Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar 20. október 2026 19:01 Hver borgar brúsann — og hvað gerðist ef íslenskir karlmenn tækju sér frí í einn dag? Hvað myndi gerast ef allir íslenskir karlmenn legðu niður störf í einn dag? Ekki bara þeir sem sitja á skrifstofum, í stjórnunarstöðum eða á Alþingi, heldur allir. Allir karlmenn. Sjómenn, vörubílstjórar, rafvirkjar, smiðir, pípulagningamenn, vélstjórar, verkamenn, bændur, flugmenn, lögreglumenni og allir hinir. Engir karlmenn færu á sjó. Fáir vörubílstjórar flyttu vörur milli landshluta. Engir karlkyns rafvirkjar mættu til að gera við bilanir í rafmagnskerfinu, engir karlkyns píparar kæmu þegar vatnslögnin spryngi. Engir karlkyns starfsmenn sinntu störfum sínum í virkjunum, álverum eða við hafnir landsins. Auðvitað færu karlkyns læknar, kennarar, hjúkrunarfræðingar og aðrir starfsmenn heilbrigðis- og menntakerfisins líka í frí. Svo mætti ganga skrefinu lengra. Karlarnir sinntu ekki heldur heimilisstörfum, börnum eða öldruðum ættingjum þennan dag. Hvað myndi gerast? Við þekkjum svarið við sambærilegri spurningu um konur. Hinn 24. október 1975 lögðu um 90% íslenskra kvenna niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags síns. Kvennafrídagurinn varð sögulegur viðburður, ekki aðeins á Íslandi heldur á heimsvísu. Konur gengu út af vinnustöðum sínum, heimili urðu að bjarga sér án vinnuframlags þeirra og þjóðin fékk áþreifanlega áminningu um að störf kvenna væru enginn sjálfsagður hlutur. Þetta var snjallt. En hvers vegna höfum við aldrei séð íslenska karlmenn ganga út af vinnustöðum sínum í stórum stíl, safnast saman á Austurvelli og minna þjóðina á hvað þeir leggja til samfélagsins? Hvers vegna er svo sjálfsagt að halda hátíðlega upp á framlag kvenna, en aldrei eru sambærilegar þakkir færðar körlum? Íslendingar hafa ekki verið sparir á sérstaka daga tileinkaða konum. Við höfum konudaginn, sem á sér rætur í gamla íslenska misseristalinu sem og alþjóðlegan baráttudag kvenna 8. mars, kvenréttindadaginn 19. júní og kvennafrídaginn 24. október. Á þessum dögum eru haldnar ræður og rifjuð upp afrek kvenna, réttindabarátta þeirra og framlag til samfélagsins. En hvað með karlmenn? Jú, þeir eiga bóndadaginn. Þá er við hæfi að færa bóndanum blóm, bjóða honum upp á steik eða kannski muna eftir því að hann sé til. En bóndadagurinn er ekki sambærilegur við kvenréttindadaginn eða alþjóðlegan baráttudag kvenna. Alþjóðlegur dagur karla er raunar til. Hann er haldinn 19. nóvember ár hvert og er m.a. ætlað að vekja athygli á jákvæðu framlagi karla til samfélagsins, heilsu þeirra, velferð og þeim vandamálum sem sérstaklega snerta karla og drengi. En hve margir Íslendingar vita það? Hve oft hefur íslenskur forsætisráðherra haldið hátíðarræðu á alþjóðlegum degi karla? Hve oft hefur þjóðin verið hvött til að þakka körlum fyrir framlag þeirra? Hve margar ráðstefnur, opinberar herferðir eða sérstakar dagskrár hafa verið tileinkaðar deginum? Kannski er kominn tími til að við hættum að líta á framlag karla sem sjálfsagðan hlut. Íslenska ríkið er ekki rekið á hátíðarræðum, jafnréttisáætlunum eða góðum ásetningi. Það er rekið á skattfé. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru meðalheildartekjur íslenskra karla árið 2025 rúmlega 960 þúsund krónur á mánuði. Meðalheildartekjur kvenna voru rúmlega 790 þúsund krónur. Munurinn er rúmlega tvær milljónir króna á ári. Á aldursbilinu 25 til 64 ára voru meðalheildartekjur karla um 1.088 þúsund krónur á mánuði, en kvenna 897 þúsund krónur. Skoðum annað atriði. Samkvæmt Hagstofu Íslands störfuðu um 40% starfandi kvenna hjá hinu opinbera árið 2025, en aðeins um 17% starfandi karla. Um 83% starfandi karla vinna utan opinbera geirans, en um 60% starfandi kvenna. Konur eru því mun líklegri en karlar til að starfa hjá ríki og sveitarfélögum. Þetta vekur mikilvægar spurningar um samsetningu íslenska hagkerfisins. Hverjir standa að baki framleiðslunni, framkvæmdunum, flutningunum og rekstrinum sem skapa forsendur fyrir þeirri þjónustu sem ríkið veitir? Sum störf eru ósýnileg í opinberri umræðu. Við tökum því sem sjálfsögðum hlut að rafmagnið komi þegar við ýtum á rofann, vatnið renni úr krananum og vörurnar séu komnar í verslanirnar þegar við þurfum á þeim að halda. Við hugsum sjaldan um fólkið sem heldur þessu öllu gangandi. Í nær öllum þessara atvinnugreina eru karlar í miklum meirihluta. Þeir vinna við mannvirkjagerð, vélaviðgerðir, þungaflutninga, sjósókn og ýmis önnur afar líkamlega erfið og hættuleg störf. Það er auðvelt að tala um jafnrétti í hlýjum fundarsal, þar sem kaffið er heitt og einhver annar sér um að rafmagnið virki. Það er öllu erfiðara að gera við rafmagnslínu í vetrarstormi eða vinna á dekki fiskiskips í vondum sjó. Árið 1975 lögðu íslenskar konur niður störf og sýndu þjóðinni hvað gerðist þegar vinnuframlag þeirra hvarf í einn dag. En hvað ef karlar gerðu slíkt hið sama? Framkvæmdir myndu stöðvast víða. Flutningakerfið yrði fyrir verulegri röskun. Fiskiskip með karlkyns áhafnir lægju við bryggju. Fjöldi fyrirtækja yrði að endurskipuleggja starfsemi sína. Viðhald og viðgerðir myndu tefjast og í ýmsum nauðsynlegum þjónustugreinum þyrfti að grípa til neyðarráðstafana. Og þá er ótalið allt það sem karlar gera utan launaðrar vinnu. Feður sem sjá um börnin sín, synir sem annast aldraða foreldra, eiginmenn sem sinna heimilum sínum. Afi sem sækir barnabörnin í leikskólann. Maðurinn sem lagar það sem bilar, mokar snjóinn eða keyrir ættingja sinn á sjúkrahús. Hvað ef þeir tækju sér líka frí? Skyndilega sæjum við betur hversu margt hvílir á herðum karla. Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum undanfarna áratugi. Umræða um jafnrétti hefur að nær öllu leyti snúist um stöðu kvenna og réttindi þeirra. En samfélög breytast, og umræðan þarf að breytast með því. Við getum ekki endalaust talað um kynin eins og staða þeirra sé óbreytt frá árinu 1975. Karlar standa líka frammi fyrir sérstökum vandamálum. Þar má nefna sjálfsvíg, brotthvarf úr námi, vinnuslys, einmanaleika og stöðu feðra eftir sambúðarslit. Þetta eru ekki smávægileg mál. En samt virðist athygli samfélagsins á stöðu karla takmörkuð við það hvernig þeir geti orðið betri feður, betri eiginmenn eða betri stuðningsmenn kvenna. Hvað með karlmennina sjálfa? Hvað með þeirra heilsu, líðan, réttindi, skyldur og framlag? Hvers vegna ætti að vera eitthvað vandræðalegt við að segja einfaldlega: Takk, strákar. Takk fyrir að byggja húsin okkar, leggja vegina, flytja vörurnar, leggja rafmagnið, skolpleiðslurnar, halda vélunum gangandi og vinna öll þessi störf sem samfélagið gæti ekki verið án. Takk fyrir skattana sem þið greiðið, börnin sem þið alið upp og fjölskyldurnar sem þið annist. Takk fyrir að vera til. Ég legg til að Íslendingar stofni til sérstaks karlafrídags, þar sem karlar leggja niður störf og þjóðin fær tækifæri til að átta sig á framlagi þeirra til samfélagsins. Okkar velferðarsamfélag væri ekki til án karlmanna og við ættum að minna þjóðina á það með eftirminnilegum hætti, t.d. með því að íslenskir karlar legðu niður störf í einn dag. Þá kæmi fljótt í ljós hversu mörgum hjólum samfélagsins þeir halda gangandi. Kannski er kominn tími til að sjá hvað gerist þegar karlmenn leggja niður störf. Ekki til að minna á hvað þeir eiga bágt, heldur til að minna á hvað þeir gera. Ég legg til að dagurinn verði haldinn hátíðlegur 24. nóvember. Dagsetning er ekki valin af handahófi, hún er afmælisdagurinn minn og sem sjálfskipaður verndari íslenskra karlmanna finnst mér auðvitað sanngjarnt að ég fái að velja hann. (🤭 Elska ykkur, strákarnir mínir!) Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun