Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson og Sævar Finnbogason skrifa 19. október 2026 08:30 Starfsemi og rekstur íslenskra banka þarfnast endurskoðunar. Stóru bankarnir þrír eru reknir á sömu forsendum og eru í einokunarstöðu gagnvart viðskiptavinum sínum. Á þessu má taka með nýju rekstrarformi og skapa þannig aukna samkeppni á milli bankanna. Í þessu fælist mikið og raunverulegt tækifæri fyrir ríkisstjórnina til að bæta hag viðskiptavina bankanna. Allt frá hruni bankanna 2008 hefur íslenskur almenningur beðið eftir endurreisn og endurhugsun bankakerfisins. Síðan þá hafa allar ríkisstjórnir komið að því að endurreisa bankakerfið í óbreyttri mynd og selt það markaðsöflum. Afleiðingin af þessu fyrir almenning og fyrirtæki, er eins og varað var við: Vaxtamunur íslenskra banka er hærri en í nágrannalöndunum og hefur lítið minnkað. Þetta veldur því að lántaka er dýrari á Íslandi en annars væri. Þóknanir eru mun hærri fyrir notkun á greiðslumiðlun á Íslandi en í nágrannalöndunum. Þetta sama á við um viðskipti með erlendan gjaldeyri og greiðslukort erlendis. Bankarnir hækka álögur og gjaldskrár í takti. Lækkun bankaskattsins fyrir nokkrum árum skilaði sér ekki til viðskiptavina bankanna. Hagnaður bankanna er sum ár svipaður og sjávarútvegurinn skilar, og virðist ótengdur því hvernig samfélaginu farnast. Bankarnir hafa hagrætt svo gríðarlega í eigin rekstri að hlutfallslegur kostnaður við rekstur þeirra er einn sá lægsti á Norðurlöndum. Þeir hafa enda innleitt mikla sjálfvirkni í starfsemi sína. En afraksturinn af þessari velgengni endar að mestu hjá fjarstöddum hluthöfum þeirra, sjóðum og stórfjárfestum. Afraksturinn endar líka að hluta hjá ríkinu, eiganda Landsbankans. Óhætt er að segja að almenningur borgi kostnaðinn af einkavæðingu bankanna með háum vaxtamun og þjónustugjöldum. Framlag núverandi ríkisstjórnar í bankamálum hefur hingað til eingöngu falist í vilja til að hækka bankaskattinn á ný. Fjármálaráðherra hefur sagt að ákveðinn „ábati“ sé til staðar í fjármálakerfinu, sem stafi af verðbólgunni, og honum verði að „deila“. Ráðherrann játar þannig að einkavæðing bankakerfisins hafi ekki skilað því sem hún átti að skila samfélaginu: Hagstæðari vaxtamun og lægri þjónustugjöldum. Þvert á móti hefur ekki skapast virk samkeppni á þessum markaði. Samkeppnin hefði séð til þess að hagnaður bankanna yrði innan skikkanlegra marka, en í staðinn búum við við það að bankarnir hækka álögur og gjaldskrár í takti. Og þar sem bankar vita um nær allt sem gerist í hagkerfinu – í gegnum greiðslumiðlanir sínar og lánastarfsemina – vita þeir líka upp á hár hvernig þeir geta kreist fleiri krónur út úr hagkerfinu. Þetta er kallað að hafa tangarhald sem einokunarstaða gerir mögulega. Bankaskattur er ekki leið til að stokka upp bankamarkaðinn vegna þess að bankarnir geta einfaldlega velt þeim kostnaði yfir á viðskiptavini sína. Þetta geta þeir í fákeppnisumhverfi einsleitra banka. Mun eðlilegri leið væri að endurskoða rekstrarform bankanna þannig að þeir þurfi að keppa sín á milli og stuðla þannig að lægri gjaldskrám, minni vaxtamun og betri þjónustu. Það er hlutverk fulltrúa almennings, stjórnmálamanna, að bregðast við þegar ljóst er að bankar landsins eru reknir á forsendum sem vinna gegn hag almennings og fulljóst að tilraunir með einkavæðingu bankanna hafa litlu skilað í bættum viðskiptakjörum almennings. Heilbrigðara bankakerfi fæst með stofnun samfélagsbanka, eða þá umbreytingu Landsbankans í slíkan banka. Öflugur samfélagsbanki myndi veita hinum bönkunum samkeppni og aðhald með hágæðaþjónustu við viðskiptamenn sína. Tangarhald bankanna myndi rakna upp. Hagnaður samfélagsbanka yrði nýttur til að styrkja bankann í sessi til framtíðar með fjárfestingu og hluta hagnaðarins yrði skilað til viðskiptamanna hans þegar vel árar. Þannig eru samfélagsbankar í hnotskurn. Fyrirmyndir eru til í fjöldamörgum löndum, eins og Sparkasse í Þýskalandi og Nationwide í Bretlandi, svo dæmi séu tekin. Við þurfum þannig ekki að finna upp hjólið. Núna er kjörið tækifæri, þar sem einn ríkisstjórnarflokkana, Flokkur fólksins, hefur stutt stofnun slíks banka um árabil. Hví ekki að láta verkin tala? Ríkjandi staða á íslenskum bankamarkaði er óheillavænleg og ekki í þágu almennings. Leiðin út úr öngstræti er stefnubreyting, ekki að halda áfram að gera nákvæmlega það sama. Höfundar eru stjórnarmenn í Öldu – félagi um sjálfbærni og lýðræði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun