Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar 19. október 2026 10:46 Í gær, sunnudaginn 18. október, urðu merk tímamót í íslensku menningarlífi þegar nýstofnuð Ópera hóf starfsemi sína með glæsilegum opnunarviðburði í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Akureyringar, nærsveitungar og unnendur klassískrar tónlistar fengu þar tækifæri til að hlýða á fjóra nýráðna söngvara Óperunnar, þau Kristínu Einarsdóttur Mäntylä, Hildigunni Einarsdóttur, Gunnar Björn Jónsson og Kristján Inga Jóhannesson. Með þeim komu fram Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, norðlenskir kórar og fleiri frábærir listamenn, undir stjórn tónlistarstjóra Óperunnar, Richards Schwennicke. Það er sérstaklega ánægjulegt og raunar táknrænt að þessi nýja þjóðarstofnun skuli hafa valið að hefja starfsemi sína utan höfuðborgarsvæðisins, í svæðisborginni Akureyri. Með því eru send mikilvæg skilaboð um að óperulistin tilheyri þjóðinni allri, óháð búsetu. Enn ánægjulegra er að opnunardagskráin ferðast áfram um landið, meðal annars til Eskifjarðar, Skálholts og Reykjanesbæjar, áður en hún kemur til Reykjavíkur. En þessi fallega byrjun ætti aðeins að vera upphafið að einhverju miklu stærra. Fyrir rúmum tveimur árum skrifaði ég hér á Vísi um mikilvægi þess að landsbyggðin yrði raunverulegur hluti af starfsemi þjóðaróperu, en ekki aðeins viðtakandi sýninga sem sendar væru frá höfuðborginni. Sú skoðun hefur ekki breyst. Þvert á móti felast nú mikil tækifæri í því að byggja upp fjölbreytt og öflugt óperulíf um allt land. Það þarf nefnilega ekki að setja upp stórar og kostnaðarsamar óperusýningar á hverjum stað til að ná því markmiði. Óperulistin er svo miklu fjölbreyttari en það. Hún getur verið stórbrotin sviðsuppfærsla með heilli sinfóníuhljómsveit, en líka lítil og persónuleg sýning þar sem örfáir listamenn skapa töfra í félagsheimili, skóla eða kirkju. Á undanförnum árum hafa sjálfstæðir óperuhópar sprottið upp og unnið ómetanlegt starf við að kynna listformið fyrir nýjum áheyrendum. Þessir hópar hafa tekið áhættur, sótt um styrki, lagt ómælda vinnu í verkefni sín og jafnvel greitt úr eigin vasa til að koma hugarefnum sínum á svið. Þeir hafa farið með óperuna inn í leikskóla, grunnskóla og til almennings, oft til fólks sem annars hefði aldrei kynnst þessari stórkostlegu listgrein. Þarna liggur eitt stærsta tækifæri nýju Óperunnar: Að verða ekki eingöngu sýningarstofnun heldur einnig öflugur framleiðandi og samstarfsaðili óperulistar um allt land. Með því að Óperan er nú hluti af Þjóðleikhúsinu skapast enn fleiri tækifæri til slíks samstarfs. Þar er fyrir hendi mikil þekking, reynsla og öflug umgjörð utan um sviðslistaframleiðslu sem mætti nýta til að efla óperulist um allt land. Með samstarfi við sjálfstæða óperuhópa, þar sem Óperan og Þjóðleikhúsið gætu lagt til faglega þekkingu, söngvara, tæknilega aðstoð, aðstoð við framleiðslu og kynningu og jafnvel stuðning við fjármögnun, væri hægt að styrkja starfsemi sem þegar er til staðar og skapa ný verkefni. Óperan gæti þannig orðið mikilvægur samstarfsaðili við framleiðslu minni sýninga, stutt við nýsköpun og auðveldað sýningum að ferðast milli landshluta. Þannig væri ekki einungis verið að flytja menningu út á land, heldur skapa menningu í heimabyggð, efla sjálfstæða listahópa, styrkja atvinnumöguleika listafólks og byggja upp lifandi óperustarf um land allt. Það samstarf sem við sáum í Hofi í gær, þar sem kraftar nýju Óperunnar og norðlensks tónlistarlífs sameinuðust, sýnir vel hvað hægt er að gera þegar ólíkir aðilar taka höndum saman. Vonandi er það fyrirheit um það sem koma skal. Það ber að fagna þessu fyrsta skrefi Óperunnar af heilum hug. Nú er tækifærið til að halda áfram, hugsa stórt en framkvæma líka smátt, gefa sjálfstæðum listahópum byr undir báða vængi og tryggja að óperulistin fái að blómstra um allt Ísland. Óperan er hluti af Þjóðleikhúsinu, en hlutverk hennar sem þjóðaróperu nær langt út fyrir veggi þess. Hún verður ópera allrar þjóðarinnar með því að skapa menningu með fólkinu sem unnir þessari list um land allt, ekki aðeins með því að skapa menningu fyrir það. Höfundur er áhugamaður um landsbyggðina og óperulistina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þjóðaróperan Mest lesið Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun