Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2026 21:03 Ármann segir þjónustuna nýtast þeim sem til dæmis eru uppi á hálendi og ekki í símasambandi. Vísir/Vilhelm og Apple Frá því í sumar gátu iPhone-notendur sem eiga iPhone 14 eða nýrri sent SMS á Neyðarlínu séu þeir á svæði sem ekkert símasamband er á og geta þannig nálgast Neyðarlínuna í gegnum gervihnött.
Ármann Gestsson, varðstofustjóri og yfirmaður neyðarsímsvörunar hjá Neyðarlínunni, segir að í stuttu máli virki það þannig að ef fólk dettur algjörlega úr símasambandi og netsambandi þá komi upp tákn á símann sem tákni gervihnött og ef það reyni að hringja neyðarsímtal þá færist fólk yfir í svokallað Apple SOS alarm-ham. „Þá ertu í sambandi við okkur í gegnum gervihnetti og með SMS.“ Símarnir finni bestu leiðina Hann segir að nýjustu símarnir finni alltaf besta mögulega sambandið. „Áður fyrr voru það GSM-sendarnir en núna ef þú ert í Wi-Fi-sambandi þá hringirðu í gegnum router,“ segir hann og að fólk viti ekkert endilega hvernig það er að hringja í hvert sinn þó að það geti séð það á símanum meðan á símtalinu stendur. Hann segir ekki algengt að fólk sendi SMS á neyðarlínuna en þessi þjónusta sé virk og hafi verið notuð í sumar. Það hafi verið skráð um tuttugu tilfelli eða svo. „Það er þar sem er ekki símasamband, það er uppi á hálendinu aðallega,“ segir hann og að þessi tuttugu tilfelli hafi varðað allt frá sprungnum dekkjum upp í stærri slys. Hann segir erfitt að telja tilfellin nákvæmlega því þau séu ekki vel dekkuð með gervihnettina og það geti liðið nokkuð á milli þess sem þau heyra í fólki þegar það færist á milli staða en í hverju tilfelli geti verið um að ræða fimm til tíu SMS. „Það getur alveg dreifst yfir langan tíma, eins og þetta eru erfiðir staðir uppi á hálendi. En lykilatriðið er að við fáum staðsetninguna með.“ Óhindrað útsýni til himins Um er að ræða þjónustu sem kallast á ensku SOS via Satellite og er hægt að nota í öllum iPhone 14 og nýrri tegundum. Á vef Apple segir um þjónustuna að ef fólk hringi í Neyðarlínuna eða reyni að senda henni SMS-skilaboð en nái ekki sambandi vegna þess að það er á svæði án farsíma- og Wi-Fi-sambands reyni iPhone-síminn að tengjast neyðarþjónustunni um gervihnött. En til að tengjast gervihnetti þarf fólk að vera utandyra með óhindrað útsýni til himins og sjóndeildarhringsins. Samskipti um gervihnött eru öðruvísi en þegar skilaboð eru send eða móttekin í gegnum farsímanet. Á vef Apple kemur einnig fram að ef fólk lendir í bílslysi, dettur eða er meðvitundarlaust geti síminn eða úrið, Apple Watch, greint það og sent sjálfvirka tilkynningu til Neyðarlínunnar um gervihnött sé fólk utan farsíma- og Wi-Fi-sambands. Á vef Apple er að finna ítarlegar leiðbeiningar um hvernig á að stilla símann áður en haldið er á svæði þar sem ekkert símasamband er svo að hægt sé að nýta þjónustuna en þessi þjónusta er einungis í boði í ákveðnum löndum. Skilyrði er að vera með nýjasta iOs stýrikerfið svo að það virki. Að frumkvæði Apple Þjónustan var sett í loftið á Íslandi þann 23. júlí á þessu ári. Ármann segir að þetta sé að frumkvæði Apple en í samstarfi við Neyðarlínuna. „Þeir bara nálguðust okkur á sínum tíma og spurðu hvort við hefðum áhuga á að taka þátt í að innleiða þetta, og við vorum alveg til í það og svo ári seinna var þetta komið. Þannig að þetta er í rauninni reyndar bara Apple sem er að gera þetta en þeir þurfa náttúrulega að fá leyfi og tengingar frá okkur til að gera þetta.“ Spurður hvort það komi til greina að útfæra fyrir Android eða Google tæki segir hann frumkvæðið verða að koma frá þeim. Neyðarlínan sé í sambandi við þá en þetta hafi ekki enn komið til tals.
Fjarskipti Apple Almannavarnir Slökkvilið Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira