Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar 19. október 2026 19:32 Í íslenskum þjóðsögum segir frá börnum sem huldufólk tók úr vöggu og skildi annað eftir í staðinn, líkt að sjá en ólíkt að eðli. Foreldrarnir áttuðu sig stundum ekki fyrr en barnið tók til máls. Kjósendur Flokks fólksins gætu kannast við tilfinninguna. Flokkurinn sem kom út úr Stjórnarráðinu talar allt öðruvísi um bókun 35 en sá sem bað um atkvæði þeirra fyrir kosningarnar 2024. Villa og svimi Þann 13. febrúar 2024 stóð Inga Sæland í pontu Alþingis og taldi fyrirhugaða forgangsreglu bókunar 35 brjóta gegn stjórnarskránni. Vildi Alþingi gera svo veigamikla breytingu á íslenskri stjórnskipun þyrfti að breyta stjórnarskránni fyrst. Hún vildi láta reyna á ágreininginn fyrir dómstólum og sakaði ríkisstjórnina um að leggjast kylliflöt og leyfa Brussel að valta yfir okkur. Daginn eftir var afstaða flokksins áréttuð í viðtali á Útvarpi Sögu: Flokkur fólksins myndi hafna samþykkt bókunarinnar. Nítján mánuðum síðar var Inga orðin ráðherra. Þegar Snorri Másson spurði hana á Alþingi, 22. september 2025, hvort hún væri enn sama sinnis fékk hann afdráttarlaust svar. Hún hefði gjörsamlega skipt um skoðun, verið í „villu og svima“ og sérfræðingar fengið hana til að „sjá ljósið“. Allt fyrir Þorgerði! Nú vísaði hún til neytendaverndar og málaferla gegn bönkunum. Stjórnarskrárvandinn, sem áður hafði kallað á breytingu á sjálfri stjórnarskránni, fékk litla athygli í þeirri frásögn. Það hlýtur að vera sérstök lýsing við stjórnarmyndunarborð. Skoðunin óbreytt, stuðningurinn nýrEyjólfur Ármannsson er lögfræðingur og hafði fært ítarleg rök gegn innleiðingunni. Í maí 2024 hvatti hann utanríkisráðherra á Alþingi til að hætta við frumvarpið. Í september sama ár sagði hann í viðtali á Útvarpi Sögu að fyrirhuguð breyting gengi gegn stjórnarskránni og krefðist stjórnarskrárbreytingar. Síðan kom ríkisstjórnarmyndunin. Þann 23. desember 2024, nýsestur í ráðherrastól, sagðist Eyjólfur ætla að styðja ríkisstjórnina í málinu og virða samkomulag stjórnarflokkanna. Fimm dögum síðar sagði hann samkvæmt viðtali mbl.is að skoðun sín hefði ekkert breyst, spurður hvort bókunin færi enn að hans mati gegn stjórnarskránni. Þarna liggur sérstaða málsins. Inga sagðist hafa sannfærst um annað. Eyjólfur sagðist enn sömu skoðunar en ætlaði samt að styðja málið þó svo það brjóti á stjórnarskránni sem hann hefur svarið eið um að verja. Ráðherrastóllinn hafði meiri áhrif á fyrirhugaða atkvæðagreiðslu en lögfræðilega niðurstöðu. Enn í febrúar 2025 lýsti hann þeirri skoðun að rétt væri að láta EFTA-dómstólinn útkljá ágreininginn. Í september vísaði hann hins vegar til þess að Hæstiréttur dæmdi um stjórnarskrársamræmi laga og ítrekaði stuðning sinn við ríkisstjórnina. Samþykkjum fyrstÞann 15. október síðastliðinn var Eyjólfur kominn lengra. Samkvæmt Morgunblaðinu taldi hann sjálfsagt að Alþingi samþykkti frumvarpið og síðan gæti málið farið fyrir Hæstarétt. Fullveldistúlkun réttarins gæti breyst með tímanum. „Þetta er túlkunarregla, þetta er ekki fullveldisafsal,“ sagði ráðherrann. Á tveimur árum hafði málflutningurinn færst frá nauðsyn stjórnarskrárbreytingar yfir í að samþykkt væri sjálfsögð og dómstólar gætu metið afleiðingarnar síðar. Hæstiréttur er þó engin sjálfvirk yfirlestrardeild Alþingis. Til þarf dómsmál þar sem reynir á lögin. Þingmenn bera sjálfir ábyrgð á lagasetningu sinni og geta varla afgreitt eigin stjórnarskrárefasemdir með því að einhver annar muni hugsanlega taka þær fyrir síðar. Eyjólfur vissi heldur ekki hvort ESA myndi afturkalla málshöfðun sína þótt frumvarpið yrði samþykkt. Samþykkja skyldi samt. Allt fyrir Þorgerði! Flokkurinn sem kom til baka Sigurjón Þórðarson hefur varið nýju stefnuna á Alþingi með þeim rökum að verið sé að tryggja fullnægjandi lagastoð eldri skuldbindinga. Það er gerólíkur málflutningur þeim sem formaður flokksins viðhafði fyrir kosningar. Allt fyrir Þorgerði! ESA tilkynnti málshöfðun gegn Íslandi 30. september 2026. Þá hafði frumvarpið þegar verið endurflutt. Ekki verður því skýrt með þeirri tilkynningu hvers vegna flokkurinn snerist; stuðningurinn lá fyrir löngu áður. Kjósendur mega spyrja hvað varð um afdráttarlausu andstöðuna sem þeim var boðin. Þeir kusu flokk sem taldi stjórnarskrárbreytingu nauðsynlega. Þeir fengu ráðherra sem telur samþykkt sjálfsagða og bíður þess að dómstólar taki hugsanlega við. Í þjóðsögunum þurfti ýmis ráð til að losna við umskiptinga. Ef þingmenn og ráðherrar FF eru ekki umskiptingar þá eru þeir a.m.k gufuruglaðir. Í lýðræðisríki nægir kjörseðill. Kjósendur þurfa aðeins að muna hvaða flokki þeir töldu sig vera að greiða atkvæði síðast. Höfundur er fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun