Willum í stjórn Litla spítalans Agnar Már Másson skrifar 20. október 2026 22:46 Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður af Willum þegar sá síðarnefndi var heilbrigðisráðherra. Samsett Mynd Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, stefnir samkvæmt heimildum Vísis í stjórn Litla spítalans, einkarekinnar heilbrigðisstofnunar sem til stendur að starfrækja við Háaleitisbraut. Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður í ráðherratíð Willums.
Willum, sem er í dag forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), var heilbrigðisráðherra á árunum 2021–2024 og Guðrún Ása Björnsdóttir, stofnandi Litla spítalans ehf., var aðstoðarmaður hans frá 2022. Hvorugt þeirra vildi staðfesta þessar fregnir þegar Vísir hafði samband né tjá sig um málið. Að svo stöddu hefur Guðrún Ása ein setið í stjórn félagsins frá því að það var stofnað í janúar þessa árs. Samþykkt félagsins frá því í lok júní kveður aftur á móti á um að þrír til fimm stjórnarmenn verði að vera kjörnir á aðalfundi félagsins (nema ef hluthafar eru fjórir eða færri). Enn á því eftir að skipa stjórn félagsins og enn liggur ekki fyrir hverjir aðrir muni sitja í stjórninni. Samkvæmt heimildum Vísis er Willum þó ekki á förum frá ÍSÍ. Óvissa um fjármagn Enn er uppi óvissa um fjármögnun verkefnisins þar sem Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sagt að ekkert fjárhagslegt svigrúm sé hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum. Félagið bíður enn svara við erindi sínu frá Sjúkratryggingum Íslands og ekki liggur enn fyrir hvort, og þá með hvaða hætti, SÍ myndi taka þátt í kostnaði við þjónustuna. Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, var skipaður af Willum árið 2023. Ráðningin var umdeild á sínum tíma þar sem ekki var auglýst í starfið. Stórt og mikið verkefni Litli spítalinn á að vera einkarekin heilbrigðisþjónusta sem hefur verið í undirbúningi í Austurveri að Háaleitisbraut 68 í Reykjavík síðustu mánuði. Heilbrigðisstofnuninni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu. Umfangsmiklar framkvæmdir standa um þessar mundir yfir á svæðinu. Auk Guðrúnar, sem er sérhæfð í lyflækningum, kemur fjöldi reynslubolta úr heilbrigðiskerfinu að verkefninu. Þar á meðal Hilmar Kjartansson, fyrrverandi yfirlæknir bráðadeildar Landspítalans, – en hann mun stýra heilbrigðisstofnuninni – og Eggert Eyjólfsson, yfirmaður bráðalækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), sem mun sinna lækningum.
Sjúkratryggingar Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) ÍSÍ Framsóknarflokkurinn Tengdar fréttir Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Ekkert fjárhagslegt svigrúm er hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum, segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. Hvorki hafi verið gerður samningur um kaup ríkisins á þjónustunni né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku. Hún segir smáslys ekki vera meginvanda bráðamóttöku Landspítalans. 14. október 2026 16:33 Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra. 20. október 2026 15:17 Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur. 14. október 2026 07:01 Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira
Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Ekkert fjárhagslegt svigrúm er hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum, segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra. Hvorki hafi verið gerður samningur um kaup ríkisins á þjónustunni né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku. Hún segir smáslys ekki vera meginvanda bráðamóttöku Landspítalans. 14. október 2026 16:33
Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra. 20. október 2026 15:17
Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur. 14. október 2026 07:01