Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar 19. október 2026 09:01 Á Alþingi liggur nú enn á ný fyrir eitt þreyttasta frumvarp íslenskrar þingsögu, lagt fram í fjórtánda eða fimmtánda sinn (áfengi í búðir í einni eða annarri mynd). Enn á að freista þess að koma áfengi í allar hugsanlegar og óhugsanlegar verslanir, nú í formi „vef“ verslana. Að þessu sinni er það fóstrað af Pawel Bartoszek, þingmanni Viðreisnar, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum. Frumvarpið felur í sér grundvallarbreytingu á íslenskri áfengisstefnu og heimilar einkaaðilum að selja áfengi beint til neytenda. Óskalisti áfengisbransans Frumvarpið er algerlega í anda sérhagsmunaaðila. Innihald þess er í fullu samræmi við ýtrustu viðskiptahagsmuni þeirra og óskir. Þeir leggja dag við nótt í baráttu fyrir auknum möguleikum til frekari áfengissölu. Í engu virðist til sparað í þeirri baráttu, eins og áfengissalar og Samtök verslunar og þjónustu sýndu okkur með 80–90 milljóna króna auglýsingaherferð fyrir nokkru. Þá hefur birst fjöldi greina frá hagsmunaaðilum á opinberum vettvangi þar sem málflutningurinn einkennist í flestum tilfellum af djúpstæðri vanþekkingu á lýðheilsu- og forvarnarmálum, en þeim mun meiri mæli með áherslu á viðskiptalega hagsmuni viðkomandi. Allt eru þetta aðferðir sem eru kunnar og lesa má frekar um hér Vegið að grunnstoðum Með frumvarpinu er gengið gegn einni af grunnstoðum íslenska forvarnarmódelsins , sölufyrirkomulagi áfengis og aðgengi. Skýr dómur í máli Smáríkisins undirstrikar að einkaaðilar hafa ekki heimild til slíkrar smásölu samkvæmt gildandi lögum. Frumvarpið er því ekki einhver einföld tæknileg útfærsla á starfsemi sem þegar er leyfileg, eins og látið hefur verið að liggja, heldur alger grundvallarbreyting á ríkjandi áfengisstefnu. Samkvæmt frumvarpinu geta einkaaðilar fengið leyfi til að selja áfengi í (vef)verslun beint til neytenda. Þar með er opnað fyrir samkeppni hagnaðardrifinna fyrirtækja á markaði sem hingað til hefur byggt á opinberu einkaleyfi. Áfengissalar eru ekki velferðarsamtök og það liggur í eðli viðskiptanna að vilja selja sem mest og hagnast eins mikið og kostur er. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur sérstaklega bent á ÁTVR og önnur norræn sölukerfi sem mikilvægan hluta heildstæðrar lýðheilsustefnu. Stofnunin hefur lagt áherslu á að slík kerfi stuðli að minni áfengisneyslu og minni áfengisvanda og bent á að rannsóknir sýni að einkavæðing áfengissölu hafi tilhneigingu til að auka neyslu. Embætti landlæknis tók í mars 2026 afdráttarlausa afstöðu til nær samhljóða frumvarps. Embættið taldi í umsögn sinni að fyrirkomulag áfengissölu myndi gjörbreytast og að aukin samkeppni og verðlækkanir myndu leiða til meiri áfengisnotkunar og aukins vanda. Sérstaklega var varað við því að breytingin myndi „auka drykkju ungmenna“. Sambærileg sjónarmið hafa ítrekað komið fram í umsögnum heilbrigðisstétta, lýðheilsufræðinga, forvarnarsérfræðinga og samtaka sem láta sig velferð barna og ungmenna varða. Íslenska forvarnarmódelið varð ekki til af sjálfu sér Íslensk áfengisstefna hefur mótast á löngum tíma og í breiðri samfélagslegri sátt. Hún er ein af mikilvægum stoðum þess sem við köllum íslenska forvarnarmódelið. Aðgengi að áfengi, sölufyrirkomulag, reglur um markaðssetningu og auglýsingar og aldursmörk hafa verið mikilvægur hluti af því umhverfi sem árangur Íslendinga í forvörnum hefur byggst á. Ísland náði einum besta árangri Evrópu í að draga úr áfengisneyslu barna og ungmenna. Fyrirkomulag áfengissölu, íslensk áfengispólitík, á ekki að lúta eða byggja á einhverjum óskalista sérhagsmunaaðila, áfengissalanna eins og frumvarpið gengur út á. Ríkjandi fyrirkomulag var unnið í breiðri samstöðu, það gengur bil beggja og er í verki ein af mikilvægustu stoðum þess sem við köllum íslenska forvarnarmódelið, sjá umfjöllun hér. Velferð barna og ungmenna er í öndvegi. Um þessa leið hefur hjá almenningi ríkt góð samstaða til margra ára. Sem betur fer eru flest sem gera sér grein fyrir þessu samhengi og mikilvægi þess fyrirkomulags sem við erum með. Því sá árangur varð ekki til af sjálfu sér, heldur með markvissri stefnu og samstilltu átaki foreldrasamfélagsins, skólakerfisins, félagsmiðstöðva, íþróttahreyfingarinnar, velferðarsamtaka, fræðasamfélagsins, sveitarfélaga og stjórnvalda. Forvarnir snúast nefnilega ekki aðeins um meðferðarúrræði þegar vandinn er orðinn alvarlegur, heldur ekki síður um að móta umhverfi í allri tilveru barna og ungmenna sem dregur úr áhættu frá upphafi. Það er einmitt eitt af megineinkennum íslensku leiðarinnar. Forvarnir, já takk …nema þegar áfengi á í hlut Í þessu ljósi vekur það sérstaka athygli, og er í raun illskiljanlegt, að meðal flutningsmanna frumvarpsins, í þessari fjórtándu eða fimmtándu tilraun, eru þingmenn sem sjálfir hafa kallað eftir öflugri forvörnum, lýst alvarlegum áhyggjum af vímuefnaneyslu barna, fíknivanda ungmenna og skorti á úrræðum fyrir börn í erfiðleikum. Þingmenn sem í orði hafa tekið einarða afstöðu í lýðheilsu-, velferðar- og forvarnarmálum. Þingmaðurinn Valdimar Breiðfjörð Birgisson hefur kallað eftir öflugri forvörnum vegna vímuefnaneyslu barna. Þingkonan María Rut Kristinsdóttir hefur bent á að forvarnir og sterkt öryggisnet borgi sig margfalt. Þingkonan Sandra Sigurðardóttir hefur lagt áherslu á mikilvægi íþrótta- og æskulýðsstarfs sem forvarnartækis og þingkonan Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hefur lýst alvarlegri stöðu barna og ungmenna með fíknivanda, svo nokkur dæmi séu nefnd. Þessir þingmenn þurfa að svara því hvernig stuðningur þeirra við frumvarp sem vitað er að eykur aðgengi barna og ungmenna að áfengi samræmist þessum yfirlýstu áherslum viðkomandi. Ekki síst þegar Embætti landlæknis telur breytinguna munu draga úr virkni forvarna og auka drykkju ungmenna og WHO hefur lagt áherslu á að varðveita þau sölukerfi sem frumvarpið gengur þvert gegn, eins og þegar hefur verið minnst á. Það er ekki hægt að tala fyrir öflugum forvörnum gegn vímuefnaneyslu barna og ungmenna en styðja um leið breytingar á sölukerfinu sem helstu sérfræðistofnanir vara við vegna fyrirsjáanlegra neikvæðra áhrifa á velferð barna og ungmenna sem og lýðheilsu almennt. Að lokum þetta Í þessu ljósi er þetta frumvarp, eða réttara sagt óskalisti áfengisbransans í sinni fjórtándu eða fimmtándu útgáfu, sérkennilegt plagg. Það hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvort viðskiptahagsmunir áfengissala eigi að vega þyngra en sú lýðheilsustefna og sá árangur í forvörnum sem náðst hefur á undanförnum áratugum. Mér þykir það satt að segja dapurlegt að Alþingi skuli enn eina ferðina eyða dýrmætum tíma í mál af þessu tagi, þegar svo mörg brýn verkefni blasa við í velferðar- og forvarnarmálum barna og ungmenna. Höfundur er félagsuppeldisfræðingur og formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Guðmundsson Áfengi Börn og uppeldi Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun