Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar 21. október 2026 07:30 Eitt það áhugaverðasta sem kemur í ljós þegar áhrif fjárlagafrumvarpsins á einstök heimili eru skoðuð er hversu mismunandi áhrif krónutölur einar og sér geta verið. Tökum dæmi af tveimur heimilum. Áætluð viðbótarbyrði fjárlagafrumvarpsins árið 2027 er nánast sú sama í krónum. Hjá tekjulægra heimilinu nemur hún 343,5 þúsund krónum en hjá því tekjuhærra 353,4 þúsund krónum. Við fyrstu sýn mætti því halda að áhrifin væru nánast þau sömu. En þar með er aðeins hálf sagan sögð. Hjá tekjulægra heimilinu jafngildir þessi byrði um 26% af einum mánaðarlaunum fyrir skatt. Hjá tekjuhærra heimilinu er hlutfallið aðeins 11%. Þessi munur skiptir miklu máli. Gjald sem er það sama í krónum leggst nefnilega ekki jafnt á alla. Fimm eða tíu þúsund króna hækkun getur verið tiltölulega lítil í heimilisbókhaldi þar sem mikið svigrúm er til staðar, en haft allt önnur áhrif þar sem stór hluti teknanna fer þegar í húsnæði, mat, samgöngur og aðrar nauðsynjar. Þegar lítið svigrúm er fyrir skiptir hver króna máli. Þetta er ein ástæða þess að ekki nægir að meta einstakar ráðstafanir fjárlaga út frá því hversu miklum tekjum þær skila ríkissjóði. Það þarf einnig að spyrja hver greiðir, hversu mikið og miðað við hvaða greiðslugetu. Sama gildir um breytingar á barnabótum, vaxtabótum, skattaviðmiðum og annarri opinberri gjaldtöku. Einstök breyting kann að virðast lítil þegar hún er skoðuð ein og sér. En heimilin upplifa allar breytingarnar samtímis og áhrifin leggjast saman í sama heimilisbókhaldið. Þess vegna skiptir máli að horfa á samanlögð dreifingaráhrif fjárlaga. Við í Framsókn teljum að það eigi að verða sjálfsagður hluti af fjárlagagerð að birta greiningu á áhrifum stærri breytinga eftir tekjuhópum, fjölskyldugerðum og eftir atvikum skuldastöðu. Það myndi auka gagnsæi og gera bæði Alþingi og almenningi kleift að meta betur hver raunverulega ber kostnaðinn af einstökum ákvörðunum. Slík greining er ekki aukaatriði. Hún snýst um sanngirni í hagstjórn. Tvö heimili geta fengið nánast sama reikninginn í krónum en fundið gjörólíkt fyrir honum. Þess vegna á spurningin við gerð fjárlaga ekki aðeins að vera hversu mikið ríkið innheimtir. Við verðum líka að spyrja hversu þungt reikningurinn leggst á þann sem greiðir hann. Það er munurinn á því að skoða aðeins tölurnar í ríkissjóði og að sjá raunveruleg áhrif fjárlaganna á líf fólks. Ég hvet ríkisstjórnina til að lækka álögur á heimilin í landinu. Höfundur er varaborgarfulltrúi Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Daníelsson Framsóknarflokkurinn Fjármál heimilisins Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Halldór 24.10.26 Halldór Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Eitt það áhugaverðasta sem kemur í ljós þegar áhrif fjárlagafrumvarpsins á einstök heimili eru skoðuð er hversu mismunandi áhrif krónutölur einar og sér geta verið. Tökum dæmi af tveimur heimilum. Áætluð viðbótarbyrði fjárlagafrumvarpsins árið 2027 er nánast sú sama í krónum. Hjá tekjulægra heimilinu nemur hún 343,5 þúsund krónum en hjá því tekjuhærra 353,4 þúsund krónum. Við fyrstu sýn mætti því halda að áhrifin væru nánast þau sömu. En þar með er aðeins hálf sagan sögð. Hjá tekjulægra heimilinu jafngildir þessi byrði um 26% af einum mánaðarlaunum fyrir skatt. Hjá tekjuhærra heimilinu er hlutfallið aðeins 11%. Þessi munur skiptir miklu máli. Gjald sem er það sama í krónum leggst nefnilega ekki jafnt á alla. Fimm eða tíu þúsund króna hækkun getur verið tiltölulega lítil í heimilisbókhaldi þar sem mikið svigrúm er til staðar, en haft allt önnur áhrif þar sem stór hluti teknanna fer þegar í húsnæði, mat, samgöngur og aðrar nauðsynjar. Þegar lítið svigrúm er fyrir skiptir hver króna máli. Þetta er ein ástæða þess að ekki nægir að meta einstakar ráðstafanir fjárlaga út frá því hversu miklum tekjum þær skila ríkissjóði. Það þarf einnig að spyrja hver greiðir, hversu mikið og miðað við hvaða greiðslugetu. Sama gildir um breytingar á barnabótum, vaxtabótum, skattaviðmiðum og annarri opinberri gjaldtöku. Einstök breyting kann að virðast lítil þegar hún er skoðuð ein og sér. En heimilin upplifa allar breytingarnar samtímis og áhrifin leggjast saman í sama heimilisbókhaldið. Þess vegna skiptir máli að horfa á samanlögð dreifingaráhrif fjárlaga. Við í Framsókn teljum að það eigi að verða sjálfsagður hluti af fjárlagagerð að birta greiningu á áhrifum stærri breytinga eftir tekjuhópum, fjölskyldugerðum og eftir atvikum skuldastöðu. Það myndi auka gagnsæi og gera bæði Alþingi og almenningi kleift að meta betur hver raunverulega ber kostnaðinn af einstökum ákvörðunum. Slík greining er ekki aukaatriði. Hún snýst um sanngirni í hagstjórn. Tvö heimili geta fengið nánast sama reikninginn í krónum en fundið gjörólíkt fyrir honum. Þess vegna á spurningin við gerð fjárlaga ekki aðeins að vera hversu mikið ríkið innheimtir. Við verðum líka að spyrja hversu þungt reikningurinn leggst á þann sem greiðir hann. Það er munurinn á því að skoða aðeins tölurnar í ríkissjóði og að sjá raunveruleg áhrif fjárlaganna á líf fólks. Ég hvet ríkisstjórnina til að lækka álögur á heimilin í landinu. Höfundur er varaborgarfulltrúi Framsóknar.
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun