Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar 19. október 2026 07:30 Íslenskt skólakerfi stendur frammi fyrir áskorunum sem við þurfum að mæta. Niðurstöður alþjóðlegra mælinga á borð við PISA vekja eðlilega áhyggjur af námslegri stöðu íslenskra nemenda í lesskilningi, stærðfræði og náttúruvísindum sem hefur hrakað verulega á undanförnum árum. Á sama tíma glíma kennarar við aukið álag og sífellt fjölbreyttari nemendahóp. Við þessar aðstæður er eðlilegt að við spyrjum okkur: Hvernig getum við best stutt við nemendur og kennara til að ná betri árangri? Þar er að mörgu að hyggja, t.d. þarf að stórefla vandaða námsgagnaútgáfu og létta af kennurum þeirri byrði að þurfa sjálfir að verja stórum hluta vinnutíma síns í að útbúa námsefni. Huga þarf að samsetningu nemendahópa, innra og ytra mati og efla til muna íslenskukennslu barna með annað móðurmál til að auka jöfnuð meðal barna eins og við í Samfylkingunni lögðum til í borgarstjórn á dögunum. Mörg þessara viðfangsefna og fleiri eru ávörpuð í áherslum Kennarasambands Íslands sem kynntar voru á dögunum sem grundvöll að víðtæku samtali í samfélaginu og er mikilvægt að við tökum sem flest þátt í því samtali með lausnamiðað upplegg. Í þessu samhengi umbóta í menntamálum eru mikil tækifæri fólgin í því að nýta betur gagnreyndar aðferðir í skólum. Það er inntak nýrrar tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar um að skóla – og frístundaráð samþykki þá stefnu að grunnskólar borgarinnar leggi sérstaka áherslu á að nýta gagnreyndar kennsluaðferðir í undirstöðugreinum s.s. íslensku, stærðfræði og náttúruvísindum með það að markmiði að bæta námsárangur og auka faglegan stuðning við kennara í skólum. Tillögunni var vel tekið af fulltrúum meirihlutans á fundi skóla- og frístundaráðs sl. mánudag og var vísað áfram til yfirstandandi vinnu borgarinnar við að móta sóknaraðgerðir í menntamálum. Hvað eru gagnreyndar aðferðir? Gagnreyndar aðferðir eru kennsluhættir og úrræði sem hafa verið rannsökuð með kerfisbundnum hætti í endurteknum samanburðarrannsóknum, sem staðfest hafa jákvæð áhrif viðkomandi aðferða á nám og þroska nemenda. Þegar kemur að grunnfærni barna eigum við að byggja ákvarðanir okkar á bestu þekkingu sem völ er á hverju sinni. Rétt eins og við væntum þess að heilbrigðiskerfið byggi á gagnreyndri læknisfræði er eðlilegt að við gerum kröfu um að menntakerfið nýti gagnreyndar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt fram á að skili börnum betri árangri en aðrar aðferðir. Skylda okkar samkvæmt lögum Höfum í huga að hugmyndin um gagnreyndar aðferðir er ekki ný eða framandi í íslensku regluverki. Í lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er sérstaklega kveðið á um að uppbygging, skipulag og framkvæmd þjónustu taki mið af gagnreyndri þekkingu. Í reglugerð um hæfni kennara er sömuleiðis vísað til þess að kennarar nýti gagnreyndar aðferðir við kennslu og bekkjarstjórnun. Tillaga um aukna áherslu á gagnreyndar kennsluaðferðir í grunnskólum Reykjavíkur felur því ekki í sér eiginlega stefnubreytingu frá sjónarmiðum sem þegar hafa verið lögfest en hún felur sannarlega í sér að skerpt verði á þeirri framkvæmd í skólum borgarinnar að nýta betur þær rannsóknir sem við eigum innanlands sem utan til að bæta skólastarf í góðu samstarfi við kennara og skólastjórnendur. Nýlegar rannsóknir og fordæmi Rannsóknir sem kynntar voru á Menntakviku Menntavísindasviðs Háskóla Íslands á dögunum sýna meðal annars fram á sterk tengsl milli gagnreyndra kennsluhátta og betri námsárangurs í íslenskum grunnskólum. Ég nefni hér þrjú dæmi. Í fyrsta lagi kom fram að nemendur sem fengu skýra og markvissa kennslu náðu að jafnaði mun betri árangri í lesskilningi, stærðfræði og náttúrufræði en þeir sem byggðu námið fremur á sjálfstæðu leitarnámi. Munurinn mældist allt að 50 stig í nýjustu PISA mælingu eða sem svarar til námsframvindu rúmlega tveggja skólaára í öllum þremur greinunum. Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif gagnreyndra aðferða í lestrarkennslu á fyrstu skólaárunum. Þar hafa m.a. aðferðir á borð við PALS (félagalestur) vakið athygli. Þar vinna nemendur saman í skipulögðu félagalæsi og rannsóknir benda til þess að slíkar aðferðir geti bæði aukið lestrarfærni og dregið úr ójöfnuði í námi. Þá var kynnt ný innlend rannsókn sem sýnir að gagnreyndar aðferðir í bekkjarstjórnun geti stutt við velferð kennara í starfi. Það er mikilvægt sjónarmið á tímum þegar kennaraskortur og kulnun í starfi eru meðal stærstu áskorana skólakerfisins. Góðu heilli er hægt að horfa til ýmissa fordæma um grunnskóla í borginni sem beitt hafa gagnreyndum aðferðum í lestrarkennslu og stærðfræðikennslu með góðum árangri og nærtækt er að horfa til þeirra við innleiðingu gagnreyndra aðferða í framhaldinu. Áframhaldandi stuðningur við faglegt sjálfstæði kennara Hlutverk kjörinna fulltrúa er að móta stefnuna og varða leiðina fyrir menntakerfið í borginni. En það er mikilvæg forsenda tillögunnar að kjörnir fulltrúar og yfirstjórn borgarinnar stýri því ekki miðlægt hvaða aðferðir verði fyrir valinu heldur hafi kennarar og skólastjórnendur síðasta orðið varðandi val gagnreyndra aðferða sem henti best þeirra nemendahópum og stefnuáherslum viðkomandi skóla. Það er áréttað í tillögunni að áfram verði stutt við að grunnskólar hafi svigrúm til að þróa aðferðir og verklag sem leiði til framþróunar og nýsköpunar í skólastarfi. Þar hafa starfendarannsóknir kennara gegnt vaxandi hlutverki og er mikilvægt að veita þeim áframhaldandi stuðning. Forystuhlutverk borgarinnar Reykjavík er stærsta skólasamfélag landsins. Borgin hefur því bæði tækifæri og ábyrgð til að leiða þróun menntamála á Íslandi. Fyrsta skrefið er að afla heildstæðrar yfirsýnar yfir stöðuna í grunnskólum borgarinnar. Hvar eru gagnreyndar aðferðir þegar í notkun? Hvaða árangri hafa þær skilað? Hvernig má styðja betur við kennara og skóla sem vilja tileinka sér slíkar aðferðir? Það er hluti tillögunnar að afla slíkra upplýsinga. Í framhaldinu þarf að móta raunhæfa innleiðingaráætlun í nánu samstarfi við skóla-og fræðasamfélagið. Þar skiptir mestu að sviðið tryggi gott aðgengi og miðlun upplýsinga um gagnreyndar aðferðir til kennara og skóla með vísan í innlendar og erlendar rannsóknir og alþjóðlega gagnagrunna um gagnreyndar aðferðir. Háskólasamfélagið er mikil auðlind rannsókna og þekkingar sem hægt er að nýta í því sambandi ásamt fyrirmyndum í grunnskólunum sjálfum. Þetta er sannarlega ekki tillaga að skyndilausn heldur langtímaverkefni. En ef við setjum okkur skýra stefnu, byggjum á rannsóknum og vinnum saman að lausnum getum við náð miklum árangri. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst málið um rétt barna til að fá bestu mögulegu menntun og rétt kennara til að njóta faglegs stuðnings í afar mikilvægum störfum sínum og sá stuðningur byggi á þekkingu sem studd er vönduðum rannsóknum. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Helgason Skóla- og menntamál Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun