Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar 20. október 2026 16:48 Kílómetragjaldið er enn eitt dæmið um alvarlegt tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni. Þeir borga sem nota! Spurt er: Af hverju ætti fólk á höfuðborgarsvæðinu sem aðeins skreppur út á land á sumrin og í páskafríum að greiða fyrir vegi á landsbyggðinni? Við fyrstu sýn hljómar það skynsamlega að þeir sem nýta vegakerfið fjármagni það. Ef við göngum út frá þeirri meginreglu að þeir einir eigi að greiða sem nota, þá hlýtur þessi spurning að vera jafn réttmæt og spurningin af hverju ætti einstaklingur sem viðheldur heilbrigðum lífsstíl að bera kostnað af heilbrigðisþjónustu einstaklings sem velur hið gagnstæða. Svarið er einfalt. Við búum í samfélagi þar sem við deilum ábyrgðinni á sameiginlegum innviðum og þjónustu. Við notum skattkerfið til að jafna aðstöðumun, tryggja jafnt aðgengi og standa saman þegar þarfir okkar eru mismunandi. Um þá grundvallarhugsun hefur almennt ríkt sátt á Íslandi. Við greiðum ekki aðeins fyrir það sem við sjálf notum hverju sinni. Við greiðum líka fyrir samfélagið sem við viljum búa í, fyrir innviði sem við gætum þurft á að halda síðar og fyrir það að aðrir hafi raunhæf tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi, óháð aðstæðum sínum. Af hverju ætti sú hugsun ekki líka að gilda um vegakerfið? Ólíkar aðstæður Íbúar á höfuðborgarsvæðinu búa við gerólíkan raunveruleika en íbúar á landsbyggðinni. Þar er víða stutt í vinnu, skóla, heilbrigðisþjónustu, íþróttir og tómstundir, auk þess sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu búa við þann lúxus að geta nýtt sér almenningssamgöngur. Staðan á landsbyggðinni er allt önnur. Fólk þarf oft að aka langar vegalengdir til þess að komast í grunnþjónustu sem er handan við hornið á höfuðborgarsvæðinu. Þess utan hefur núverandi ríkisstjórnin einnig verulega dregið úr framlögum til almenningssamganga á landsbyggðinni. Það er sérstök stefna að ætla sér að byggja skattlagninu eingöngu á eknum kílómetrum án þess að líta til mismunandi aðstæðna í jafn dreifbýlu landi og Íslandi. Verðmætin verða til úti á landi Í þessu samhengi er einnig rétt að halda því til haga að stór hluti verðmæta sem standa undir íslenskum útflutningi verður til á landsbyggðinni. Sjávarútvegur, fiskeldi, landbúnaður, orkuframleiðsla og stór hluti ferðaþjónustunnar byggjast á auðlindum, atvinnustarfsemi og fólki víða um land. Þessar atvinnugreinar skapa störf, útflutningstekjur og skatttekjur sem nýtast samfélaginu öllu. Þessi verðmætasköpun verður ekki til án samgangna. Fyrirtæki þurfa að flytja hráefni, vörur, aðföng og starfsfólk milli staða. Ferðaþjónustan byggist að stórum hluta á því að gestir geti ferðast um landið og upplifað þá þjónustu og náttúru sem Ísland hefur upp á að bjóða. Samgöngur eru því ekki aðeins kostnaður sem fylgir atvinnustarfsemi heldur ein af grunnforsendum hennar. Það er enginn vafi á því að landsbyggðin gegnir lykilhlutverki í útflutningsdrifnu hagkerfi Íslands og stendur undir lífskjörum og sameiginlegum innviðum alls landsins. Það virðist sem ríkisstjórnin hafi alveg gleymt að huga að þessu þegar farið var í að ákveðið hvernig vegakerfið yrði fjármagnað. Þá sætir það furðu að ríkisstjórnin ætli að leggja aukinn kostnað á samgöngur, sem eru forsenda verðmætasköpunar á landsbyggðinni, án þess að sýna fram á það með fullnægjandi hætti hvaða áhrif það hefur á atvinnulíf og byggðir. Kílómetragjaldið afhjúpar skilningsleysi ríkisstjórnarinnar á landsbyggðinni. Reykjavík er okkar? Reykjavík er höfuðborg Íslands og þar höfum við sammælst um að koma fyrir opinberum stofnunum, Landspítala, sérfræðiþjónustu og háskóla. En með tilkomu kílómetragjaldsins bera íbúar landsbyggðarinnar óhóflegan kostnað umfram íbúa höfuðborgarsvæðisins við það eitt að búa fjarri þjónustunni. Við getum ekki ætlast til þess að fólk búi og starfi um allt land, skapi verðmæti, haldi uppi atvinnulífi og stuðli að útflutningstekjum þjóðarinnar, en horft fram hjá því að það þarf að greiða hærra verð fyrir aðgengi að sömu þjónustu og íbúar höfuðborgarsvæðisins. Vinnusóknarsvæði höfuðborgarinnar í hættu Samkvæmt greiningu Byggðastofnunar teygir stækkað vinnusóknarsvæði höfuðborgarinnar sig í grófum dráttum norður að Borgarnesi, austur fyrir Selfoss og suður og vestur yfir öll Suðurnes. Fjöldi fólks ekur daglega frá þessum svæðum til þess að sækja vinnu. Hvað gerist ef starfsmaður sem býr á Akranesi, í Borgarnesi, á Suðurnesjum eða fyrir austan fjall metur það svo að kostnaðurinn við að sækja vinnu í Reykjavík sé orðinn of mikill? Landspítali og aðrir stórir vinnustaðir á höfuðborgarsvæðinu reiða sig á starfsfólk sem býr á vinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Ef ferðakostnaður eykst verulega getur það haft áhrif á ráðstöfunartekjur starfsfólks og gert tiltekin störf síður eftirsóknarverð fyrir þá sem búa lengra frá. Ég hef ekki fundið opinbert áhrifamat sem svarar sérstaklega hversu margir starfsmenn Landspítala gætu hætt störfum eða breytt vinnusókn sinni vegna kílómetragjaldsins en það væri svo sannarlega áhugavert að vita hvort lagt hafi verið mat á áhrif kílómetragjaldsins á vinnusókn og mönnun mikilvægra stofnana, svo sem Landspítala. Horfa verður til mismunandi aðstæðna Ég er alls ekki mótfallin því að greiða fyrir notkun á vegakerfinu en ég tel mikilvægt að horft sé til mismunandi aðstæðna fólks og gæta meðalhófs. Ef ríkisstjórnin vill byggja á meginreglunni „þeir borga sem nota“ verður hún jafnframt að horfast í augu við að notkunin er að hluta til óhjákvæmileg. Fólk getur ekki valið sér styttri vegalengdir milli heimilis, vinnu og þjónustu. Það getur heldur ekki eitt og sér ákveðið hvar heilbrigðisþjónusta, skólar eða störf eru staðsett. Því þarf að skoða hvort hægt sé að útfæra gjaldið með sanngjarnari hætti, þannig að tekið sé mið af búsetu og raunverulegum möguleikum fólks til að velja aðra samgöngumáta. Greiðsluþak er ein leið Í heilbrigðiskerfinu höfum við til dæmis greiðsluþak sem takmarkar hversu mikið einstaklingar þurfa að greiða sjálfir fyrir tiltekna heilbrigðisþjónustu á ákveðnu tímabili. Það er eðlilegt að spyrja hvort sambærileg sjónarmið eigi ekki einnig við þegar kemur að nauðsynlegum samgöngum. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrv. innviða- og fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknar hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi sem felur í sér skattfrádrátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu. Markmið tillögunnar er að tryggja réttláta meðferð þeirra sem bera verulegan kostnað vegna daglegra ferða til og frá vinnu. Það er ein leið. Það er ljóst að nauðsynlegt er að setja þak á árlegan kostnað heimila vegna kílómetragjalds eða útfæra sérstakar leiðir til að mæta aðstæðum þeirra sem búa þar sem aðrir samgöngumátar eru ekki raunhæfur kostur? Mikilvægt er að útfæra kílómetragjaldið þannig að það taki betur mið af búsetu og raunverulegum möguleikum fólks til að velja aðra samgöngumáta. Einnig þarf að meta áhrif gjaldsins á atvinnulíf, vinnusókn og verðlag í dreifðum byggðum. Slík nálgun krefst skýrra gagna og vandaðrar útfærslu. Má biðja ríkisstjórnina um að vanda sig? Höfundur er í sveitarstjórn í Borgarbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Halldór 24.10.26 Halldór Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun