Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar 21. október 2026 09:01 Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er ein af perlum borgarinnar - það er óumdeilt. Reykvísk börn úr leik- og grunnskólum fara reglulega í heimsókn þangað, læra um húsdýrin og njóta þess að vera í návist þeirra inni í miðri borg og margar fjölskyldur eiga árskort í garðinum. Garðurinn er byggður fyrir útsvarstekjur Reykvíkinga - Reykvíkingar eiga garðinn - og Reykvíkingar, börn og fjölskyldur, munu áfram hafa aðgengi að garðinum á sanngjörnu og viðráðanlegu verði. Er einhver þarna úti með hugmynd? Í gær samþykkti borgarstjórn að kanna hvort einhverjir þarna úti, einkaaðilar, atvinnulíf, veitingamenn eða aðrir hafi áhuga á því að stíga frekar inn í uppbyggingu og rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins með Reykjavíkurborg. Tillagan er opin, einmitt vegna þess að við gerum okkur grein fyrir því að sjaldnast hafa stjórnmálamenn bestu hugmyndirnar um það sem gera má. En vel er hægt að sjá fyrir sér að einhverjir hafi áhuga á því að að opna veitingastaði inni í garðinum, búa til veislusal sem hægt er að leigja út og sjái tækifæri til þess að þróa frekar uppbyggingu afþreyingar og tækja í garðinum. Atvinnulífið er ekki óvinur Við í Viðreisn lítum ekki á atvinnulíf og einkaframtak sem óvini eða einhvern framandi þjóðflokk sem við eigum að vera hrædd við. Þvert á móti finnst okkur lykilatriði að borgin sé áfram í góðu samstarfi við einkaaðila og atvinnulíf og horfi til tækifæra til þess að útvista eða efna til samstarfs þar sem það á við. Reykjavík er ekki best til þess fallin að gera allt ein. Reykjavík er heldur ekki best til þess fallin að sjá um og viðhalda fjölmörgum eignum sínum einsog bersýnilega hefur komið í ljós. Innviðaskuld hleypur á tugum milljarða Sú innviðaskuld sem borgin stendur frammi fyrir er svimandi há. Samtök iðnaðarins gerðu úttekt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga í byrjun síðasta árs og niðurstaðan er sú að uppsöfnuð viðhaldsskuld eingöngu á fasteignum sveitarfélaga eru 95 milljarðar, Reykjavík á sirka þriðjung af því. Það átti að gera við Laugardalslaugina fyrir smáþjóðaleikana - þeir fóru fram árið 1997. Enn hefur ekki verið gert við laugina. Laugarnesskóli hefur verið í myglu og viðhaldsveseni í mörg ár, Vörðuskóli, Stúkan, Kvistaborg, Ölduselsskóli, Hagaskóli, Vinagerði, ÍR heimilið, aðstaða Fylkis, ástand vega og gangstétta í borginni. Viðhaldslistinn er því miður miklu lengri. Meirihlutinn í borginni lokar ekki augunum og lætur einsog hér sé allt í lukkunnar velstandi. Ástand á sameiginlegum eigum okkar, eigum Reykvíkinga, er fjarri því að vera í lagi. Ef vel á að vera þyrftum við að fjárfesta í innviðum fyrir á fjórða tug milljarða á næsta ári. Við náum rétt rúmum helmingnum af því. Perlan og Klambrar Bistro Perlan er gott dæmi um eign sem borgin seldi frá sér á síðasta kjörtímabili og blómstrar nú í höndum einkaaðila og er á hverju ári einn af eftirsóttustu ferðamannastöðum í Reykjavík. Víðar höfum við góða reynslu af innkomu einkaaðila t.d. í uppbyggingu leik- og grunnskóla en eins má nefna veitingastaðinn á Kjarvalsstöðum Klambrar Bistro sem blómstrar í höndunum á fagfólki sem eru ekki beinir starfsmenn Reykjavíkur. Við viljum gjarnan fá meira samtal við einkaaðila, atvinnulíf og hugmyndaríkt fólk sem vill hjálpa okkur að gera Reykjavík enn betri. Nú kortleggjum við tækifærin til þess að gera Fjölskyldu- og húsdýragarðinn ennþá betri og eftirsóttari, án þess að fórna þeim miklum gæðum sem í garðinum eru fólgin fyrir reykvísk börn. Við í Viðreisn fögnum þessari tillögu og hlökkum til vinnunnar framundan. Höfundur er oddviti Viðreisnar og forseti borgarstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Magnúsdóttir Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun