólusetningin veitir. Ég kalla eftir skýringum á því hvers vegna ákveðið var að fara þessa leið, að undanskilja aðeins einn fæðingarmánuð. Var það hugsunarleysi? Það er þá auðvelt að leiðrétta. Eru til ítarlegar greiningar sem sýna fram á að börn fædd í apríl veikist ekki alvarlega ef þau fá vírusinn? Eða er þetta kannski aðeins fjárhagsleg ákvörðun sem verður þess valdandi að foreldrar þessara u.þ.b. 300 barna sem fædd eru í apríl fá ekki val um að þiggja bólusetninguna? Nú er haustið gengið í garð og fyrsti vetur lítilla kríla fram undan. Það er ekki of seint að bregðast við. Látum börnin njóta vafans. Höfundur er móðir aprílbarns. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bólusetningar Heilbrigðismál Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar