Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar 20. október 2026 10:47 Það er eitthvað ákaflega íslenskt við það að ræða framtíð sjálfkeyrandi bíla og fyrsta hugmyndin sé að senda þá til Vestmannaeyja. Ég held það sé reyndar geggjuð hugmynd, Vestmanneyingar hafa sýnt það í gegnum árin að það eru fáir með betri aðlögunarhæfni. En áður en við sendum fyrsta sjálfkeyrandi bílinn um götur Heimaeyjar þurfum við að svara einni mikilvægri spurningu: Ætlum við að nota þessa tæknibyltingu til að fækka bílum á götunum eða bara fylla göturnar af bílum sem enginn situr undir stýri á? Framsýni sem ber að fagna Á Alþingi í gær fóru fram áhugaverðar umræður um sjálfkeyrandi bíla. Sérstaklega vil ég hrósa Sigríði Andersen fyrir að hefja þessa umræðu í gær og Rósu Guðbjartsdóttur fyrir frábæra umfjöllun um sjálfkeyrandi bíla undanfarið. Þetta er nákvæmlega sú framsýni sem við þurfum frá stjórnmálafólki. Að undirbúa jarðveginn áður en tæknin bankar upp á, í stað þess að hlaupa á eftir þróuninni. Ég tek líka undir mikilvægar áhyggjur Dags B. Eggertssonar og Pawels Bartoszek af því að sjálfkeyrandi bílar geti aukið umferð í stað þess að draga úr henni. Pawel tók skemmtilegt dæmi af tónleikagesti í Hörpu sem sendir sjálfkeyrandi bílinn sinn heim í stað þess að leggja honum. Bíllinn kemur svo aftur að sækja eigandann. Tvær ferðir eru orðnar fjórar, án þess að nokkur nýr farþegi hafi bæst við. Þetta er einmitt sú framtíð sem við eigum að forðast. Lausnin er deilihagkerfið Sjálfkeyrandi bílar eru stórkostlegt tækifæri, en tæknin ein og sér leysir engan umferðarvanda. Munurinn liggur í því hvernig við nýtum hana. Í stað þess að hvert heimili eigi sinn sjálfkeyrandi bíl, sem stendur ónotaður stærstan hluta sólarhringsins eða keyrir tómur um göturnar, getum við byggt upp samgöngukerfi þar sem færri bílar nýtast fleirum. Og það þarf ekki að finna upp rekstrarmódel. Það er nú þegar til staðar. Við hjá Hopp höfum undanfarin sjö ár byggt upp deilihagkerfi á Íslandi. Yfir 100 þúsund einstaklingar nota þjónustuna árlega. Margir þeirra eru með bílpróf, gætu keypt sér bíl, en kjósa samt að deila farartækjum í stað þess að nota eigin bíl í hverja ferð. Við rekum rafskútur, rafknúna deilibíla og leigubíla. Við vitum hversu flókið það getur verið að dreifa farartækjum eftir eftirspurn, tryggja aðgengi, sinna viðhaldi og veita góða þjónustu. Sjálfkeyrandi bíll þarf nefnilega ekki bara að kunna að keyra. Einhver þarf að reka þjónustuna í kringum hann. Þetta er ekki bara tækniverkefni. Þetta er rekstrarverkefni. Ríkið á að setja leikreglurnar, ekki reka bílana Ég fagna hugmyndinni um að prófa sjálfkeyrandi bíla í Vestmannaeyjum. En ég tel mikilvægt að ríkið fari ekki sjálft í rekstur slíkrar þjónustu. Hlutverk stjórnvalda er að tryggja öryggi, skýra ábyrgð, setja skynsamlegar reglur og skapa aðstæður fyrir nýsköpun. Einkaaðilar sem þegar hafa reynslu af deilisamgöngum eru hins vegar vel í stakk búnir til að annast daglegan rekstur, í samstarfi við tæknifyrirtæki og hið opinbera. Það væri óþarfi að byggja upp nýtt opinbert rekstrarkerfi utan um þjónustu sem einkaaðilar hafa þegar þróað og öðlast reynslu af. Stærsta tækifærið er bíllinn sem við þurfum ekki að kaupa Við höfum lengi rætt orkuskipti út frá því hvað knýr bílana áfram. En rafbíll tekur jafn mikið pláss og bensínbíll og sjálfkeyrandi bíll tekur jafn mikið pláss og bíll með ökumanni. Raunverulega byltingin verður þegar tæknin gerir okkur kleift að nýta færri bíla betur. Þegar fjölskyldur geta sleppt öðrum bílnum. Þegar eldra fólk og fólk án bílprófs fær aukið ferðafrelsi. Þegar við hættum að líta á einkabíl sem nauðsynlega eign og förum að líta á aðgang að bíl sem sjálfsagða þjónustu. Við þurfum að sjálfsögðu að prófa tæknina við íslenskar aðstæður, tryggja öryggi og gæta þess að tómar ferðir auki ekki umferðina. En við eigum líka að vera metnaðarfull. Byrjum endilega í Eyjum. En hugsum stærra. Við hjá Hopp erum tilbúin að taka þátt í þeirri vegferð. Framtíðin á ekki að vera sú að hver Íslendingur eignist sjálfkeyrandi bíl. Hún á að vera sú að hver Íslendingur hafi aðgang að þeim ferðamáta sem passar ferðinni sem hann fer í þegar hann þarf á honum að halda, án þess að þurfa að eiga hann. Það væri bylting sem væri þess virði að keyra af stað. Höfundur er framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Hrefna Halldórsdóttir Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Halldór 24.10.26 Halldór Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun