Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Kjartan Kjartansson skrifar 20. október 2026 08:58 VIðskiptavinur flugfélags bauð í að uppfæra flugsæti á fyrsta farrými. Hann taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur en greiddi á endanum rúmlega þrjátíu þúsund krónur fyrir herlegheitin og tvöfaldaði kostnaðinn við flugferðina. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Viðskiptavinur flugfélags sem taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í að uppfæra á fyrsta farrými en greiddi sexfalt hærri fjárhæð fær ekki endurgreitt. Úrskurðarnefnd sagði engin gögn til um fjárhæðina sem hann bauð auk þess sem hann hefði síðan nýtt sér þjónustuna þrátt fyrir að hann vissi hvað hún kostaði.
Kvartandinn í málinu keypti tvo flugmiða með ónefndu flugfélagi til og frá ótilgreindum áfangastað. Síðar bauð hann í uppfærslu á sætunum á fyrsta farrými. Hann taldi sig hafa boðið fimm þúsund krónur í uppfærsluna, alls tuttugu þúsund krónur fyrir bæði sæti báðar leiðir. Hann var hins vegar rukkaður um 132.506 krónur fyrir uppfærsluna. Hún tvöfaldaði þannig þannig kostnað hans við flugferðirnar. Krafðist maðurinn þess að flugfélagið endurgreiddi sér mismuninn á þeirri upphæð sem hann var rukkaður um fyrir uppfærsluna annars vegar og því sem hann taldi sig hafa boðið hins vegar. Skaut hann málinu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Samþykkti skilmálana með því að nýta þjónustuna Flugfélagið sagði að reikningurinn fyrir uppfærsluna hefði verið í samræmi við tilboðið sem maðurinn gerði sjálfur og staðfesti. Lagði það fram gögn úr kerfi sínu og tölvupósta sem viðskiptavinurinn fékk senda áður en ferðin var farin þar sem upphæðirnar komu fram. Þá benti flugfélagið á að maðurinn hefði getað skoðað, breytt eða afturkallað tilboð sitt í uppfærsluna áður en það var samþykkt. Hann hefði einnig geta breytt eða hætt við þar til 42 klukkustundum fyrir brottför. Kærunefndin sagðist ekki geta annað en hafnað kröfu mannsins. Engin gögn lægju fyrir í málinu sem sýndu fram á að viðskiptavinurinn hefði boðið aðra upphæð í uppfærsluna en hann greiddi fyrir eða hvernig tilboðsferlið birtist honum. Með því að nýta svo uppfærsluna, óháð því hvaða fjárhæð hann taldi sig hafa boðið í hana upphaflega, hafi viðskiptavinurinn samþykkt hana á því verði sem var tilgreint í tölvupóstum flugfélagsins til hans. Maðurinn leiddi líkur að því kvörtun sinni að eitthvað hefði farið úrskeiðis í tölvukerfi flugfélagsins. Gat hann sér til um að lágmarksfjárhæð fyrir uppfærslu á hvorum fluglegg kynni að hafa komið í stað tilboðs hans án þess að hann áttaði sig á því.
Úrskurðar- og kærunefndir Flug Neytendur Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira