Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar 21. október 2026 11:33 Bæjarstjóri birtir mynd af hópi dökkleitra karlmanna og tengir hana með háði við mótmæli námsmanna í Frakklandi. Þegar bent er á að myndin sé frá öðru landi segist hann vita það. Síðan tekur við fullyrðing um að straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, valdi skaða. Þannig er atburðarásinni lýst í frétt Vísis af ummælum Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss. Stöldrum aðeins við þetta. Mynd sem tengist ekki atburðunum verður innlegg í umræðu um þá. Útlit mannanna á myndinni á greinilega að segja okkur eitthvað um hverjir standi að baki mótmælum og óeirðum í öðru landi. Þegar tengingin stenst ekki heldur ályktunin samt velli. Hvaða máli skipta þá staðreyndirnar? Það er fullkomlega eðlilegt að ræða innflytjendamál. Ræða þarf húsnæðisskort, tungumálakennslu, atvinnuþátttöku, skóla, réttindi og skyldur. Það má gagnrýna trúarbrögð, stjórnmálahreyfingar og tiltekna hegðun. Ofbeldi og skemmdarverk á að rannsaka og gerendur eiga að bera ábyrgð. En mynd af óviðkomandi fólki segir okkur ekkert um gerendur óeirða. Af húðlit verður ekki ráðið hvaða trú fólk aðhyllist eða hvort það sé trúað. Og trúarbrögð einstaklings gera hann ekki ábyrgan fyrir gjörðum annarra sem eru sömu trúar. Það þarf engar sérfræðigráður til að sjá rökvilluna. Ef halda á fram orsakasambandi milli innflytjenda, trúarbragða og samfélagslegs skaða þarf að skilgreina fullyrðinguna og færa fyrir henni gögn. Óviðkomandi ljósmynd og háð um fólkið á henni gera það ekki. Þetta er óttapólitík. Hrein og klár. Flóknum samfélagsmálum er þrýst inn í einfalda sögu: Þau eru vandamálið. Þau ógna okkur. Einhver verður að þora að segja það. Slík orðræða höfðar til fordóma og getur aflað fylgis. En hún leysir engan húsnæðisvanda, bætir enga skóla og gerir umræðuna ekkert upplýstari. Hún beinir tortryggni að fólki sem hefur ekkert til saka unnið. Þess vegna er þetta ekki meinlaust pólitískt skot. Múslimar sem búa hér á landi eru fólk með ólíkar skoðanir, störf, lífsreynslu og tengsl við trú sína. Börn og fullorðnir. Samstarfsfólk og nágrannar. Enginn þeirra á að þurfa að svara til saka fyrir óeirðir í öðru landi vegna nafns síns, útlits eða trúar. Bæjarstjóri gegnir ábyrgðarstöðu gagnvart heilu samfélagi. Íbúar eiga að geta treyst því að hann mæti þeim af sanngirni, líka þeir sem tilheyra minnihlutahópum. Hvaða skilaboð fær múslimsk fjölskylda þegar bæjarstjóri talar með þessum hætti? Hvaða ályktun á barn að draga um stöðu sína þegar fullorðnir valdamenn tengja fólk af sömu trú við samfélagslegan skaða? Við verðum að geta krafist þess að fólk í áhrifastöðum hugsi um þetta áður en það birtir næstu færslu. Og leiðrétti þegar það fer rangt með. Fjölmiðlar bera líka ábyrgð. Vísir birtir fréttina undir fyrirsögninni „Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima ‚valda skaða‘“. Í fréttinni er réttilega bent á að myndin tengist ekki atburðunum. En hvers vegna fær alhæfingin fyrirsögnina fremur en sú staðreynd að myndin sem bæjarstjórinn notar tengist ekki atburðunum? Fyrirsögn er líka blaðamennska. Margir lesa ekkert annað og þá getur alhæfingin ferðast lengra en leiðréttingin. Hér hefði verið fullt tilefni til að beina athyglinni að því að bæjarstjóri notaði ótengda mynd til að styðja mál sitt. Ég skora á Vísi að sýna meiri ritstjórnarlega ábyrgð. Smellir mega ekki vega þyngra en heiðarleg og upplýsandi framsetning. Sú gagnrýna yfirferð sem birtist í fréttinni þarf líka að endurspeglast í fyrirsögninni. Og fylgja þarf málinu eftir með skýrum spurningum til bæjarstjórans: Á hvaða gögnum byggir hann fullyrðinguna? Hvað á myndin að sanna úr því að hún tengist ekki atburðunum? Ætlar hann að leiðrétta þá tengingu gagnvart lesendum? Stóra fréttin hér er að valdhafi elur á tortryggni. Verkefni fjölmiðla er líka að láta reyna á hvort orð hans standist. Það er líka eðlilegt að spyrja hvar lagalegu mörkin liggi. Almenn hegningarlög vernda fólk gegn tiltekinni opinberri smánun og rógi vegna trúarbragða. Hvort þessi tilteknu ummæli fari yfir þau mörk þarf að meta með lögfræðilegum hætti. Mér finnst ástæða til að fá úr því skorið. En pólitísk og siðferðileg ábyrgð byrjar löngu áður en dómur fellur. Við þurfum ekki dómsúrskurð til að hafna villandi myndbirtingum og órökstuddri tortryggni í garð heils hóps. Vilji Elliði ræða innflytjendamál á hann að leggja fram skýrar fullyrðingar og gögn sem styðja þær. Vilji hann ræða óeirðir í Frakklandi á hann að halda sig við upplýsingar um þá atburði. Og þegar myndin tengist þeim ekki á hann að leiðrétta það gagnvart lesendum sínum. Við eigum að gera meiri kröfur til bæjarstjóra en að hann sé fær um að vekja ótta. Við eigum að krefjast þess að hann haldi sig við staðreyndir. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun