Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar 19. október 2026 10:01 Ég er 46 ára gamall. Hef verið almennt séð frekar heilsuhraustur þótt lítið hafi farið fyrir því að ég hafi sett líkamlega heilsu eitthvað í fyrsta sætið, því ég hef verið frekar heppinn af náttúrunnar hendi með það að vera frekar grannvaxinn allt mitt líf. Ekki það að sé merki um góða líkamlega heilsu, alls ekki. En það var frekar mikið þungt högg í magann í Apríl síðastliðnum, eftir nokkurra vikna/mánaða vesen með reglulegum miklum kviðverkjum og læknaheimsóknum, að fá símtal þar sem mér var tilkynnt að ég væri með ristilkrabbamein. Óhætt að segja að vinnudagurinn hafi tekið snöggan og óvæntan endi. Mér var tilkynnt að ég væri heppinn því væri svo ungur. Þetta væri venjulega sjúkdómur sem eldri einstaklingar þurfa að glíma við. Mér fannst það lítil huggun á þeim tímapunkti í ferlinu. Hlutirnir urðu síðan bara enn leiðinlegri þegar kom í ljós eftir frekari rannsóknir að krabbameinið væri búið að dreifa sér í lifur. Það er óvægnlegt að standa frammi fyrir gjörbreyttum veruleika allt í einu og hugsanir sem undir venjulegum kringustæðum koma ekki upp, líkt og hugrenningar um framtíðina, hve langa framtíð, hvernig verða næstu vikur, mánuðir, ár. Hvað með andlegu hliðina, hvað með vinina og hvað með fjölskylduna. En síðan líka, jæja ok fokk it. Þetta er staðan og ég mun gera allt sem er í mínu valdi til að berjast og sigra þetta og legg allt mitt traust á okkar færu lækna og læknavísindin. Sumarið sem leið var undirlagt undir tvær aðgerðir og aðlögun eftir það ásamt því að njóta hvers dags með fólkinu mínu og svo öllu því fólki, samfélagi, sem ég hef kynnst í gegnum árin sem umkringdu mig með hughreystandi skilaboðum, knúsi og allskonar öðrum hætti sem ég get ekki þakkað nóg fyrir. Aðgerðir gengu vel en það kom samt bakslag er ný meinvörp fundust í lifrinni og var því fyrirhuguð lyfjameðferð breytt og gerð ,,aggresívari“ og er sú meðferð í gangi þegar þetta er ritað. En afhverju er ég að skrifa þetta og opna mig svona? Staðan er sú, líkt og mér var tilkynnt, að ég er ungur að greinast með ristilkrabbamein. En það breytir þeirri staðreynd ekki ég hef heyrt af mun fleiri tilvikum en ég hefði viljað, af karlmönnum sem eru á svipuðum aldri og ég og yngri, töluvert yngri, sem hafa greinst með þetta sama mein á síðustu mánuðum og árum. Ég hef það á tilfinningunni að karlmenn séu feimnari við að tjá sig um veikindi og sækja sér sjaldnar jafningastuðning. Fyrir utan það stuðning sem ég minntist hér á að ofan frá fjölskyldu og vinum og samfélaginu, hefur jafningastuðningurinn verið mér hvað mikilvægastur í þessu ferli. Jafningastuðningurinn er í boði meðal annars í Ljósinu sem er einstakur staður og gerir svo miklu meira en ég held að fólk sé meðvitað um fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Svo ekki sé minnst á Kraft, stuðningsfélag ungs fólks með Krabbamein. Ég sæki mér jafningstuðning á þessa staði því það er svo gott að hitta einstaklinga sem hafa gengið í gegnum eða eru að ganga í gegnum svipaða hluti og maður sjálfur, til að spegla, til að gleðjast og til að fræðast og styrkja hvert annað. Þvi get ég ekki annað en mælt með að krabbameinsgreindir kynni sér þessi úrræði. Komdu og fáðu stuðning og ef þú getur, veittu stuðning til baka. En fyrsta skrefið er að koma. Lífið er núna! Höfundur er með margvíslega menntun og er krabbameinsgreindur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthías Freyr Matthíasson Krabbamein Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun