Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar 20. október 2026 12:00 Hvað hefði ungur námsmaður getað unnið sér inn um ævina ef hann hefði ekki lent í umferðarslysi? Hæstiréttur þurfti að svara þeirri spurningu með dómi sem kveðinn var upp síðastliðinn miðvikudag í máli nr. 4/2026. Ágreiningur námsmannsins og vátryggingafélagsins snerist um líklegar framtíðartekjur námsmannsins, en mat á þeim getur skipt sköpum fyrir fjárhæð skaðabóta. Það vakti athygli okkar undirritaðra lögmanna að í dómi Hæstaréttar, sem og í sératkvæði tveggja dómara, er sérstaklega vísað til þess að skaðabótalög séu úrelt. Lögin tryggja ekki lengur ýmsum hópum tjónþola, svo sem námsmönnum, börnum og heimavinnandi fólki, fullar bætur fyrir líkamstjón sitt. Enn athyglisverðara er að Hæstiréttur bendir sérstaklega á að Alþingi hafi ekki brugðist við þessari þróun með því að breyta skaðabótalögum. Afleiðing þess kann að vera sú að stjórnarskrárvarinn réttur tjónþolans til skaðabóta sé ekki tryggður. Að okkar mati eru skilaboð Hæstaréttar skýr: Alþingi verður að bregðast við og færa skaðabótalög til nútímans. Þetta er ekki nýtt ákall. Árið 2018 lagði Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, fram frumvarp sem fól meðal annars í sér breytingar á því ákvæði skaðabótalaga sem var til umfjöllunar hjá Hæstarétti, og reyndar fleirum. Frumvarpið náði þó ekki lengra en til fyrstu umræðu á þingi. Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og þáverandi félagi í Flokki fólksins, lagði fimm sinnum fram tillögur í formi frumvarps um breytingar á skaðabótalögum en án árangurs. Það var áður en flokkurinn komst í ríkisstjórn. Það verður ekki lengur undan því komist að endurskoða skaðabótalög. Sú uppfærsla er á höndum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Í ráðuneyti hennar liggur nú þegar fyrir uppfært frumvarp um breytingar á skaðabótalögum frá árinu 2022 sem auðvelt er að dusta rykið af. Við skorum á dómsmálaráðherra að bregðast við skýrum skilaboðum Hæstaréttar og hefur bréf þess efnis verið sent henni. Tjónþolar eiga ekki að þurfa að bíða lengur eftir lögum sem tryggja þeim fullar bætur. Skaðabótalög eiga enda að endurspegla samfélagið í dag, ekki samfélag síðustu aldar. Agnar Þór Guðmundsson lögmaður Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður Björgvin Þórðarson lögmaður Bryndís Gyða Michelsen lögmaður Elimar Hauksson lögmaður Erling Daði Emilsson lögmaður Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður Haukur Freyr Axelsson lögmaður Helgi Birgisson lögmaður Hörður Þór Jóhannsson lögmaður Ívar Þór Jóhannsson lögmaður Kristján B. Thorlacius lögmaður Marlena Piekarska lögmaður Óðinn Elísson lögmaður Óðinn Ingi Þórarinsson lögmaður S. Sif Thorlacius lögmaður Styrmir Gunnarsson lögmaður Sveinbjörn Claessen lögmaður Tinna Björk Gunnarsdóttir lögmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Halldór 24.10.26 Halldór Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hvað hefði ungur námsmaður getað unnið sér inn um ævina ef hann hefði ekki lent í umferðarslysi? Hæstiréttur þurfti að svara þeirri spurningu með dómi sem kveðinn var upp síðastliðinn miðvikudag í máli nr. 4/2026. Ágreiningur námsmannsins og vátryggingafélagsins snerist um líklegar framtíðartekjur námsmannsins, en mat á þeim getur skipt sköpum fyrir fjárhæð skaðabóta. Það vakti athygli okkar undirritaðra lögmanna að í dómi Hæstaréttar, sem og í sératkvæði tveggja dómara, er sérstaklega vísað til þess að skaðabótalög séu úrelt. Lögin tryggja ekki lengur ýmsum hópum tjónþola, svo sem námsmönnum, börnum og heimavinnandi fólki, fullar bætur fyrir líkamstjón sitt. Enn athyglisverðara er að Hæstiréttur bendir sérstaklega á að Alþingi hafi ekki brugðist við þessari þróun með því að breyta skaðabótalögum. Afleiðing þess kann að vera sú að stjórnarskrárvarinn réttur tjónþolans til skaðabóta sé ekki tryggður. Að okkar mati eru skilaboð Hæstaréttar skýr: Alþingi verður að bregðast við og færa skaðabótalög til nútímans. Þetta er ekki nýtt ákall. Árið 2018 lagði Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, fram frumvarp sem fól meðal annars í sér breytingar á því ákvæði skaðabótalaga sem var til umfjöllunar hjá Hæstarétti, og reyndar fleirum. Frumvarpið náði þó ekki lengra en til fyrstu umræðu á þingi. Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og þáverandi félagi í Flokki fólksins, lagði fimm sinnum fram tillögur í formi frumvarps um breytingar á skaðabótalögum en án árangurs. Það var áður en flokkurinn komst í ríkisstjórn. Það verður ekki lengur undan því komist að endurskoða skaðabótalög. Sú uppfærsla er á höndum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Í ráðuneyti hennar liggur nú þegar fyrir uppfært frumvarp um breytingar á skaðabótalögum frá árinu 2022 sem auðvelt er að dusta rykið af. Við skorum á dómsmálaráðherra að bregðast við skýrum skilaboðum Hæstaréttar og hefur bréf þess efnis verið sent henni. Tjónþolar eiga ekki að þurfa að bíða lengur eftir lögum sem tryggja þeim fullar bætur. Skaðabótalög eiga enda að endurspegla samfélagið í dag, ekki samfélag síðustu aldar. Agnar Þór Guðmundsson lögmaður Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður Björgvin Þórðarson lögmaður Bryndís Gyða Michelsen lögmaður Elimar Hauksson lögmaður Erling Daði Emilsson lögmaður Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður Haukur Freyr Axelsson lögmaður Helgi Birgisson lögmaður Hörður Þór Jóhannsson lögmaður Ívar Þór Jóhannsson lögmaður Kristján B. Thorlacius lögmaður Marlena Piekarska lögmaður Óðinn Elísson lögmaður Óðinn Ingi Þórarinsson lögmaður S. Sif Thorlacius lögmaður Styrmir Gunnarsson lögmaður Sveinbjörn Claessen lögmaður Tinna Björk Gunnarsdóttir lögmaður
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun