Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. október 2026 14:20 Magni R. Sigurðsson forstöðumaður CERT-IS. Vísir/Vilhelm Veikleiki á forritunarmáli sem jafnvel þúsundir íslenskra vefsíða nýta sér getur leitt til þess að netþrjótar komist yfir gögn sem finna má á vefsíðunum. Háskóli Íslands er meðal þeirra sem lokað hafa síðunum sínum tímabundið vegna veikleikans. Neyðaruppfærsla er komin og hvetur forstöðumaður CERT-IS alla til að uppfæra síðurnar sem fyrst. „
Það fundust tveir mjög alvarlegir veikveillar í PHP-forritunarmálinu,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, í samtali við fréttastofu. „Veikleikinn gerir kleift að taka yfir vefþjón og komast inn á hann í gegnum þennan veikleika og ná stjórn á honum og þar á meðal mögulega öllum gögnum sem eru þar á bak við.“ Upplýsingunum um veikleikann var lekið áður en lagfæring við honum var gefin út og skapaði það ákveðna áhættu. PHP-teymið hefur þegar gefið út neyðaruppfærslu og eru allir sem reka vefsíðu eða vefkerfi á PHP hvattir til þess að uppfæra kerfin sín strax. Magni segir að starfsmenn CERT-IS vinni að því að kortleggja vefi á Íslandi sem nýta sér PHP og hafa einnig samband við sinn þjónustuhóp. Hundruð eða jafnvel þúsundir vefa á Íslandi nota PHP-forritunarmálið. Á heimasíðu CERT-IS má sjá lifandi frétt þar sem allar nýjustu upplýsingar koma fram. Magni hvetur alla til að fylgjast með allri óeðlilegri umferð á vefsíðum þeirra. „Það sem við erum að sjá er að hýsingaraðilar eru að taka niður vefsíðurnar tímabundið á meðan uppfærslur eru framkvæmdar, sem er það sem að við viljum sjá að þessu sé tekið alvarlega.“ Persónuupplýsingar geta verið undir Vefsíður Háskóla Íslands nota PHP-forritunarmálið og hefur öllum síðum þeirra, þar á meðal innra kerfinu sem nefnist Ugla, verið lokað tímabundið. Vefir HÍ voru aftur opnaðir rétt fyrir klukkan fjögur eftir að kerfin voru uppfærð. Magni segir það misjafnt eftir því hvernig umsjónarkerfi eru sett upp hvaða upplýsingar væri hægt að komast yfir með þessum galla. „Innskráningarupplýsingar og annað getur verið undir, persónuupplýsingar sem eru skráðar í gagnagrunninn og annað. Það er misjafnt eftir vefsíðum.“ Nemendur við Háskóla Íslands fengu þennan tölvupóst. Öryggisgallinn á ekki einungis við vefsíður á Íslandi heldur út um allan heim. Í frétt BBC segir að einnig hafi verið lokað tímabundið fyrir vefsíður finnskra og hollenskra stjórnvalda vegna gallans. Þar kemur fram að PHP knýi áfram vefi sem byggja á WordPress, Drupal, Joomla og Magento. Notkunin á tækninni sé útbreidd og geti legið að baki opinberum vefsíðum, vefumsjónarkerfum og fleiru án þess að fyrirtækið eða stofnunin sem notar það viti af því. Fréttin hefur verið uppfærð.
Tækni Netglæpir Háskólar Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira