Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar 20. október 2026 07:02 Fyrrverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur segist hafa skilað góðu búi. Rökin eru fyrst og fremst þau að rekstur borgarinnar sé ekki verri en víðast hvar annarsstaðar, og rekstrarerfiðleikar sem við öllum blasa, stafi fyrst og fremst af háum vöxtum. Við í Viðreisn erum ósammála því. Hagræðingarvinnan sem ég leiði fyrir hönd borgarstjórnar snýst um að borgin geti haldið við eignum sínum, og byggt upp án þess að senda reikninginn á næstu kynslóð. Það er að skila góðu búi til borgarbúa. Þar liggur metnaður núverandi meirihluta borgarstjórnar. Heimilisbókhaldið segir sína sögu Gott bú er sjálfbært og byggir ekki á lántöku og sölu eigna ár eftir ár. Eins og ég hef áður bent á stendur rekstur borgarsjóðs ekki undir sér. Hann er háður sölu eigna, byggingarréttar og lóða, auk arðgreiðslna frá Orkuveitunni og öðrum dótturfyrirtækjum. Borgarsjóður stendur ekki undir viðhaldi eigna, hvað þá uppbyggingu nauðsynlegra innviða. Það finna borgarbúar á hverjum degi í skólum, á götum og í öðrum mannvirkjum. Þetta er ekki svo flókið. Ef heimilið hefur ekki efni á að halda við bílnum eða húsinu, þrátt fyrir sölu eigna, er reksturinn augljóslega ekki í lagi. Það er búið sem við tókum við. Vaxtakostnaður er afleiðing ákvarðana fyrri meirihluta Framkvæmdir og viðhald á vakt fyrri meirihluta voru að stærstum hluta fjármagnaðar með lánum. Gildandi markmið gera ráð fyrir að fjárfestingar séu að 70% hluta fjármagnaðar með lántöku. Það er eðlilegt þegar fólk kaupir sér húsnæði einu sinni á ævinni, en ekki þegar borgarsjóður fjárfestir fyrir milljarða á hverju ári, og skilar litlum sem engum rekstrarafgangi. Að óbreyttu mun vaxtakostnaðurinn hækka svo mikið að reksturinn stendur varla undir öðru en vöxtum. Þess vegna er vaxtakostnaður að sliga borgarsjóð. Vandinn er að fyrri meirihluti tók ákvarðanir sem gerir borgarsjóð viðkvæman. Snúum þessu við Borgarbúar kalla eftir góðu viðhaldi eigna, og nýjum íþróttamannvirkjum, leikskólum og búsetukjörnum. Til að vinna niður innviðaskuldina þarf að fjárfesta fyrir um 30 milljarða króna á ári næstu árin. Það gerist ekki nema með því að snúa rekstrartapi í afgang, breyta forgangsröðun, og draga úr lántöku. Að mínu mati á rekstrarafgangur borgarsjóðs aldrei að vera lægri en tekjur af arðgreiðslum og sölu byggingarréttar og lóða. Það þýðir að lágmarki 5–7 milljarða króna afgangur á ári. Samhliða þarf að selja eignir sem eru ekki hluti af grunnþjónustu borgarinnar til að draga úr lántöku. Þar má t.d. nefna fasteignir sem nýtast ekki í þjónustu, og malbikunarstöð. Svo það sé alveg skýrt, þá ætlar Viðreisn ekki selja Orkuveituna eða önnur mikilvæg innviðafyrirtæki. Reykjavík er fyrirmynd Reykjavík á ekki að miða sig við meðaltalið. Borgin er langfjölmennasta sveitarfélag landsins, með góðar forsendur til stærðarhagkvæmni, öflugt atvinnulíf og nær alla starfsemi hins opinbera, sem skilar góðum skatttekjum. Borgin á að setja sín eigin markmið og vera fyrirmynd annarra sveitarfélaga, ekki bara á pari við þau. Höfundur er borgarfulltrúi Viðreisnar og leiðir hagræðingarhóp borgarstjórnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Reykjavík Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun