Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. október 2026 14:09 Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróður sem Óalfur Darri skrifar. GDCGraphics/Act 4 Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar.
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streymisveitu Símans, þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF og dreifingarfyrirtækis þess, ZDF Studios. Stóri Bróðir er saga um hefnd og réttlæti. Á hverju fullu tungli er maður laminn í klessu. Gerandinn virðist sá sami í hvert sinn, svartklædd manneskja sem hverfur út í nóttina. Fórnarlömbin virðast handahófskennd í fyrstu en reynast vandlega valin: kynferðisbrotamenn sem hafa komist undan refsingu. Þáttaröðin segir annars vegar frá blaðamanni sem tekst á við að leysa þessa dularfullu glæpi og hins vegar árásarmanninum, sem lítur á sig sem fulltrúa réttlætis sem útdeilir refsingu. Stóri bróðir eftir Skúla Sigurðsson hlaut Blóðdropann. Skúli Sigurðsson vann íslensku glæpsagnaverðlaunin fyrir söguna árið 2022 og var tilnefndur til Glerlykilsins, skandinavísku glæpasagnaverðlaunanna. Ólafur Darri stýrir handritahöfundarherbergi fyrir þáttaröðina og auk hans eru í teyminu Víkingur Kristjánsson, Aníta Briem, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Teitur Magnússon. Nýjasta nafnið til að bætast í hópinn er kanadíski leikstjórinn Kari Skogland sem er sannkallaður reynslubolti, leikstýrði seríunni The Falcon and the Winter Soldier (2021) og hefur leikstýrt stökum þáttum í seríunum The Handmaid's Tale (2017-25), House of Cards (2012-18), The Walking Dead (2010-22), The Americans (2013-18) og Boardwalk Empire (2010-14) auk margra annarra. Tökur á þáttunum hefjast 29. október hérlendis en ekki liggur enn fyrir hvaða leikarar munu fara með hlutverk í þáttunum. Sjónvarp Símans mun sýna þættina hérlendis og ZDF sýna þá í Þýskalandi.
Kvikmyndagerð á Íslandi Bandaríkin Kanada Bíó og sjónvarp Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Fleiri fréttir Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Sjá meira