Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar 20. október 2026 21:00 Ég er búsett í fjölmenningarborginni Malmö og ég væri að ljúga því ef ég myndi fullyrða að hér væru engin innflytjendatengd vandamál. Má þar helst nefna hækkaða afbrotatíðni í fátækum hverfum, óeirðir og hefndaraðgerðir á milli glæpagengja. Mér finnst sænsk yfirvöld þó hafa mætt þessum vanda afspyrnu vel og afbrotatíðni hefur farið lækkandi hérna með auknum aðgerðum og ekki síst mannúðarkærleika. Malmö er borg tækifæra, inngildingar og jafnréttis. Hér býr fólk af ólíkum uppruna saman í samfélagi sem hefur auðgast af fjölbreytileikanum og borgin er nú í miklum blóma og uppbyggingu. Að því sögðu langar mig líka að segja ykkur nokkrar sögur. Þegar ég var nýflutt hingað út aftur árið 2017 átti sér stað skelfilegt morð skammt frá borginni. Í hafinu nánar tiltekið, í Eyrarsundinu. Þar myrti danskur uppfinningamaður sænsku blaðakonuna Kim Wall í kafbátinum sínum, bútaði hana niður og henti fyrir borð. Ég man að þetta fékk rosalega á mig og ég óttaðist um öryggi mitt sem kona hreinlega. Það hefur enginn glæpur komið nálægt því að vera eins svæsinn síðan þá að mínu mati. Það hafa aldrei átt sér stað hryðjuverk hérna, en það sem kemst næst því er þegar svíinn Johan Peter Mangs, raðmorðingi, var ákærður fyrir þrjú morð og tólf morðtilraunir þegar hann skaut á innflytjendur í Malmö. Hann hafði tekið sér annan raðmorðingja til fyrirmyndar; Leysigeislamanninn (Lasermannen) sem reyndi að stráfella innflytjendur. Sá heitir John Wolfgang Alexander Ausonius og er sænskur. Reyndar var mamma hans þýsk og faðir frá Sviss þannig að það má vissulega segja að hann hafi verið með innflytjendabakgrunn. En hann var samt hrifinn af Hitler og aðhylltist nýnasisma. Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik, sem myrti 77 manns, horfði til hans líka og aðrir hryðjuverkamenn í Þýskalandi urðu einnig fyrir innblæstri af honum og myrtu fjölda innflytjenda. Hvað um það, mér finnst vert að nefna þetta þegar talað er um glæpi og morð í stærra samhengi. Mestu óeirðirnar sem ég hef upplifað hérna í Malmö voru þegar daninn Rasmus Paludan birtist í Malmö árið 2022 og makaði trúarrit múslima í svínafitu og kveikti svo í bókinni á torgi hérna. Það fór fyrir brjóstið á mörgum man ég og mótmælin voru hávær. Eins hafa afhöfðuð grísahöfuð verið skilin eftir fyrir utan bænarhús múslima hérna í Malmö ítrekað. Sem mér finnst líka bara virkilega ógeðslegt og hatursfullt. Mér finnst í raun ekki skrýtið að það stuði marga. Veit ekki með ykkur? Svo er annað sem er vert að nefna að í sumar gleymdi ég farsímanum mínum í dönskum Uber-leigubíl eftir að hafa ferðast yfir Eyrarsundið ásamt nokkrum kórfélögum. Bílstjórinn var arabískur maður sem ég held að hafi heitið Muhammed. Þegar við áttuðum okkur á því að síminn var týndur reyndum við að hringja í hann. Bílstjórinn var þá kominn langleiðina að Eyrarsundsbrúnni á leið aftur til Danmerkur. Hann heyrði símann hringja í aftursætinu, sneri við og ók alla leið aftur inn í miðborg Malmö til að koma símanum til skila hjá öryggisvörðum á lestarstöðinni. Ég lenti í öðru sambærilegu atviki í síðustu viku þegar arabískur innflytjandi hringdi í símann minn eftir að hafa fundið síma með veski á víðavangi og var að reyna að hafa uppi á eigandanum og koma símanum til skila. Þetta var sími foreldris vinar sonar míns. Engu hafði verið stolið. Auðvitað segja þessar tvær sögur ekkert um afbrotatíðni eða önnur samfélagsleg vandamál. En þær minna okkur á að fólk er misjafnt og meirihlutinn er gott fólk. Það er ósanngjarnt að dæma heilu þjóðirnar eða trúarhópa út frá hegðun fárra einstaklinga. Þegar maður af erlendum uppruna fremur glæp er oft eins og allur hópurinn þurfi að svara fyrir hann. En þegar innfæddur maður fremur glæp er hann yfirleitt bara talinn glæpamaður, án þess að þjóðernið sé dregið inn í umræðuna. Mér finnst svo ömurlegt að innflytjendur skuli þurfa að sitja undir þessum fordómum endalaust og efasemdum um heilindi og heiðarleika. En líklega er þetta bara aðlögunarferli sem þarf að eiga sér stað. Sérstaklega á Íslandi sem hefur litla reynslu. En mér finnst sérstaklega alvarlegt þegar valdamiklir menn á Íslandi koma með stórhuga yfirlýsingar um að múslimar sem afmarkaður hópur séu hættulegir eða slæmir. Það er ekki réttlátt eða uppbyggilegt og hreinlega ekki satt. Nýjasta dæmið er þegar Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, fullyrti með alhæfingunni að múslimar „valda skaða“ í tengslum við mynd af mótmælum sem reyndist auk þess vera frá Svíþjóð en ekki Frakklandi. Orð valdamikilla manna hafa vægi og afleiðingar. Það eru akkúrat svona yfirlýsingar sem geta kynt undir hatri og öfgahyggju og skapað jarðveg fyrir ofbeldi á borð við það sem sænskir raðmorðingjar hafa framið gegn fólki af erlendum uppruna. Við skulum vona að slíkt fái aldrei að skjóta rótum á Íslandi. Við höfum enn val um hvert stefnir. Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innflytjendamál Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Halldór 24.10.26 Halldór Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun